Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 41
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Staðgóð þekking á kvikmynda- og sjónvarpsmálum. Þekking á
starfsumhverfi Kvikmyndamiðstöðvar og lögum er miðstöðina
varða er kostur
• Staðgóð þekking á íslenskri menningu, málefnum ljósvakamiðla
og þekkingu á stefnu og straumum í afþreyingarefni
• Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
• Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri
• Árangursrík reynsla af mannauðsmálum, mannþekking og
drifkraftur
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
• Þjónustulund ásamt lipurð og færni í mannlegum samskiptum
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
• Þekking og reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfni til að koma fram
opinberlega og tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf á
íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig
viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Fólk óháð kyni er
hvatt til að sækja um embættið.
Um laun og launakjör forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands fer skv. 39. gr. a. laga um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins, nr. 70/1996.
Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára
frá og með 18. febrúar 2023 að fenginni umsögn Kvikmyndaráðs.
Ráðherra mun að auki skipa ráðgefandi þriggja manna hæfnis-
nefnd sem metur hæfni umsækjenda og skilar greinargerð til
ráðherra. Umsóknum skal skilað inn á netfangið mvf@mvf.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2022.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur
verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veitir Skúli Eggert
Þórðarson ráðuneytisstjóri í síma 545-9825.
Embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands er laust
til umsóknar.
Leitað er að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika, er framsýnn
í hugsun, metnaðarfullur og hefur sýnt frumkvæði og hæfni
í samskiptum og samvinnu.
Kvikmyndamiðstöð Íslands gegnir lykilhlutverki í íslenskum kvik-
myndaiðnaði með því að hafa umsjón með Kvikmyndasjóði
sem veitir fjármagn til framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis,
kynna íslenskar kvikmyndir á alþjóðlegum vettvangi og styðja við
kvikmyndamenningu á Íslandi. Kvikmyndamiðstöð starfar skv.
kvikmyndalögum nr. 137/2001 og vinnur jafnframt eftir
kvikmyndastefnu sem mótuð hefur verið til ársins 2030.
Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar fer með yfirstjórn stofnunar-
innar. Hann stýrir daglegum rekstri miðstöðvarinnar, þ.m.t.
rekstri Kvikmyndasjóðs, sér um fjárreiður, reikningsskil, gerð
fjárhagsáætlana, starfsmannahald og ber ábyrgð á að miðstöðin
starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Forstöðumaður
ber ábyrgð á að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma miðstöðvar-
innar sé í samræmi við fjárveitingar til hennar og sér um að
fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Forstöðumaður
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 41