Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 HVÍTT SVART KRÓMGRÁTT BRASS KOPAR LIÐ IÐ HEIMAVARNAR Sundaborg 7 / Reykjavík / Sími 568 4800 / www.oger. is Mikið úr val s lökkvi tækja fyr ir al lar aðstæður og í mörgum li tum. Förum var lega – og verum við öl lu búin. SLÖKKVITÆKI FYRIR ÖLL HEIMILI – OG FYRIRTÆKI. Vill flytja bæjarskrifstofurnar lNýr bæjarstjóri á Seltjarnarnesi viðrar hugmynd til að styrkjaEiðistorg „Það hefur lengi verið stefna og vilji flestra ef ekki allra hér á Nesinu að auka veg og vanda Eiðistorgs,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, sem viðraði þá hugmynd nýverið að flytja skrif- stofur bæjarins af Austurströnd á Eiðistorg. Í grein í bæjarblaðinu Nesfréttum rekur Þór að bæjarskrifstofurnar hafi verið á Austurströnd 2 frá árinu 1989. Hann segir að þar sé flestallt upprunalegt og henti að mörgu leyti illa undir starfsemi bæjarins í dag. Hugmynd Þórs gengur út á að selja hluta húsnæð- isins á Austurströnd en nýta áfram hluta þess fyrir ýmsa þjónustu. Á Eiðistorgi myndi bæjarfélagið leigja húsnæði. „Það rými getur staðið bænum til boða með hagfelldum leigusamningi til áratuga ef vilji er fyrir hendi,“ segir bæjarstjórinn en eigandi húsnæðisins er frumkvöð- ullinn Jón von Tetzchner. Þór segir að enn sem komið er sé aðeins um vangaveltur af hans hálfu að ræða en greinilegt er að honum er full alvara með þeim. Kveðst Þór telja að þessar breytingar færi bæjarskrifstofuna nær bæjarbúum og auki sýnileika stjórnsýslunnar. Aðgengi og aðstaða verði betri auk þess sem aukið líf færist í Eiðistorg og búi til meiri tengingu við bókasafn og menningarmiðstöð bæjarins. hdm@mbl.is Morgunblaðið/Hari Eiðistorg Bæjarstjórinn vill færa aukið líf í starfsemi á torginu. Öndunarfæra- sýkingarherja á lRSV-kvefveiran er fyrr á ferðinni Mikið er um öndunarfærasýkingar af völdum mismunandi veira um þessar mundir og inflúensan og RSV-kvefveiran eru fyrr á ferðinni en venjulega, að því er segir í nýju yfirliti landlæknisembættisins yfir öndunarfærasýkingar og innlagnir á sjúkrahús vegna þeirra á haust- mánuðum. „Eins og spáð hefur verið stefnir í að þennan fyrsta vetur án sóttvarnaaðgerða vegna Covid-19 leggist árstíðabundnar öndunar- færasýkingar af fullum þunga á lands- menn. Átta manns eru nú inniliggj- andi með inflúensu á Landspítala,“ segir í greinargerðinni. Bent er á að töluvert sé enn um veikindi vegna Covid-19 og að aukning virðist vera þar á ef litið er til fjölda innlagna á Landspítala. Um þessar mundir liggja inni 30 sjúklingar vegna Covid-19 eða með veiruna og þar af er einn einstaklingur á gjörgæslu í öndunarvél. Þá er einn sjúklingur inniliggjandi á Sjúkrahúsinu Akur- eyri með Covid-19. „Árleg inflúensa gengur venjulega yfir á veturna, yfirleitt frá október eða nóvember fram í mars eða apríl. Á síðastliðnum vikum hafa 112 einstak- lingar greinst með staðfesta inflúensu hér á landi, sem eru töluvert fleiri samanborið við sama tíma undanfarin ár [...],“ segir þar ennfremur. Er inflúensan algengust í aldurs- hópnum 0-4 ára og hjá 65 ára og eldri. Fram kemur að fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum vikum. Alls hafa 104 einstaklingar lagst inn á Landspítalann vegna staðfestrar inflúensu (15 manns), Covid-19 (58 manns) eða af völdumRSV-veirusýk- ingar (31). Eru innlagnir vegna RSV flestar í yngstu aldurshópunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Flensusprauta Inflúensan hefur verið staðfest í öllum landshlutum. STAKSTEINAR Innantóm orð, enn og aftur Jón Magnússon, fv. alþingis- maður, skrifar um loftslags- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Sharm el-Sheik í Egyptalandi. Þangað flugu 44 fulltrúar Íslands í þágu loftslagsins og eins og Jón bendir á datt SÞ ekki í hug að nýta tölvutæknina og spara ferðalögin. Jón rifjar upp að fyrsta loftslags- ráðstefnan „um hnattræna hlýnun var haldin árið 1992 í Rio de Janeiro. Í Ríó ákváðu leiðtogarnir að stofna sjóð þar sem lönd sem yrðu verst úti mundu fá bætur. Enginn hefur greitt í þann sjóð. Í Ríó árið 1992 var haldið fram að allt væri að fara til and- skotans og fólk mundi stikna í vítislogum innan áratugar. Nú þrjátíu árum síðar er gert samkomulag í Sharm el-Sheik um sérstakan bóta- sjóð, sbr. samkomulagið í Ríó 1992. En hvar eru vítislogarnir og hvað hefur breyst á þessum þrjátíu árum?“ Jón bendir líka á að Indland og Kína, sem mengi mikið og gefi frá sér mikinn koltvísýr- ing, láti „sér ekki detta í hug að taka þátt í þessu enda var þetta alltaf hugsað til að færa peninga frá Evrópu til Asíu og Afríku. Indland og Kína hafa ekki samþykkt að taka þátt í einu eða neinu hvort heldur að greiða í bótasjóð eða draga úr útblæstri koltvísýrings í sam- ræmi við samþykktir Parísar- samkomulagsins.“ En Ísland, sem nýtir aðallega vatnsafl og jarðhita, ætlar að taka þátt. Jón Magnússon Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.