Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Síða 22
18
Sumir vefir og efniseindir "hleypa ekki í gegn" hljóðbylgjunum.
Á það einkum við loft annarsvegar og bein hinsvegar. Af þeim
sökum hefur ekki enn tekizt að byggja upp nothæfa tækni af
þessu tagi fyrir bein eða lungnavef. Ennfremur getur garnaloft
oft truflað niðurstöður rannsókna í kviðarholi. Annars eru það
fyrst og fremst "bergmál" þau, sem myndast á mótum mismunandi
vefja, s.s. fita - nyra , aorta - blóð, o.s.frv., sem eru
ákvarðandi um myndgerðina.
Notasvið úthljóðsrannsókna:
Eins og fyrr segir er úthljóðstæknin í örri þróun, sem beinist
nú aðallega að bættri myndgerð með vaxandi upplýsingaforða, en
notasviðin eru nokkuð vel afmörkuð:
a) Fæðingarhjálp og kvensjúkdómar:
Úthljóð er bezta og áhættuminnsta aðferðin við ákvörðun
á fósturstærð, -legu, -ástandi, legu legsins og fylgju
o.fl. Ennfremur er tæknin mjög gagnleg við greiningu á
hverskonar æxlum og afbrigðum á legi og eggjastokkum.
b) Hjarta:
Þyðingarmikið afbrigði úthljóðsrannsókna eru rannsóknir
á hjarta, hjartalokum, hjartahólfum og gollurshúsi,
(echocardiography). Hér er notað þriðja afbrigðið af
myndgerð, svonefnd M-scan, sem gefur einskonar langskurð
frá þeim hluta hjartans sem skoða skal, en er í eðli
sinu mjög skylt B-scan-inu, sem áður var lýst. M-scan-
rannsóknir geta einnig verið "real-time" og gefa þá oft
verðmætar flæðis- og hreyfiupplýsingar, sem erfitt er
að ná jafnt áreynslulaust með öðrum ráðum.
c) Kviðarholsrannsóknir:
Það er fyrst og fremst við rannsóknir á kviðarholslíffærxim
sem B-scan-ið hefur sýnt yfirburði sína á marga vegu yfir
eldri myndgerðakerfi. Á þetta einkimi við um greiningu í
lifur, gallvegum og brisi, en einnig nýrum og í leit að
kviðarholsæxlum, þ.m.t. aneurysma í aorta. Við grun
um illkynja sjúkdóma í lifur og/eða brisi ætti ákvörðun