Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Jóladagatölin eru komin! VIÐ erumRÆKTENDUR BREYTINGA Mig langar til að deila með ykkur bíltúr á Suðurlandi, á virkum degi, í rigningarhragl- anda. Fyrst nöldur, svo hrós og góðar ábend- ingar. Þá styttir upp og fer að sjá til sólar. Ekið er rakleiðis austur að Þjórsá, reyndar með töfum við Ölfusárbrú og umferð- arteppu á Selfossi. Við erum komin í Rangárþing, þar bíða okkar hraðamælingar á Mark- arfljótsaurum og rukkun á bíla- stæðagjaldi við Seljalandsfoss. Þá er haldið austur undir Eyjafjöll og allt austur í Mýrdal. Þar er hægt að komast á salerni við Reynisfjöru, gegn vægu gjaldi sem afgreitt er með kreditkorti, eins gott að muna pin-númerið þar á sprengnum. Um- ferðaröngþveiti einkennir staðinn og lítill friður á salerninu vegna fjölda þeirra sem þangað vilja komast. Nú er snúið við og ekið upp í Fljótshlíð, þaðan aftur niður á hring- veginn og upp í Hreppa. Við Gullfoss og Geysi er örtröð. Þá er bara að skella sér niður Grímsnes og við Kerið tekur stór rúta fram úr langri bílaröð og skapar lífshættu. Við Ker- ið bíður ný rukkun. Þá liggur leið á Þingvöll. Ný rukkun þar, vei þeim sem ekki borga, örygg- ismyndavélar út um allt. Erlendir ferða- menn spyrjast fyrir um hvar megi kafa. Rign- ingin ágerist og Öxará er í vexti. Þar var kon- um drekkt til forna, en sauðaþjófar dæmdir til gálgans. Best að hypja sig yfir Mosfellsheiðina og láta þetta duga. Nánast hvergi hitti maður fyrir íslensku- mælandi fólk, enda ekki við því að búast að Íslendingar leggi á sig svona lagað hringsól, hvað þá að landinn vinni í bransanum. Skálholti er hlíft við heimsókn, enda lítið að sjá þar nú orðið nema Dus- tera. Þar er víst rukkað líka og meira að segja biskupsfrú rukkuð þar fyrir örfáum árum, er hún vildi vitja leiðis í kirkjugarði staðarins. Heimkominn í bæinn hugsar mað- ur sitt, – en til að bæta úr skák vil ég deila með ykkur örlitum molum af jákvæðni. Guðni Ágústsson og Bjarni Harð- arson hafa haldið orðspori Suður- lands á loft um langa hríð, enda báðir sprottnir úr framsæknum jarðvegi landshlutans. Þá má og nefna Þórð heitinn Tómasson, Ragnar Böðv- arsson, Guðmund Daníelsson og fleiri góða penna. Þeir hafa í bókum sínum bent á marga áhugaverða staði, sem ekki beinlínis eru á gullna hringnum (les: alfaraleið.). Hafandi þjónað Sunn- lendingum um árabil sem héraðs- og afleysingaprestur vil ég nefna nokkra staði líka, og leggja þar með í púkkið. Þykkvibær er gersemi. Hábæj- arkirkja er yndisleg, – og umhverfið allt úti í Háfshverfi heimsóknar virði. Árbæjarhellisafleggjarinn vestan Hellu er ægifagur, að maður minnist ekki á vegarslóðann yfir hjá Steinkrossi og að Selsundi. Hagahringurinn svokallaði er líka vel falin gersemi, Holtin leyna á sér og hvergi betra að sötra nestiskaffi en þar. Vegurinn að Gamla Akbraut- arholti illfær, en þar á holtinu er ein fegursta útsýn sunnanlands. Árnessýslumegin er náttúrlega Hrunakrókurinn gamli alger útivist- arparadís, beygt til hægri við prests- setrið og ekið inn milli ásanna. Einn- ig er Laugakrókurinn fallegur, svo ekki sé minnst á eyðibýlið Jötu, en þangað er vandratað nú vegna þess að sú jörð er í eyði. Jata var talið fal- legasta bæjarstæði sunnanlands. Bæirnir á láglendi Guðna í Flóan- um, til dæmis Oddgeirshólar og Birnustaðir á Skeiðum, eru þó vel samkeppnishæfir, einnig bæirnir Fjall og Skollagróf í Hreppum, ægi- fögur bæjarstæði. Gaman er að skoða þetta allt sam- an, sums staðar er ljóst að landslagið hefur valið landnámsfólkið, en ekki fólkið staðina, svo öflug eru bæj- arstæðin. Bíltúr um Suðurland er gefandi, en varið ykkur í umferðinni. Séra Þórður gamli í Reykjadal var meðvitaður um hættur sem að veg- farendum kunna að steðja. Sagt er að hann hafi beðið Guð almáttugan að fara fyrir sig í afleysingu að hús- vitja sveitabæ einn á Suðurlandi, en sjálfur komst hann ekki vegna las- leika. Lagði klerkur hart að himna- föðurnum „að vara sig á henni Kot- laugakeldu“, en hún var farartálmi í vorleysingum í Hreppunum. Slysalaus umferð er allra hagur. Góða ferð. Fróðleiksmolar um perlur Suðurlands Skírnir Garðarsson » Bíltúrinn um Suður- land einkenndist af þungri umferð og við Kerið tók stór rúta fram úr … en Suðurland heillar samt. Skírnir Garðarsson Höfundur er prestur. Sem betur fer komst Gunnar Smári ekki á þing Íslendinga. Það gleymist alveg að fyrir hrun flaug hann með einkaflugvél milli landa í flottum jakka- fötum. Hann ætlaði að verða ríkur á Frétta- blaði sem hann ætlaði að gefa út á Norð- urlöndum en aldrei kom út. Þetta er bara eins og annað sem Gunnar Smári kemur nálægt. Nú reynir þessi maður að komast í hóp alþingismanna og honum meira að segja dettur í hug að hann geti gert Ísland að sósíalísku ríki! Því- líkur rugludallur. Helga Vala, sem hefur ekki þagað heldur blaðrað út í eitt um flóttafólk og hvernig farið sé með það, verður að gera þetta til að halda lög- fræðiskrifstofu sinni gangandi á kostnað skattborgara og eins er með Pírata, þar er einn sem er í sama bisniss og Helga Vala. Hagfræðingurinn Kristrún Frostadóttir, nýkjörin formaður Samfylkingarinnar, er svo sann- arlega með munninn fyrir neðan nefið og virðist vita allt, auðvitað þar sem hún er hagfræðingur. Allir þessir blessuðu fræðingar sem dælt er út úr háskólum landsins halda að þeir viti allt, en það er svo með hag- fræðingana að engir tveir reikna eins, samanber hag- fræðinga bankanna. Kristrún ætti að byrja á sínum eigin flokki og hreinsa til þar og þá spillingu sem þar er áður en hún ræðst á aðra. Getur það verið að innan raða Samfylk- ingarinnar og Pírata sé fólk sem á lög- mannsstofur og vinni eingöngu fyrir flótta- fólk á kostnað okkar skattgreiðenda? Sigmar Guðmundsson bullar og bullar, svarar ekki rétt er hann er spurður og virðist fastur í Íslands- bankamálinu. Hvar fékk Sigmar upplýsingar um að 80% þjóðarinnar væru á móti sölunni á Íslands- banka? Það er bara einhverju hent fram. Þvílíkt bull. Hafa alþing- ismenn ekkert annað að gera en ríf- ast og gagnrýna það sem gott er? Er ekkert jákvætt til í okkar landi og það hjá alþingismönnum? Þá er það Kastljós. Ég skil ekki útvarpsstjóra að leyfa því pólitíska vinstrafólki að vera í framlínu í Kastljósi. Sigríður Dögg er hreint og beint dóni og virðist ekki kunna sig og fór ekki dult með það með hverjum hún stæði í pólitík í viðtali við Bjarna Benediktsson. Þvílíkur dóni. Ég væri löngu búinn að reka hana frá RÚV ef ég væri útvarps- stjóri. Svo bættist ein í hópinn, kona frá Flokki fólksins, Ásta Lóa. Hún virt- ist vera mjög lögfróð og vitnaði í ríkisendurskoðanda um Íslands- bankamálið og sagði að lög hefðu verið brotin. Ég undirritaður hlust- aði á ríkisendurskoðanda sem taldi að lög hefðu ekki verið brotin. Hvers konar lið er þetta á okkar fyrrverandi hávirðulega Alþingi? Ríkisútvarpið er ekkert annað en vinstrisinnuð útvarpsstöð rekin með sköttum borgaranna. Varðandi flóttamannavandamálið þá eru lög sem útlendingastofnun fer eftir og það þýðir ekkert fyrir stjórnarand- stöðuna að vera alltaf með þetta tuð sem enginn hlustar á. Íslendingar ákváðu að taka vel á móti Úkraínufólki og við höfum gert það, öðrum á að snúa við á Keflavíkurflugvelli, svo ég tali nú ekki um þá sem koma vegabréfs- lausir og/eða með falskt vegabréf. Við íslenskir skattgreiðendur höfum bara ekki efni á að halda þessu fólki uppi og öllum þeim lögfræðikostn- aði sem þessu fylgir – og fer jafnvel til þingmanna Samfylkingar og Pí- rata eftir því sem á Facebook er skrifað. Friðrik Ingi Óskarsson » Samfylkingarfólk og Píratar ættu að byrja á að hreinsa spill- ingu í eigin flokkum. Friðrik Ingi Óskarsson Höfundur er eldri borgari. fio@fio.is Pólitíkin á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.