Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 26
Óratorinn
04.–05./11
HÖGNI x KARLSSONWILKER
Stafrænt listrými í Hafnartorg Gallery verður
vígt um helgina með framsækinni sýningu.
Listamaðurinn Högni Egilsson og hönnuðurinn
Hjalti Karlsson, frá hinu margverðlaunaða
stúdíói karlssonwilker í New York,
sameina hugvit sitt og krafta
í margmiðlunarverkinu Óratorinn.
Verkið verður sýnt næstkomandi
föstudag og laugardag kl 17.
Frekari upplýsingar á hafnartorggallery.is
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Birgir Þórarinsson, alþingismaður
sem á sæti í utanríkismálanefnd Al-
þingis, átti nýlega fund með Beth Van
Schaack, sendiherra í utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna. Hún stýrir deild
sem fjallar um stríðsglæpi og þjóðar-
morð í heiminum. Sendiherrann er
sérstakur ráðgjafi Antonys Blinken,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
þegar kemur að því að beita ríki refsi-
aðgerðum vegna stríðsglæpa.
Með Birgi í för var Majed El Shaf-
ie, stofnandi kanadísku hjálparsam-
takanna One Free World Interna-
tional. Erindi þeirra var að afhenda
sendiherranum skýrslu um stríðs-
glæpi Asera gagnvart óbreyttum
borgurum í Nagorno-Karabakh.
Heimsóttu átakasvæðið
„Ég fór fyrir tveimur árum á
átakasvæðið í Nagorno-Karabakh en
þá geisaði enn eitt stríðið milli
Armeníu og Aserbaídsjans. Ég fór
þessa ferð ásamt ágætum vini mínum,
Majed El Shafie, stofnanda kan-
adísku hjálparsamtakanna One Free
World International,“ segir Birgir.
„Við sáum með eigin augum þá miklu
eyðileggingu sem Aserar ollu í hér-
aðinu og ræddum við íbúana sem
sögðu okkur frá hörmungum stríðs-
ins.“
Birgir segir að Aserar hafi stundað
skipulagðar pyntingar og limlestingar
á almennum borgurum. „Konum var
skipulega nauðgað, fólk skotið á göt-
um úti með drónum og lík látinna sví-
virt. Þeir tóku síðan voðaverkin upp á
myndband og sendu fjölskyldum
þeirra sem í hlut áttu. Aserum var
mikið í mun að eyðileggja sem flestar
kirkjur og útmá allt sem minnti á
sögu og menningu íbúa Karabakh, en
Armenía er fyrsta landið í heiminum
til að gera kristni að ríkistrú. Al-
mennt er talið að eyðileggingin sé ein
hin versta á sögulegum minjum á 21.
öldinni. Þúsundir steinkrossa frá 16.
öld voru til að mynda eyðilagðir.“
Skrifuðu ítarlega skýrslu
Birgir og Majed El Shafie ákváðu
að skrifa skýrslu, í samstarfi við
stjórnvöld í Karabakh, um voðaverk
Asera gagnvart óbreyttum borgurum
í Karabakh. Skýrslan er um 250 blað-
síður. Þeir söfnuðu margvíslegum
gögnum, eins og vitnisburðum þeirra
sem sættu pyntingum, ljósmyndum
af voðaverkum og fleiru.
Þeir fóru þess á leit við sendiherr-
ann að Bandaríkin beittu stjórnmála-
leiðtoga í Aserbaídsjan refsiaðgerð-
um vegna málsins.
„Staðan í Nagorno-Karabakh í dag
er viðkvæm. Aserar bíða færis þegar
athygli heimsbyggðarinnar er á stríð-
inu í Úkraínu og eru að undirbúa úr-
slitatilraun til að ná öllu svæðinu und-
ir sig. Þeir hafa ekki farið dult með
þessi áform sín,“ segir Birgir. „Rúss-
ar eru með um 2.000 manna friðar-
gæslulið í Karabakh, sem íbúar í Kar-
abahk eru jákvæðir gagnvart, en
vaxandi ónægju gætir hins vegar
meðal almennings í Armeníu með við-
veru þeirra, vegna stríðsins í Úkra-
ínu. Það gæti því miður farið svo að
annað stríð brytist út í Evrópu á
næstu mánuðum með tilheyrandi
hörmungum.“
Ræddi öryggismál í norðri
Birgir kvaðst hafa notað tækifærið
þegar hann var í Washington D.C. og
átti fund í utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna með Brian R. Roraff, skrif-
stofustjóra öryggismála norðurslóða.
„Við ræddum m.a. sérstaklega örygg-
ismál sæstrengja við Ísland og
áhættugreiningu í þeim efnum, ekki
síst í ljósi skemmdarverkanna á Nord
Stream gasleiðslunum í Eystrasalti,“
segir Birgir.
Stríðsglæpir Asera
í Nagorno-Karabakh
- Heimsóttu átakasvæðið og skrifuðu viðamikla skýrslu
Ljósmynd/BÞ
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna. F.v.: Birgir Þórarinsson, Beth Van
Schaack sendiherra, sem tók við skýrslunni, og Majed El Shafie.
19.996 kr. / 24.995 kr.
St. 36-41 / Vnr.MAR26823
13.596 kr. / 16.995 kr.
St. 36-41 / Vnr.MAR25334
*Gildir frá 3.-7. nóvember
13.596 kr. / 16.995 kr.
St. 37-41 / Vnr.MAR25212
11.996 kr. / 14.995 kr.
St. 36-41 / Vnr.MAR25822
SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
KAUPHLAUP Í SMÁRALIND
20% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM SKÓM
Vantar þig pípara?
FINNA.is