Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 UMRÆÐAN 27 Þór Hauksson Vígsluafmæli Árbæjarkirkju Hvers þarfnast kirkju- söfnuður helst? Því er fljótsvarað: Öflugra leikmanna, kvenna og karla. Löngum hafa öflugar konur haldið uppi starfi Árbæjar- kirkju eða allt frá því að kvenfélag og líknar- sjóður kvenfélags Árbæjarkirkju voru stofnuð á aðalfundi félagsins 1973, ekki löngu eftir að Árbæjarsöfnuður varð til. Framan af veitti kvenfélagið ár- lega styrki í sjóðinn, en aðalfjáröfl- un fór fram með merkjasölu í mörg ár. Síðan voru það sælgætispokar sem gáfu vel af sér og upp úr 1985 var ákveðið að leita til fyrirtækja í hverfinu eftir áheitum og gafst það vel. Auk þess voru einstaklingar duglegir að styrkja sjóðinn. Mörg fyrirtæki gáfu í sælgætispokana, plastpokana, merkimiðana og nam- mið og/eða afslátt af því sem keypt var. Í pokana voru settir miðar með upplýsingum um markmið sjóðsins og tilgang. Síðan voru seldir pokar með kertum og seinna varð tertu- salan geysivinsæl. Sóknarprestur og prestur hvers tíma hafa haft veg og vanda af því að taka við fyrirspurnum fólks eftir styrkjum úr sjóðnum og séð auk þess um að úthluta þeim. Fyrstu áratugina fór úthlutun úr sjóðnum fram í peningum að öllu leyti. Síðan upp úr 2003 var farið að hafa þetta að mestum hluta í formi gjafabréfa í stórverslanir eins og Europrice, Bónus, Krónuna og Kringluna. Stærri gjafir eru þó oftast í formi peninga og metið á hverjum tíma í hverju tilfelli upphæð og aðstæður viðkomandi. Árið 1991 var í fyrsta sinn haldið skyndihappdrætti á kirkjudegi og tókst það vel. Happdrætti líknarsjóðsins er í dag langstærsti vettvangur fjáröflunar sjóðsins og hefur það gengið nokkuð vel. Kaffi- sala hófst síðan á árunum þar á eft- ir og fór hægt af stað en gaf af sér. Seinna tók kvenfélagið að sér kaffi- söluna. Dagurinn hefst með sunnu- dagaskólanum kl. 11.00 þar sem flutt verður leikritið „Langleggur og Skjóða“. Hátíðarguðsþjónusta er kl. 14.00, biskup Íslands, frú Agnes Sigurðardóttir, prédikar. Í upphafi guðsþjónustunnar mun kvenfélag Árbæjarsóknar afhenda söfnuðinum nýja hökla að gjöf. Há- tíðarkaffi og líknarsjóðshappdrætti kvenfélagsins. Sr. Þór Hauksson Höfundur er sóknarprestur Árbæjarsafnaðar. Sunnudaginn 27. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu, fagnar söfnuðurinn 35 ára vígsluafmæli. G uðmundur Kjartansson og Vignir Vatnar Stefáns- son urðu jafnir og efstir á Skákþingi Kópavogs sem lauk um síðustu helgi. Þeir hlutu báðir 5½ vinning af 7 möguleg- um en Guðmundur var hærri á mótsstigum og telst því sigurvegari mótsins. Vignir Vatnar hafði þó þann ás upp í erminni að eiga lögheimili í Kópavogi og hreppti því sæmdarheitið Skákmeistari Kópa- vogs 2022. Dagur Ragnarsson átti einnig möguleika á sigri; hann var jafn Vigni fyrir lokaumferðina en tapaði fyrir Halldóri Grétari Einars- syni og varð þriðji á stigum en var jafn Halldóri og Ingvari Wu Skarp- héðinssyni að vinningum. Vignir Vatnar gerði á sama tíma jafntefli við Benedikt en Guðmundur vann þá Gunnar Erik Guðmundsson og náði þar með Vigni að vinningum. Mótið, sem haldið var í samkomu- sal Blika í Fífunni, fór fram með því fyrirkomulagi að fyrst voru tefldar þrjár atskákir og síðan fjórar kappskákir. Það dró til sín marga af bestu ungu skákmönnum okkar en keppendur voru 29 talsins. Þá lauk U-2000-móti Taflfélags Reykjavíkur sl. miðvikudag. Það var einnig vel skipað ungum skák- mönnum. Efstir urðu Sigurjón Jón Friðþjófsson og Davíð Kjartansson sem hlutu báðir 6 vinninga af 7 mögulegum. Jón Kristinsson hlaut borða- verðlaun á EM öldungasveita Íslendingar hafa alltaf annað veifið verið með á alþjóðlegum öldungamótum í seinni tíð þá helst í sveitakeppnum, t.d. heimsmeistara- eða Evrópumótum öldungasveita, nú síðast í Dresden þar sem við stilltum upp liði á flokki keppenda 65 ára og eldri. Sveitin endaði í 20. sæti. Jón Kristinsson hlaut silfur- verðlaun fyrir frammistöðu sína sem 1. varamaður. Á heimsmeistaramóti öldunga, þ.e. einstaklingakeppni, teflir Henrik Danielsen, nú búsettur í Danmörku, undir fána Íslands í flokki keppenda 50 ára og eldri. Í flokki 65 ára og eldri áttu flestir von á auðveldum sigri John Nunn og hann var á góðri leið eftir sjö umferðir efstur með 6½ vinning. En þá mætti hann góðkunningja okkar frá Danmörku, Jens Kristiansen: HM-öldunga 2022; 8.umferð: Jens Kristiansen – John Nunn Kóngsindversk-vörn 1. Rf3 Rf6 2. d4 g6 3. Bg5 Sniðgengur alfaraleiðir. Skynsam- legt, því að Nunn þekkir teóríur Kóngsindverjans út og inn og hefur ritað mikið um efnið. 3. ... Bg7 4. Rbd2 d5 5. e3 O-O 6. Bd3 c5 7. c3 Db6 8. Db3 De6 Dálítið skrýtinn leikur en ekki slæmur. Aðrir möguleikar voru 8. ... c4 eða 8. ... Rc6. 9. c4 cxd4 10. Rxd4 Dg4 11. Bxf6!? Jens lék þessu glaður. Nú gat svartur svarað með 11. ... Bxf6 og hefur þá heldur betra tafl að mati „vélanna“sem voru fyrst í stað á þeirri „skoðun“ að 11. ... Dxg2 væri einnig ágætis leikur. John Nunn, sem 15 ára gamall, fékk inngöngu í stærðfræðideild Oxford-háskóla, sá yngsti frá lokum miðalda, lagði nú höfuðið í bleyti og lék ... 11. ... Dxg2?! 12. Bxg7 Dxh1+ 13. Ke2 Dxa1 14. Bxf8 Kxf8? Hann gat haldið jafnvægi með 14. ... e5 sem leiðir til afar flókinnar stöðu eftir 15. Rf5!? 15. Bb1! Skyndilega er drottningin lokuð af. Hvítur hótar 16. Rc2. 15. ... Bg4+ 16. f3 Bf5 17. Rxf5 Einfaldast. Gott var einnig 17. Dc3!? Eða 17. Bxf5. 17. ... gxf5 18. Dxb7 dxc4 19.Bxf5 Kg7 20. Rxc4 Dg1 21. Dxa8 Dxh2+ 22. Kd3 Ra6 23. Dxa7 Rb4+ 24. Kc3 – og svartur gafst upp. Guðmundur og Vignir Vatnar efstir á Skákþingi Kópavogs Ljósmynd/Ingibjörg Edda Birgisdóttir Skákmeistari Kópavogs Vignir Vatnar Stefánsson með bikarinn. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Merkir Íslendingar Jónas Pálsson Jónas Pálsson fæddist 26. nóvember 1922 í Beingarði í Hegranesi, Skag. Foreldr- ar Jónasar voru hjónin Páll Björnsson, f. 1881, d. 1965, bóndi þar, og Guðný Jónasdóttir, f. 1897, d. 1997, húsfreyja. Jónas varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, lauk MA-námi við Edin- borgarháskóla í sálarfræði og mannkynssögu og MA-námi í uppeldissálfræði við Colu- mbia-háskólann í New York. Eftir ýmis störf, m.a. sem blaðamaður og skólaráðgjafi, var Jónas forstöðumaður Sál- fræðideildar skóla í Reykjavík 1960-71 og hafði þá yfirumsjón með sálfræðiþjónustu grunn- skólanna í Reykjavík. Hann var skólastjóri Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla Íslands 1971-82, lektor við KHÍ 1982-83 og rektor KHÍ 1983-91. Jónas sat í fjölda nefnda og ráða, einkum um uppeldis- fræði og kennslumál sem og um önnur málefni er tengdust hans embættisstörfum. Eftir hann liggur fjöldi greina um skóla og uppeldismál. Hann hlaut fálkaorðuna og heiðursdoktorsnafnbót við KHÍ. Jónas eignaðist fimm börn með konu sinni, Ingunni Önnu Hermannsdóttur, en þau slitu samvistum. Jónas lést 23. ágúst 2014. Þarftu að láta gera við? FINNA.is Nýjar og Spennandi lausnir í umbúðum Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi Sími 540 1818 | midaprent@midaprent.is | www.midaprent.is Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.