Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Side 24
20 -
hér, aðeins skal minnt á, að rannsóknin er, svo sem aðrar
röntgenrannsóknir, oft mjög fint samspil starfrænna
(functional) þátta svo sem blóðstreymis,og vefrænna
(morphologic) breytinga, s.s. heilaæxla, lifrarmeinvarpa
o.s.frv. Hér skal þó sérstaklega minntá(að leit meinvarpa,
æxla og bólgubreytinga í beinvef með gamma-cameru gefur
greiningu fyrr og er nákvæmari en venjulegar röntgenrannsóknir.
7.3. Tölvusneiðmyndir (CT)
CT táknar "Computed Tcanography" og er röntgenrannsókn gerð
með tækjabúnaði, sem þróazt hefur á áttunda áratugnum.
Tæknilega er rannsóknin þannig gerð, að þversneið úr líkamanum
er geisluð undir mismunandi sjónarhornum. Á þann hátt fæst
"snerting" við alla punkta í sneiðinni og hægt er með upptöku
geislanna og mælingu þeirra eftir að þeir hafa farið gegnum
"sneiðina" að fá mjög nákvæmar tölulegar upplýsingar um
"hemlun" (attenuation) geislunarinnar á hverjum einstökum punkti.
Hér er þannig um að ræða röðun á ótrúlega miklu upplýsingamagni
frá hverri sneið, og gífurlegt upplýsingaflæði, sem útheimtir
tölvu til úrvinnslu. Þegar sú úrvinnsla, sem aðeins tekur nokkrar
sekúndur, hefur farið fram, er tiltölulega auðvelt fyrir tölvuna
að breyta upplýsingunum í þversneiðannynd, sem hægt er-að lesa á
tölvuskermi og vinna úrmunmeiri upplýsingar um þéttleika vefja
og efna, en hægt er úr "venjulegri" röntgenmynd. Þannig er
auðvelt, með eða án skuggaefna, að greina hvað frá öðru, æxlis-
vefi, eðlilega vefi, blæðingar, vatnsæxli o.s.frv. CT kemur að
miklu gagni í greiningum á höfði og hálsi, með eða án skuggaefna,
en raunar eru engin svið líkamans útilokuð. Þannig hafa CT-
rannsóknir á kviðarholi dregið mjög verulega úr geisla- og
efnisfrekum æðarannsóknum, og einstöku tímafrekar og erfiðar
rannsóknir svo sem pneumoencephalografia og lymphografia
eru nánast úr sögunni. CT er dýr tækni, þó kostar gott
tæki í dag ekki meira en frekar litill mótorbátur.
Þegar tekið er tillit til allra þátta, svo sem greiningar-
öryggis, áhættu við ýmsar aðrar rannsóknir og tímataps í
ýmsum bráðum tilfellum, á CT-tæknin eftir að koma að
ómetanlegu gagni um talsverða frarotíð.