Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 49
Subway-deild karla
Valur – Höttur.......................................... 82:79
Keflavík – KR............................................ 91:75
Staðan:
Valur 7 6 1 627:571 12
Breiðablik 7 5 2 705:699 10
Keflavík 7 5 2 651:625 10
Njarðvík 7 4 3 590:551 8
Tindastóll 7 4 3 604:563 8
Haukar 7 4 3 621:600 8
Stjarnan 7 4 3 604:588 8
Höttur 7 3 4 593:593 6
Grindavík 7 3 4 559:594 6
ÍR 7 2 5 551:609 4
KR 7 1 6 644:734 2
Þór Þ. 7 1 6 677:699 2
1. deild karla
Skallagrímur – Ármann........................ 80:87
Selfoss – Fjölnir ....................................... 75:81
Þór Ak. – Álftanes ................................. 67:107
Sindri – ÍA............................................... 109:88
Staðan:
Álftanes 10 9 1 920:841 18
Sindri 10 8 2 939:821 16
Hamar 8 6 2 744:687 12
Selfoss 10 6 4 919:803 12
Hrunamenn 9 5 4 869:879 10
Ármann 9 5 4 808:789 10
ÍA 10 4 6 819:913 8
Skallagrímur 10 3 7 890:879 6
Fjölnir 10 2 8 844:900 4
Þór Ak. 10 0 10 736:976 0
Spánn
B-deild:
Alicante – Estudiantes ....................... 89:85
Ægir Þór Steinarsson skoraði 25 stig, tók
2 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal einum
bolta á 26 mínútum hjá Alicante.
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
Sjö nýliðar í
HM-hópnum
Sjö nýliðar eru í 35 manna hópi
sem Guðmundur Þ. Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, tilkynnti í gær sem
fyrsta hóp vegna heimsmeist-
aramótsins í Svíþjóð og Póllandi
í janúar. Það eru Valsmennirnir
Stiven Tobar Valencia, Arn-
ór Snær Óskarsson og Tjörvi
Týr Gíslason, Bjarni Ófeigur
Valdimarsson úr Skövde, Óskar
Ólafsson úr Drammen, Tryggvi
Þórisson úr Sävehof og Einar
Þorsteinn Ólafsson úr Fredericia.
Morgunblaðið/Eggert
Nýliði Arnór Snær Óskarsson hef-
ur leikið mjög vel með Val í vetur.
Ekki meira með í
riðlakeppninni
Neymar og Danilo, leikmenn
brasilíska karlalandsliðsins í
knattspyrnu, munu báðir missa
af næstu tveimur leikjum liðsins í
riðlakeppni HM í Katar.
Rodrigo Lasmar, læknir brasil-
íska liðsins, greindi frá því í gær að
Neymar hefði skaddað liðbönd á
hægri ökkla og missi því af næstu
tveimur leikjum Brassa.
Sömu sögu er að segja af hægri
bakverðinum Danilo, sem meiddist
einnig á ökkla í 2:0-sigrinum á Serb-
íu í G-riðlinum á fimmtudagskvöld.
AFP/Nélson Almeida
Meiddur Neymar meiddist á ökkla
gegn Serbíu á fimmtudagskvöld.
Sannfærð eftir einn fund
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Hlín Eiríksdóttir, til hægri, með Elísu Viðarsdóttur í landsliðs-
verkefni. Hlín er búin að semja við Kristianstad, eftir góð tvö ár hjá Piteå.
lDraumur að spila fyrir Elísabetu
lFjórði Íslendingurinn í Kristianstad
FÓTBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Þau eru búin að fylgjast með mér í
Svíþjóð, þar sem ég er búin að vera
að spila í sömu deild. Þau höfðu svo
samband við mig fyrir nokkrum vik-
um og sýndu mér áhuga. Eftir það
átti ég fund með þjálfaranum og var
sannfærð eftir einn fund,“ sagði Hlín
Eiríksdóttir, 22 ára landsliðskona í
fótbolta, í samtali við Morgunblaðið.
Hlín skipti á dögunum frá Piteå
til Kristianstad, en bæði lið spila í
sænsku úrvalsdeildinni. Gerði hún
tveggja ára samning við Kristian-
stad.
Alltaf litið upp til hennar
Elísabet Gunnarsdóttir hefur
þjálfað Kristianstad með mjög
góðum árangri frá árinu 2009. Hlín
er spennt að fá loksins að vinna með
Elísabetu, sem hún hefur litið upp
til allan ferilinn. Hlín er uppalin hjá
Val og var í yngri flokkum félagsins
þegar Elísabet þjálfaði meistara-
flokkinn.
„Ég var spennt fyrir þessu áður en
ég átti fund með henni, en Elísabet
er mjög sannfærandi. Ég þekki hana
ekki sérstaklega vel, þar sem hún
hefur aldrei þjálfað mig, en ég hef
fylgst með henni frá því ég var barn
og litið upp til hennar og þeirra leik-
manna sem hún hefur þjálfað, frá
því ég var lítil í Val. Það er draumur
að hafa hana sem þjálfara. Hún er
þekkt stærð í Svíþjóð og allir sem
fylgjast með fótbolta í Svíþjóð bera
virðingu fyrir henni,“ sagði Hlín um
löndu sína.
Bætt sig mikið í Svíþjóð
Hlín lék með Piteå við góðan
orðstír í tvö tímabil. Hún er ánægð
með tímann sinn hjá félaginu. Hún
var markahæsti leikmaður liðsins og
sjötta markahæst í deildinni í heild
með tíu mörk á nýliðnu keppn-
istímabili.
„Já ég er ánægð og sérstaklega
ánægð með hvernig ég hef þróast
sem leikmaður. Þetta var skemmti-
legur tími hjá skemmtilegu og góðu
liði. Liðið er betra en flestir á Íslandi
halda,“ sagði hún. En hvernig hefur
Hlín bætt sig sem leikmaður?
„Ég er með fjölbreyttari kosti en
áður en ég fór út. Ég get spilað sem
stór framherji og hlaupið með bolt-
ann, en ég var meira bara að hlaupa
með boltann áður en ég fór út. Allt
taktískt gengur betur núna og ég hef
bætt varnarleikinn mikið.
Þetta hefur verið frábært. Í Piteå
er mikil fjölskyldustemning utan
vallar. Það eru mikil samskipti á
milli leikmanna og ég hef eignast
marga vini. Í Svíþjóð er mikið lagt
upp úr að leikmönnum líði vel.“
Spennandi að spila með þeim
Elísabet er ekki eini Íslendingur-
inn sem Hlín gengur til liðs við.
Landsliðskonan Amanda Andra-
dóttir leikur með liðinu, eins og hin
bráðefnilega 16 ára Emelía Óskars-
dóttir. Þær léku báðar mikilvægt
hlutverk hjá Kristianstad á síðustu
leiktíð. „Þær buðu mig velkomna, en
annars hef ég lítið heyrt í þeim. Ég
þekki Emelíu mjög lítið en hún er
mjög spennandi leikmaður. Ég þekki
svo Amöndu aðeins úr landsliðinu,“
sagði Hlín, áður en hún viðurkenndi
að henni sé sama þótt það verði þrír
aðrir Íslendingar hjá liðinu á næsta
ári. „Satt best að segja er mér alveg
sama. Það verður spennandi að spila
með þeim, en það er óháð því hvað-
an þær eru,“ sagði Hlín hreinskilin.
Íslandsmeistararnir
skoruðu 45 mörk
Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals lentu
ekki í nokkrum vandræðum með
nýliða Harðar þegar liðin áttust við
í úrvalsdeild karla í handknattleik,
Olísdeildinni, á Ísafirði í gær.
Valur vann að lokum feikilega ör-
uggan 17 marka sigur, 45:28, eftir að
hafa verið tíu mörkum yfir í hálfleik,
25:15.
Þorgils Jón Svölu Baldursson var
markahæstur í leiknum með átta
mörk fyrir Val og þar á eftir kom
Benedikt Gunnar Óskarsson með
sjö. Vignir Stefánsson og Bergur Elí
Rúnarsson bættu við sex mörkum
hvor. Í marki Vals varði Björgvin
Páll Gústavsson níu skot og Motoki
Sakai sjö.
Suguru Hikawa var markahæstur
hjá Herði með sex mörk. Stefán
Freyr Jónsson varði 12 skot í marki
liðsins.
Valur er með sex stiga forskot á
Aftureldingu og FH á toppi deildar-
innar en Hörður situr sem fastast á
botninum með aðeins eitt stig.
Morgunblaðið/Eggert
8 Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði 8 mörk fyrir Val á Ísafirði í gær.
Nýliðarnir stóðu vel í
Íslandsmeisturunum
Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals
höfðu naumlega betur gegn
nýliðum Hattar, 82:79, þegar liðin
áttust við í 7. umferð úrvals-
deildar karla í körfuknattleik,
Subway-deildarinnar, í
Origo-höllinni að Hlíðarenda í
gærkvöldi.
Leikurinn var æsispennandi
hartnær allan tímann og komust
gestirnir frá Egilsstöðum nálægt
því að fara með sigur af hólmi.
Höttur komst í 79:75 þegar rúm
mínúta var eftir af leiknum en
frábær endasprettur Vals sá til
þess að stigin tvö enduðu hjá
heimamönnum.
Stigahæstur hjá Val var Pablo
Bertone með 22 stig og níu
stoðsendingar. Þar á eftir kom
Callum Lawson með 17 stig.
Obadiah Trotter var stiga-
hæstur í liði Hattar með 20 stig
og næststigahæstur var Timothy
Guers með 15 stig, auk þess sem
hann tók átta fráköst.
Valur er á toppi deildarinnar
með 12 stig, tveimur stigum fyrir
ofan Breiðablik og Keflavík í sæt-
unum fyrir neðan. Höttur er í 8.
sæti með 6 stig.
Í gærkvöldi fékk Keflavík einnig
KR í heimsókn og vann öruggan
91:75-sigur. Keflvíkingar náðu
mest 24 stiga forystu í fjórða leik-
hluta áður en KR lagaði stöðuna
örlítið undir blálokin.
Stigahæstur hjá Keflavík var
Ólafur Ingi Styrmisson með 15
stig.
Langstigahæstur í leiknum var
Elbert Matthews með 25 stig fyrir
KR. Tók hann sjö fráköst að auki.
Keflavík er í 3. sæti deildarinn-
ar með 10 stig, tveimur stigum á
eftir toppliði Vals. KR er áfram í
11. og næstneðsta sæti með aðeins
2 stig.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Hlíðarendi Gísli Þ. Hallsson og
Frank A. Booker eigast við í gær.
Knattspyrnumaðurinn Arnór Sveinn
Aðalsteinsson er genginn aftur í raðir
uppeldisfélags síns, Íslandsmeistara
Breiðabliks, eftir sex ára dvöl hjá KR.
Arnór Sveinn, sem leikur oftast í stöðu
miðvarðar, lék með Breiðabliki frá
2004 til 2011 þegar hann hélt til Höne-
foss í Noregi. Þar lék hann út árið 2013
og fór svo aftur til Breiðabliks árið
2014. Eftir þrjú tímabil í Kópavoginum
gekk hann til liðs við KR fyrir tímabilið
2017.Arnór Sveinn er 36 ára gamall og
varð Íslandsmeistari með Breiðabliki
árið 2010 og með KR árið 2019 auk
þess að verða bikarmeistari með Blik-
um árið 2009. Hann hefur leikið 240
leiki í efstu deild fyrir Breiðablik og KR
og skorað í þeim sjö mörk. Þá hefur
Arnór Sveinn leikið 12 A-landsleiki fyrir
Íslands hönd.
Knattspyrnumaðurinn Gareth Bale
lék í gær sinn 110. landsleik fyrir Wales
þegar liðið tapaði 0:2 fyrir Íran. Sló
hann þar með landsleikjamet þjóðar
sinnar. Bale á einnig markamet Wales
þar sem hann hefur skorað 41 mark.
Einar Karl Ingvarsson hefur samið
við knattspyrnudeild Grindavíkur um
að leika með karlaliðinu út tímabil-
ið 2024. Einar Karl, sem er 29 ára
miðjumaður, hefur undanfarin tvö
tímabil leikið með Stjörnunni eftir að
hafa leikið með Val um langt skeið þar
á undan. Hann er uppalinn hjá FH og
hefur einnig leikið sem lánsmaður hjá
Fjölni og Gr d ík þ
sem hann lé
og skoraði e
næstefstu d
sumarið
2014.
Grindavík
leikur
einmitt í
næstefstu
deild á
næsta tíma
og hefur ge
undanfarin
tímabil. Eina
hefur leikið
efstu deild o
í þeim 14 m
in av , ar
k níu leiki
itt mark í
eild
bili
rt
þrjú
r Karl
160 leiki í
g skorað
örk.