Fréttablaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 46
Mér fannst fyndið að
veita verðlaun fyrir
eitthvað eins og
handaband ársins.
Guðmundur
Haukur Guð-
mundsson,
lögfræðingur
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Íslenskur lögfræðingur gerir
upp árslista „ársins“ á Twitter
í síðasta sinn, en hann hefur
haldið úti árslistum í sex ár
þar sem veitt eru „verðlaun“
í óvenjulegri flokkum á borð
við smitleið, veðurfrétta-
mann og bílaauglýsingu
ársins, svo fátt eitt sé nefnt.
ninarichter@frettabladid.is
„Þetta er hattur sem ég set á mig um
áramótin,“ segir lögfræðingurinn
og Twitter-notandinn Guðmundur
Haukur Guðmundsson, höfundur
#ársins-árslistans sem nýtur mikilla
vinsælda á fuglaforritinu um hver
áramót.
Guðmundur, sem hefur verið
skráður á Twitter frá árinu 2013
undir notandanafninu @gudmund-
urhg, segist ekki virkur á miðlinum
þess á milli. „Ég er ekki sjálfur að
leggja mikið í púkkið, nei.“
Að sögn Guðmundar hefur and-
rúmsloftið á svokallaða „íslenska
Twitter“, það er samfélagi íslenskra
notenda miðilsins, breyst mikið
síðan hann skráði sig þar fyrst.
„Í dag er þetta svolítið gírað. Ég
held að það sé besta lýsingin. Þetta
er búið að breytast rosalega mikið
síðustu ár. Það eru fleiri byrjaðir að
nota þetta. Fyrir mig var þetta aðal-
lega fótbolti og fréttir í upphafi, en í
dag er þjóðfélagsumræðan svolítið
tekin þarna. Það versta er að þetta
er tekið í 240 stafabilum, sem getur
verið galli.“
Árið 2016 hóf Guðmundur að
taka saman árslistana undir myllu-
merkinu #ársins. „Þá fannst mér
svo fyndið að fara að veita einhver
verðlaun sem eru ekki veitt venju-
lega. Það eru alltaf veitt þessi hefð-
bundnu: viðskiptamaður ársins
og allt þetta. Mér fannst fyndið að
veita verðlaun fyrir eitthvað eins og
handaband ársins eða húsvörður
ársins. Þannig fór þetta af stað,“
segir hann.
Fljótlega varð #ársins-fyrirbærið
vinsælt, og lækin hófu að hrannast
inn. „Hægt og rólega sprakk þetta
út, sem var ekkert planið. En að
öllum líkindum er þetta í síðasta
skipti sem „ársins“ verður,“ segir
Guðmundur.
Hvað varðar ástæðurnar, svarar
hann blátt áfram. „Þetta er tíma-
frekt og ekki borgað.“
Að sögn Guðmundar liggur nokk-
ur vinna að baki árslistanum. „Til
þess að gera efnið almennilegt þarf
að safna upplýsingum yfir árið, yfir
það sem er fyndið og skemmtilegt,“
útskýrir hann. „Þetta er stemn-
ingsannáll. Þetta er eitthvað sem
þú myndir ekki sjá í hinum hefð-
bundna fréttaannál. Þetta er önnur
útfærsla.“
Hann segir Twitter vera nokkuð
formfastan miðil. „Þú getur ekki
gert allt sem þú vilt. Miðillinn sem
slíkur er með reglur. En að öllum
líkindum er þetta í síðasta skipti,“
segir Guðmundur og vafalaust
eru þeir ófáir notendur miðilsins
sem syrgja árslistann góða, enda
fáir staðir á netinu sem bjóða upp
á yfirlit yfir kennslustund ársins,
hópmynd ársins og svindlara ársins.
Margir flokkar hafa dúkkað upp í
gegnum tíðina, og raðast flokkarnir
eftir tilefni hverju sinni. Aðspurður
hvort Guðmundur eigi sér eftirlætis
flokk, svarar hann:
„Þessi verðlaun eru mismunandi
á milli ára. Ég held að uppáhalds
molinn minn sé nákvæmni ársins,
hjá rithöfundi sem er hjá Agli Helga-
syni, sem er að telja upp hvað hann
er búinn að gefa út margar bækur.
Ég held að það sé minn uppáhalds
moli,“ svarar hann.
Á aðfangadag kláraðist #ársins
fyrir þetta ár. „Svo ætla ég að rifja
upp uppáhalds molana mína til
áramóta og síðan slaufa þessu,“
segir Guðmundur og nýtir tæki-
færið til að þakka lesendum #ársins
samfylgdina og einnig aðsent efni.
„Takk fyrir aðstoðina. Þessir stuðn-
ingsmenn leynast víða og það er
gaman og hlýjar manni,“ segir lög-
fræðingurinn Guðmundur, höf-
undur #ársins. n
Stemningsannállinn #ársins
leggur upp laupana
ninarichter@frettabladid.is
Vilhelm Neto er í hópi íslenskra
leikara sem bregður fyrir í stutt-
ser íunni The Witcher: Blood
Origin sem frumsýnd var á Netflix-
streymisveitunni á jóladag. Íslensk
náttúra er í forgrunni í þáttunum
og fjöldi tökustaða er á hálendi
Íslands auk tökustaða á Suður-
landsundirlendinu.
Vilhelm Neto, Villi, leikur durgs-
legan álf sem á í samskiptum við
eina af aðalpersónum þáttanna,
Fjall, sem leikinn er af Íranum
Laurence O'Fuarain. Þá eru f leiri
íslenskir leikarar í þáttunum, má
þar nefna Eyrúnu Björk Jakobs-
dóttur sem þekkt er fyrir leik í
kvikmyndinni Lof mér að falla, í
eftirminnilegu aukahlutverki.
Þættirnir segja forsögu eldri
Witcher-þátta sem sýndir hafa
verið á streymisveitunni síðustu
ár. The Witcher Blood Origin er
þannig sjálfstæð þáttaröð, en þegar
eru til tvær eldri þáttaraðir af The
Witcher með Henry Cavill í aðal-
hlutverki, sem segja sögu sem gerist
1.200 árum síðar. n
Ísland áberandi í Witcher-þáttum
Hinn geðþekki Vilhelm Neto gleður
íslenska áhorfendur.
ninarichter@frettabladid.is
Í tilkynningu á vefsíðu sinni dagana
22. til 24. desember tilkynnti enski
söngvarinn Morrissey að hann hefði
slitið samstarfi við útgáfufyrirtækið
Capitol Records, merkilegt nokk,
skömmu áður en það hafði tækifæri
til að gefa út nýjustu plötu söngvar-
ans. Þá bætti hann við að bandaríska
söngkonan Miley Cyrus hefði beðið
um að allt efni frá henni yrði fjarlægt
af plötunni.
Lagið sem Miley söng inn á heitir
I am Veronica og segir Morrissey við
sama tækifæri að hún hafi boðist til
að syngja bakraddir í laginu fyrir
rúmum tveimur árum síðan.
Morrissey, sem er fyrrverandi
forsöngvari breska bandsins The
Smiths, hefur stuðað marga fyrrver-
andi aðdáendur sína og samstarfs-
menn á undanförnum árum með því
að halla sér til hægri með pólitískum
yfirlýsingum og hafa ummæli hans
verið túlkuð sem rasísk. n
Miley vill burt af plötu Morrissey
www.betrabak.is
ÚTSALAN
ER HAFIN
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
60%
AF DIMMA
SÆNGURFÖTUM
20%
AFSLÁTTUR AF
MAGNEFIQUE
25%
AFSLÁTTUR AF
TIMEOUT
30%
AFSLÁTTUR AF
YL INNISKÓM
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
18 Lífið 28. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið