Fréttablaðið - 17.12.2022, Síða 68
BRAND vín & grill er nýr og
spennandi veitingastaður í
Hafnartorgi Gallery. BRAND
er systrastaður BÁL sem er
staðsett í BORG29 og eru
báðir staðirnir vín og grill
barir sem notast við jap
anskt Robata kolagrill sem
nær allt að 800°C og gefur
matnum einstakan kola
grillkeim.
Eigendur BÁL og BRAND eru
hjónin og fagfólkið Hafsteinn
Ólafsson og Ólöf Vala Ólafsdóttir.
Haffi, eins og hann er kallaður,
hefur átt farsælan feril í keppnis-
matreiðslu, vann m.a. til gull- og
silfurverðlauna á Ólympíuleikum
og Heimsleikum í matreiðslu með
kokkalandsliðinu. Einnig vann
Hafsteinn titilinn Kokkur ársins
árið 2017. Haffi á veg og vanda að
matseðlinum.
„Við leggjum mikið upp úr því að
vera með fyrsta flokks hráefni og
í rauninni einföld hráefni. Á mat-
seðlinum erum við með breitt úrval
og leggjum áherslu á kolagrillaða
fisk- og kjötrétti sem og smárétti
sem parast vel með vínglasi. Þess
vegna erum við með fjölbreytt
úrval af víni miðað við stað af þess-
ari stærðargráðu. Auk þess erum
við með mjög veglegan og glæsi-
legan hamborgara á matseðli sem
og fisk vikunnar,“ segir Hafsteinn.
Í hádeginu er boðið upp á til-
boðsverð á völdum aðalréttum.
Ólöf Vala er framreiðslumeistari,
auk þess að vera einn af fáum
lærðum sommelier-vínþjónum
landsins, en það lærði hún í alþjóð-
legu skólunum Master Sommelier
og W.S.E.T. Segja má að BRAND sé
afsprengi og sameining á áhuga-
sviði þeirra á mat og víni. Ólöf
Glæsileg veisla í hlýlegu og kósí umhverfi
Hafsteinn Ólafs-
son að störfum
í eldhúsinu á
BRAND.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIgTRYggUR ARI
Japanska Robata
kola grillið nær
allt að 800°C og
gefur matnum
einstakan kola-
grillkeim.
Í desember er matseðillinn í
jólabúningi og meðal annars
boðið upp á:
n Hreindýrahamborgara
n Lambatartar & laufabrauð
n Skelfisksúpu
n Hægeldaða bleikju
n Kolagrillað dádýr
n Crème Brûlée
Drykkir
n Gingerbread white russian
n Róleg jól
n Jólaglögg
Vala hefur sett saman glæsilegan
vín- og drykkjaseðil sem er með
fjölbreytt úrval.
BRAND býður upp á skemmti-
lega matarupplifun og staðurinn
sker sig vissulega úr þar sem þar
eru sæti fyrir um 30 manns við
barinn. „Hér situr fólk löngum
stundum og nýtur þess að borða og
drekka ásamt því að fylgjast með
matreiðslunni í opnu eldhúsi. Frá
upphafi var lagt upp með það að
það væri stemningin á staðnum
og því er ótrúlega gaman að sjá þá
stemningu verða að veruleika,“
segir Hafsteinn.
Hafsteinn segir hamborgarann
vera gríðarlega vinsælan, því sé
hann enn á matseðli ásamt hrein-
dýrahamborgaranum, sem er bara
yfir hátíðarnar.
Brand býður upp á hlýtt og
notalegt umhverfi þar sem gott er
að kúpla sig út úr jólastressinu og
kuldanum sem er nú í desember,
koma inn í hlýjuna og byrja að
njóta í mat og drykk. n
ACNE STUDIOS
DIEMME
FILIPPA K
GANNI
AXEL ARIGATO
PAUL SMITH
RÉSUMÉ
ROTATE BIRGER CHRISTENSEN
ROYAL REPUBLIQ
SAMSØE SAMSØE
STAND STUDIO
DAY BIRGER ET MIKKELSEN
2ND DAY
360° ICÔN
Þú finnur
jólagjöfina
hjá okkur
HAFNARTORG
FLOTT DÖMU MERKI
12 kynningarblað 17. desember 2022 LAUGARDAGURhafnartorG