Heilbrigðisskýrslur - 07.12.1982, Blaðsíða 34
allir þeir sem fá heimaþjónustu í Reykjavík eiga þar lögheim-
ili, þó það sé ekki skilyrði fyrir því að fá slíka þjónustu.
Hlutfall utanbæjarmanna af hjókrunarsjúklingum í Reykjavík er
því líklega ekki hærra en 14% af heildarhópnum.
Á grundvelli þeirra niðurstaðna sem fram koma í töflu 13 má
áætla þörf einstakra aldurshópa fyrir hjúkrunarrými í Reykjavík,
þ.e.a.s. að setja fram hugmynd að staðli um vistunarrýmisþörf.
Ef þeir 97 hjúkrunarsjúklingar sem sannanlega eiga lögheimili
utan Reykjavíkur eru ekki taldir með, má gera ráð fyrir þeim
þjónustustöðlum er fram koma í töflu 14. Tekið skal fram að
þessi tillaga tekur eingöngu mið af þeim könnunum sem nefndin
hefur stuðst við og því ástandi sem ríkti í öldrunarþjónustu
árið 1981.
Tafla 14 Áætlaðir staðlar hjúkrunarþjónustu £
Reykjavík árið 1981
Aldur íbúar 70 ára og eldri 1/12 1980 Hjúkrunar- sjúklingar 1981 Rými á hverja 100 íbúa í aldurshóp
70 - 74 2815 73 2,6
75 - 79 2110 125 5,9
80 - 84 1419 148 10,4
85 ára og eldri 954 266 27,9
Alls 7298 612 8,4
Auk þessara viðmiðana verður að óbreyttum forsendum að gera ráð
fyrir 14% (14,05%) fleiri rýmum vegna utanbæjarmanna 70 ára og
eldri. Og þar til viðbótar 11,7% (11,74%) fleiri rýmum vegna
sjúklinga yngri en 70 ára en í því tilviki er bæði um að ræða
Reykvíkinga og utanbæjarmenn. Þannig að hlutfall utanbæjar-
manna og hjúkrunarsjúklinga yngri en 70 ára af heildarhópnum
er alls 21,5%. Þetta má skýra nánar á eftirfarandi hátt. árið
1981 var talið að 612 Reykvíkingar 70 ára og eldri þyrftu á
32