Morgunblaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 56
Í lausasölu 1.410 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Dúó Stemma í Vinaminni
Lokatónleikar Kalmans, listfélags á Akranesi, á þessu
ári verða haldnir á morgun, sunnudag, í Vinaminni
og hefjast þeir kl. 14. Eru það fjölskyldutónleikar og
mun tvíeykið í Dúó Stemmu, Herdís Anna Jónsdóttir
víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari,
bjóða upp á vetrarskammdegisdagskrá með jólalegu
ívafi fyrir alla fjölskylduna og leika sér með íslensk
þjóðlög, fara með þulur og sögð verður hljóðsaga um
vináttuna með hjálp allskyns hljóðfæra og hljóðgjafa.
ÍÞRÓTTIR
Hlín spennt að spila fyrir Elísabetu
„Þau eru búin að fylgjast með mér í Svíþjóð, þar sem
ég er búin að vera að spila í sömu deild. Þau höfðu svo
samband við mig fyrir nokkrum vikum og sýndu mér
áhuga. Eftir það átti ég fund með þjálfaranum og var
sannfærð eftir einn fund,“ sagði Hlín Eiríksdóttir, 22
ára landsliðskona í fótbolta, í samtali við Morgunblað-
ið. Hlín skipti á dögunum frá Piteå til Kristianstad,
en bæði lið spila í sænsku úrvalsdeildinni. Gerði hún
tveggja ára samning við Kristianstad. » 49
Dr. Dagný Kristjánsdóttir flytur
erindið „Jóhann Magnús Bjarnason
og þjóðernið“ og dr. Eyrún Eyþórs-
dóttir erindið „Brasilíufararnir og
afkomendur þeirra“ á fræðslufundi
Þjóðræknisfélags Íslendinga í
húsnæði utanríkisráðuneytisins á
Rauðarárstíg kl. 16.30 nk. miðviku-
dag.
Jóhann Magnús flutti með
foreldrum sínum og systur til Nýja-
Skotlands, Nova Scotia, 1875 og síð-
ar til Manitoba. Hann samdi leikrit,
ljóð og skáldsögur, en þar á meðal
eru sögurnar Eiríkur Hansson,
Brasilíufararnir og Í Rauðárdalnum.
Dagný hefur kynnt sér vel manninn
og líf hans. „Ég kafa svolítið í feril
hans og líf sem skálds og innflytj-
anda,“ segir hún um erindi sitt.
Fyrir um sjö árum sendi Dagný
frá sér bókina Bókabörn, þar sem
hún fjallar um fjóra frumkvöðla
íslenskra barnabóka; Jónas
Hallgrímsson, Nonna, Sigurbjörn
Sveinsson og Jóhann Magnús
Bjarnason, sem hefur verið nefndur
eitt helsta sagnaskáldið af íslensk-
um ættum í Vesturheimi.
Spurningar og svör
„Næstum allt sem ég fann um
hann kom mér á óvart,“ segir Dag-
ný. Hún veltir fyrir sér hvort hann
hafi verið jafn mikill þjóðernissinni
og sagt hafi verið og hvað hafi falist
í því hugtaki á hans dögum, en svör
sé að finna í bréfum hans og höf-
undarferli. Í kjölfarið vakni önnur
spurning. „Hvers vegna ákveður
metnaðarfullur höfundur, sem hefur
búið alla sína ævi erlendis, að skrifa
skáldverk sín á tungumáli sem fáir
skilja í landinu sem hann býr í? Var
hann lesinn í báðum löndum eða
gleymdist hann í þeim báðum? Hafi
það gerst hefur þeirri þróun verið
snúið við síðustu ár og nýr áhugi
vaknað á ritstörfum Jóhanns Magn-
úsar, dagbækur hans verið gefnar
út og skáldsögur hans lesnar í ljósi
nýrra kenninga um síðlendustefnu
og fleira.“
Eyrún varði doktorsritgerð sína í
mannfræði, Afkomendur Brasilíufar-
anna: Íslensk sjálfsmyndasköpun í
Brasilíu, við félagsfræði-, mann-
fræði- og þjóðfræðideild Háskóla
Íslands í janúar sl. og byggir erindið
á rannsóknum sínum. „Ég segi frá
rannsókninni, Brasilíuförunum
sjálfum, hvernig það kom til að þeir
fóru út, hvernig þeim vegnaði og
hvernig umgjörðin var, en síðan
fjalla ég um afkomendur þeirra í
samtímanum.“
Fimm Íslendingar fluttu til Bras-
ilíu 1863 og 34 voru í seinni hópnum
áratug síðar, en tveir þeirra létust
á leiðinni. Íslendingarnir töpuðu
tungumálinu, héldu ekki í hefðirnar
og misstu tengslin við ræturnar.
Skömmu fyrir nýliðin aldamót var
stofnaður félagsskapur íslenskra
afkomenda í Brasilíu. „Þeir hafa
lagt áherslu á íslenskan uppruna
sinn,“ segir Eyrún, sem bjó um
tíma í Brasilíu og fór auk þess í
tvær rannsóknarferðir til Curitiba,
þar sem Íslendingarnir settust að,
vegna doktorsverkefnisins.
lDagnýKristjánsdóttir ogEyrúnEyþórsdóttirmeð erindi
Brasilíufararnir
og JóhannMagnús
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
FræðimennDagný Kristjánsdóttir til vinstri fjallar um JóhannMagnús og Eyrún Eyþórsdóttir um Brasilíufarana.
BLACK
FRIDAY
25.-28. NÓV
20% AFSLÁTTUR
Í VEFVERSLUN
HR R R .9
SL 92
A K V 00
M L I - R
HRINGAR - . KR
M/AFSLÆ 9 R
ARMBÖND - VERÐ 25.900 KR
M/AFSLÆTTI - 20.720 KR
AR E .90
FSL 320
HÁLSMEN - VERÐ 12.900 KR
M/AFSLÆTTI - 10.320 KR