Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 14
14
Leikhúsmál
Kgl. hárgreiðslukona frú Kristólína Kragh
við vinnu sína í leikhúsinu.
Eflaust munu ýmsir láta sér fátt um finn-
ast, enda því vanastir að kalla ekki allt ömmu
sína, þeir hrista höfuðið eins og þeir vildu
segja: íslenzkur iðnaður! Hinir munu þó
fleiri, sem viðurkenna að íslenzk leiklist sé
komin til furðumikils þroska, og að sýningar
þessar hafi verið leikhúsinu til sóma — án
þess að gleyma þeim skorðum sem fámenni
og illur aðbúnaður hafa löngum sett hinni
göfugu listgrein á landi hér.
íslenzk leiklist er ung að árum, jafnvel
þótt leikið hafi verið síðan á átjándu öld,
hún er skilgetið barn okkar aldar. Ártöl
mætti nefna: Stefanía Guðmundsdóttir lék
fyrsta hlutverk sitt árið 1893, en Leikfélag
Reykjavíkur var stofnað 1897, þá er iðnaðar-
menn reistu hús sitt við tjörnina. En Leik-
félagið fór hægt af stað og sýndi aðeins létt-
væga söngleika hin fyrstu ár; smám saman
urðu leikararnir samæfðari og samstillari,
þeir settu markið hærra, og þá fyrst verður
til leiklist á íslandi í eiginlegri merkingu
orðsins. Nokkrir mikilhæfir leikendur störf-
uðu í hinu merka félagi allt frá fyrstu árum,
og má enn líta tvo þessara ágætu brautryðj-
enda á sviði Þjóðleikhússins, Friðfinn Guð-
jónsson og Gunnþórunni Halldórsdóttur. í
dag er þeirra manna og kvenna með miklu
þakklæti minnst, sem fórnuðu leiklistinni
kröftum sínum og tómstundum, en hl’utu fátt
í aðra hönd nema ánægjuna af vel unnu
verki- á herðum þeirra stendur leiklist dkkar
um og draumum, og þó framar öllu okkur
sjálfum, og ganga þaðan víðsýnni og djarf-
ari en áður.
En er ekki leikmennt okkar of fátækleg
og hjálparvana enn sem komið er? Eru leik-
ararnir íslenzku vaxnir þeim mikla vanda
sem stofnun Þjóðleikhússins leggur þeim á
herðar? Spurningum þessum hafa leikar-
arnir svarað, svör þeirra eru sjónleikarnir
þfír, sem sýndir voru á vígsluhátíð leikhúss-
ins, „Nýársnóttin11, „Fjalla-Eyvindur“ og loks
„íslandsklukkan“. Starfsmenn hins nýja leik-
húss: lágu ekki á liði sínu, heldur lögðu dag
við nótt, það var hlutverk þeirra að sýna
þjóðinni allri hvers þeir orkuðu og hvers af
þeim megi vænta á komandi árum.. Allir
tóku þátt í þessum leikum, frægir leikarar
og óþekktir, þeir elztu sem þeir yngst'u; og
það er áhorfendanna að dæma.
Ljósaborðið. Mr. Boundy til hægri;
Kristinn Ijósameistari til vinstri.