Heilbrigðisskýrslur - 07.12.1982, Qupperneq 32
4.0 NIÐURSTÖÐUR
Samkvæmt fyrrgreindu sjúklingatali og öðrum þeim könnunum
sem nefndin hefur stuðst viS er gert ráS fyrir aS á árinu
1981 hafi veriS þörf fyrir alls 780 hjúkrunarrými í Reykjavík.
Á eiginlegum hjúkrunarstofnunum og hjúkrunardeildum voru alls
498 rými í notkun og á almennum sjúkradeildum og geSdeildum
voru 114 rými nýtt af langlegusjúklingum 70 ára og eldri.
Gert er ráS fyrir aS 13 rými til viSbótar á þessum deildum
hafi veriS nýtt af langlegusjúklingum yngri en 70 ára. Þar
aS auki var taliS aS 155 einstaklingar hefSu brýna þörf fyrir
aS vistast á hjúkrunarstofnunum. Af þeim fengu 92 reglubundna
heimahjúkrun og 66 heimilishjálp á vegum Reykjavíkurborgar.
Af þeim 66 einstaklingum sem nutu heimilishjálpar fengu 36
einnig heimahjúkrun. 1 töflu 13 er tekiS tillit til þess og
aSeins taldir 33 þjónustuþegar, þannig aS áætluS er þörf fyrir
3 rými handa fólki yngra en 70 ára. Kannanir á biSlistum stofn-
ana, fyrirspurnir og viStöl bentu til þess aS á árinu 1981 hafi
aS meSaltali 30 aldraSir hjúkrunarsjúklingar, sem nauSsynlega
þörfnuSust vistunar á hjúkrunarstofnun,dvaliS í heimahúsum í
umsjá maka, barna, ættingja eSa vina.
Eins og fram kemur í töflu 13 reyndust 49 langlegusjúklingar
á hjúkrunarstofnunum vera 70 ára og yngri, eSa 9,8%. Hlut-
fall sama aldurshóps meSal þeirra sem fengu heimahjúkrun var
15,2%. Ekki liggja fyrir endanlegar upplýsingar um hlutfall
70 ára og yngri af langlegusjúklingum á almennum sjúkradeildum
og geSdeildum, meSal þjónustuþega heimilishjálparinnar eSa þeirra
sem dvöldust í heimahúsum án reglubundinnar heimaþjónustu á veg-
um Reykjavíkurborgar. í töflu 13 er gert ráS fyrir aS hlutfall
þeirra hafi veriS um 10% af hverjum sjúklingahóp í dálkum 2, 4
og 5.
1 sjúklingatalinu kom fram aS 97 af 498 einstaklingum á hjúkr-
unarstofnunum í Reykjavik áttu lögheimili utan höfuSborgarinnar.
Sams konar upplýsingar liggja ekki fyrir um hjúkrunarsjúklinga
á almennum sjúkradeildum eSa þá sem dveljast í heimahúsum án
reglubundinnar heimaþjónustu. Aftur á móti er ljóst aS nánast
30