Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1985, Page 120

Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1985, Page 120
10. ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR Fóstureyðing og ófrjósemisaðgerð eiga það sameiginlegt að hvort tveggja eru aðgerðir, sem koma i veg fyrir að fólk auki kyn sitt. Akvæði um þessar tvær aðgerðir hafa verið felld saman i löggjöf allt frá árinu 1935 er fyrst voru sett lög um þær hér á landi. 1 III. kafla gildandi laga nr. 25/1975 er fjallað sérstaklega um ófrjósemisaðgerðir auk þess sem ýmis ákvæði I. og IV. kafla laganna eiga einnig vió þær. Þá má benda á að sama eyðublað er notað fyrir umsókn um fóstureyðingu og ófrjósemisaðgerð. Ber landlækni að fá afrit af öllum umsóknum um framkvæmdar ófrjósemisaðgerðir eins og fóstureyðingar. Hér verður gerð stutt grein fyrir órfrjósemisaðgerðum sem framkvæmdar hafa verið frá árinu 1935. Þar kemur m.a. fram að á timabilinu 1975 - 1983 voru að jafnaði 13% ófrjósemisaðgerða sem gerðar voru á konum árlega framkvæmdar samhliða fóstureyðingu. Þá má geta þess að sam- kvæmt könnun á ófrjósemisaðgerðum sem framkvæmdar voru á Kvennadeild Landspitalans árin 1975-1979 fóru um 42% aðgerðanna þar fram i lok þungunar. (19) 10.1. Aðgerðir skv. l.nr. 38/1935. Með lögum nr. 38/1935 var lækni veitt heimild til að gera konu ófrjóa ef heilbrigðisnauðsyn krefði og konan óskaði þess. Við mat á nauðsyn slikrar aðgeróar mátti taka tillit til félagslegra ástæðna. Þessi lög giltu til ársins 1975 en á gildistima þeirra frá 1935 til 1974 voru framkvæmdar samtals 332 ófrjósemisaðgerðir eftir þvi sem fram kemur i Heilbrigðisskýrslum. (16) 10.2. Aðgerðir skv. l.nr, 16/1938. A svo til sama tima eða frá 1938 til 1975 giltu jafnframt lög nr. 16/1938 sem heimiluðu i viðeigandi tilfellum aðgerðir á fólki, er koma i veg fyrir að það auki kyn sitt. Var tilgangur slikra aðgerða tvenns konar: "1) Til að koma i veg fyrir fæðingu gallaðs afkvæmis og 2) til að létta fávitum og sjúklingum lifsbaráttuna."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.