Fréttablaðið - 28.12.2022, Qupperneq 12
Dómnefnd Markaðarins
valdi sölu Origo á Tempo sem
viðskipti ársins 2022. Þeir
sem sátu í dómnefndinni
nefndu hve klókt það hefði
verið að halda eftir hlut í
fyrirtækinu á sínum tíma.
Það hefði skilað sér í mikilli
verðmætaaukningu fyrir
hluthafa.
ggunnars@frettabladid.is
Sala Origo á 40 prósenta hlut í hug-
búnaðarfyrirtækinu Tempo til fjár-
festingasjóðsins Diversis Capital
fyrir 28 milljarða er, að mati dóm-
nefndar Markaðarins, þau viðskipti
sem stóðu upp úr á árinu sem er að
líða. Hreinn hagnaður af sölunni
nam ríflega 22 milljörðum.
Tempo býr til hugbúnað sem
hjálpar fyrirtækjum við tíma-
stjórnun, áætlanagerð og kostnað-
arstjórnun. Tempo var upphaflega
þróað sem lausn við innanbúðar-
vandamáli hjá Nýherja, sem nú heitir
Origo, í kringum fjármálahrunið en
árið 2015 var stofnað sérstakt félag
utan um rekstur Tempo.
Þegar tilkynnt var um viðskiptin
í október síðastliðnum sagði Jón
Björnsson, forstjóri Origo, að upp-
gangur Tempo væri skýrt dæmi
um það hvernig frábært starfsfólk,
íslenskt hugvit og stuðningur eig-
enda geti búið til mikil heilmikil
verðmæti. Það væri jafnframt von
Origo að f leiri hugbúnaðarvörur
gætu átt jafn farsælan feril og Tempo
í framtíðinni.
Dómnefnd Markaðarins var á einu
máli um ágæti sölunnar og fram-
göngu stjórnenda Origo í tengslum
við málið.
„Einstaklega gjöful viðskipti fyrir
hluthafa Origo, sem fengu vænan
skerf af sölunni inn á vörslureikn-
inga sína í byrjun desember,“ segir
meðal annars í rökstuðningi dóm-
nefndar.
Fyrir utan fjárhagslegan ávinning
nefndu meðlimir dómnefndar hve
mikil viðurkenning salan væri fyrir
íslenskan hugverkaiðnað. „Þessi við-
skipti munu án efa laða erlenda fjár-
festa að þessum öfluga iðnaði. Sala af
þessari stærðargráðu ryður brautina
og kveikir áhuga. Það er gríðarlega
mikilvægt og verðskuldað.“
Aukinheldur er Origo talið það til
tekna að hafa klárað söluna við erf-
iðar aðstæður.
„Origo hefur verið á góðri siglingu
síðastliðin ár og stóran hluta af því
má rekja til uppgangs Tempo. Virki-
lega vel gert að klára söluna miðað
við hvernig markaðsaðstæður hafa
þróast á árinu,“ segir í rökstuðningi
dómnefndar.
Einn af álitsgjöfum Markaðarins
segir söluna á Tempo sjónarmun á
undan kaupum Síldarvinnslunnar
á Vísi við val á viðskiptum ársins.
Aðallega vegna þess hve krefjandi
aðstæður hafi verið á hlutabréfa-
mörkuðum. Í því ljósi séu þessi
viðskipti enn stærri en ætla mætti í
fyrstu. Flestir hafi talið að viðskipti
af þessu tagi væru komin í bið vegna
óróa á mörkuðum.
„Réttar ákvarðanir stjórnenda
undanfarin ár í tengslum við Tempo
eru aðdáunarverðar. Til dæmis sú
ákvörðun að fá inn erlenda fjárfesta
árið 2018. Félagið er að uppskera eins
og til var sáð og niðurstaðan er ein
stærsta sala allra tíma á íslensku hug-
viti. Virkilega vel gert að ná þessu í
gegn í þessu árferði,“ segir í mati
dómnefndar. n
Þessi viðskipti eiga
eftir að styrkja bæði
félög til lengri tíma
litið.
Þótt endanlegt kaup
verð hafi reynst lægra
en samið var um í
upphafi leikur enginn
vafi á því að salan á
Mílu eru tímamóta
viðskipti.
Fyrir utan fjárhagslegan ávinning nefndi dómnefnd hve mikil viðurkenning salan væri fyrir íslenskan hugverkaiðnað.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gjöful viðskipti
fyrir hluthafa Origo
2. sæti 3 sæti1. sæti
Önnur viðskipti sem voru tilnefnd
Jón Björnsson,
forstjóri Origo
Félagið er að uppskera
eins og til var sáð og
niðurstaðan er ein
stærsta sala allra tíma á
íslensku hugviti.
Þótt tilkynnt hafi verið um sölu
Símans á Mílu til franska fjárfest-
ingasjóðsins Ardian á síðasta ári
þá varð ekki ljóst fyrr vel var liðið
á þetta ár að Samkeppniseftirlitið
myndi endanlega leggja blessun
sína yfir viðskiptin.
Í millitíðinni þurftu samnings-
aðilar að setjast niður í tvígang og
semja upp á nýtt. Þótt kaupverðið
hafi lækkað frá því sem samið var
um í fyrsta samningi er salan á inn-
viðafyrirtækinu Mílu söguleg við-
skipti. Fyrir eljuna, sem þurfti til að
klára viðskiptin á árinu, valdi dóm-
nefnd Markaðarins Orra Hauksson,
forstjóra Símans, viðskiptamann
ársins. Þegar öll sund virtust lokuð
og útlit fyrir að viðskiptunum yrði
endanlega rift, stigu stjórnendur
Símans fram, með Orra í farar-
broddi, og sigldu fleyinu í höfn.
Að mati dómnefndar er fullt til-
efni til að taka ofan fyrir forsvars-
fólki Símans vegna sölunnar á Mílu
á þessu ári líkt og því síðasta. Í rök-
stuðningi dómnefndar segir meðal
annars: „Þótt endanlegt kaupverð
hafi reynst lægra en samið var um
í upphafi leikur enginn vafi á því að
salan á Mílu eru tímamótaviðskipti.
Eftir stendur Síminn með 46 millj-
arða í kassanum, sem er mun hærri
fjárhæð en nokkur hefði getað gert
sér í hugarlund fyrir fáeinum árum.
Aukinheldur eru viðskiptin gríðar-
lega góð tíðindi fyrir önnur íslensk
fyrirtæki á fjarskiptamarkaði.“
Aðdáunarverð
þrautseigja
Orri Hauksson,
forstjóri Símans
Gunnþór
Ingvason,
framkvæmda-
stjóri Síldar-
vinnslunnar
Um mitt sumar var tilkynnt að
Síldarvinnslan hefði náð samkomu-
lagi um kaup á öllu hlutafé útgerðar-
félagsins Vísis í Grindavík en Vísir
er rótgróið fyrirtæki sem rekur
bæði saltfiskvinnslu og frystihús í
Grindavík auk þess að gera út sex
fiskiskip.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar
kom fram að viðskiptin hefðu hljóð-
að upp á 31 milljarð króna. Kaup-
verð hlutafjár var um 20 milljarðar
en vaxtaberandi skuldir Vísis um 11
milljarðar. Með viðskiptunum skip-
uðu seljendur Vísis sér í hóp kjöl-
festufjárfesta í Síldarvinnslunni.
Dómnefnd Markaðarins valdi
kaup Síldarvinnslunnar á Vísi þriðju
bestu viðskipti ársins.
Viðskiptin sættu nokkurri gagn-
rýni fyrstu vikurnar eftir að gengið
var frá samningum. En eftir að Sam-
keppniseftirlitið lagði blessun sína
yfir gjörninginn hafa þær raddir
þagnað að mestu.
„Það leikur enginn vafi á að þessi
viðskipti eiga eftir að styrkja bæði
félög til lengri tíma litið. Vísir verður
rekið sem dótturfélag og mun starf-
semin í Grindavík verða enn öflugri
en hingað til. Aðkoma jafn öflugs
félags og Síldarvinnslunnar mun
ýta undir samkeppnishæfni og sjálf-
bærni Vísis.“
Að mati dómnefndar bendir ekk-
ert til annars en að tilgangur Síldar-
vinnslunnar með kaupunum sé að
hámarka verðmæti afurða. Nú sem
endranær.
„Starfsemin í Grindavík mun
styrkja samsteypuna enn frekar
í þeirri vinnu,“ segir í mati dóm-
nefndar. n
Síldarvinnslan
styrkir stöðu sína
Edda Sif Pind Aradóttir, fram-
kvæmdastýra Carbfix.
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldar-
vinnslunnar.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri
Hampiðjunnar.
Spjótin stóðu á fulltrúum Banka-
sýslu ríkisins á árinu.
Helgi Hermannsson, stofnandi
Sling.
Salan á Sling til Toast
„Að fara á sjö árum úr því að labba
á milli mögulegra viðskiptavina í
Bandaríkjunum með PowerPoint-
skjal í að selja fyrirtækið á átta
komma sex milljarða er afrek
sem vert er að veita athygli. Það
fór ekki mikið fyrir Helga Her-
mannssyni og félögum hjá Sling
framan af en þau eiga heiðurinn
af öskubuskuævintýri ársins í
íslensku viðskiptalífi.“
Íslandsbankasalan
„Önnur viðskipti sem komast
á blað er útboð Íslandsbanka
sem var vel heppnað. Ljóst er að
tímasetningin var góð fyrir ríkið
sem seljanda, sem heldur enn
eftir verulegum hlut í félaginu.
Þótt framkvæmdin á sölunni hafi
valdið deilum og verið umdeild þá
leikur enginn vafi á að verðið sem
fékkst fyrir 22,5 prósenta hlut
ríkisins var mjög gott.“
Kaup Hampiðjunnar á Morenot
„Félagið hefur verið að gera frá-
bæra hluti í yfirtökum sem hafa
styrkt arðsemi félagsins. Þar
stóðu kaupin á Voninni í Færeyjum
upp úr. Kaupin á Morenot marka
önnur skil í vexti félagsins. Kemur
ekki á óvart að bréfin hafi hækkað
um 20 prósent daginn eftir til-
kynningu og líkt og með Vonina
fela þessi kaup í sér umtalsverð
tækifæri til samlegðar.“
Viðskipti Síldarvinnslunnar
„Viðburðaríkt ár hjá Síldarvinnsl-
unni og nokkuð ljóst að það er
mikill hugur í eigendum og stjórn-
endum fyrirtækisins á krefjandi
tímum. Margur hefði haldið að
kaupin á útgerðarfélaginu Vísi frá
Grindavík væri nægilega stór biti á
einu ári en Síldarvinnslan lét ekki
þar við sitja og keypti líka stóran
hlut í fiskeldisfyrirtækinu Arctic
Fish.“
Carbfix á siglingu
„Uppgangur Carbfix er aðdáunar-
verður. Fyrirtækið er að skipa sér
í raðir brautryðjenda í kolefnis-
förgun andspænis loftslagsvand-
anum. Tæknin sem Carbfix hefur
þróað skilaði meðal annars styrk
upp á 16 milljarða frá nýsköp-
unarsjóði Evrópusambandsins á
árinu og fyrirtækið heldur áfram
að vaxa og dafna í spennandi
geira umhverfisvænna lausna.“
Bestu viðskipti ársins 28. desember 2022 MiðvikuDAGur