Heilbrigðisskýrslur - 07.12.1982, Blaðsíða 39
5.0 SKIL
Hér að framan er gerð grein fyrir þjónustu við aldraða á
Islandi, hlutfalli þeirra af þjóðarheild það sem af er þess-
ari öld, félagslegum breytingum, stærð aldurshópsins 70 ára
og eldri árið 1980 og framreikningi á stærð þess hóps í Reykja-
vík og á öllu landinu fram til 1990. Lýst er skipulagi og
umfangi öldrunarþjónustu*hér á landi. Birtur er útdráttur
úr rannsóknum sem öldrunarþjónustunefnd hefur annað hvort
staðið fyrir eða stuðst við í mati á þörf fyrir hjúkrunarrými
í Reykjavík. Niðurstöður þessara kannana eru settar fram í
samræmdu formi. Staðlar fyrir hjúkrunarþjónustu £ Reykjavík
eru áætlaðir. Þörf fyrir hjúkrunarrými í Reykjavxk er áætluð
fram til 1990 og miðað við sönu forsendur er reynt að gera
sér grein fyrir heildarþörf á hjúkrunarrými fyrir aldraða á
öllu landinu.
Samkvæmt niðurstöðum þessarar skýrslu er gert ráð fyrir 8,4
hjúkrunarrýmum á hverja 100 Reykvíkinga 70 ára og eldri. 1
einu sambærilegu könnuninni sem gerð hefur verið hér á landi
á Egilsstöðum árið 1976 var reiknað með 8,8 slíkum rýmum á
þennan aldurshóp (10). 1 riti Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytisins um vistunarrýmisþörf heilbrigðisstofnana frá 1973
er hins vegar talin þörf á 6,0 hjúkrunarrýmum á hverja 100 íbúa
70 ára og eldri og 350 hjúkrunarrýmum á hverja 100 þúsund íbúa
(20). Annars segja þessar hlutfallstölur takmarkaða sögu, því
með hækkandi aldri þarfnast æ fleiri í hverjum aldurshóp vistar
á stofnun. Þannig er áætluð þörf fyrir 2,6 hjúkrunarrými á
hverja 100 Reykvíkinga á aldrinum 70 - 74 ára og 27,9 hjúkrunar-
rými á hverja 100 íbúa 85 ára og eldri. Mjög svipaður munur á
þjónustuþörf einstakra aldurshópa kom fram í áðurnefndri Egils-
staðakönnun. í ritinu um vistunarrýmisþörf heilbrigðisstofnana
er ekki fjallað sérstaklega um mismikla vistunarþörf einstakra
aldurshópa og auk þess er sú skýrsla að mestu byggð á erlendum
viðmiðunum.
Niðurstöðutölur þessarar könnunar og Egilsstaðakönnunarinnar
37