Morgunblaðið - 26.11.2022, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
DAGLEGTLÍF12
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
hafðu það notalegt
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifkop.is
Allar almennar bílaviðgerðir
Fjörugt tónleikahald í Skálholti á aðventu
ML-kórinn heldur jólatónleika í
Skálholtsdómkirkju í næstu viku
„Tónlistarlífið hér í skólanum er
öflugt sem skapar skemmtilegan
brag. Gleður og eykur samheldni
meðal nemenda,“ segir Jóna
Katrín Hilmarsdóttir, skólastjóri
Menntaskólans að Laugarvatni.
Í næstu viku heldur kór skólans
sína árlegu jólatónleika sem verða
í Skálholtsdómkirkju þriðjudaginn
29. nóvember og miðvikudaginn 30.
nóvember. Fyrri daginn verða tón-
leikar sem hefjast kl. 20 en síðari
daginn eru tvennir tónleikar, hinir
fyrri hefjast kl. 17:30 og hinir síðari
kl. 20. Efnisskrá tónleikanna tekur
mið af því að aðventan sé gengin í
garð og jólin nálgast, enda þótt lög
af öðrum toga heyrast einnig.
Í Menntaskólanum að
Laugarvatni eru nú tæplega 140
nemendur. Í ML-kórnum eru 131
þáttakandi sem gerir samanlagt
96% nemenda skólans. „Hér í skól-
anum eru tvær ef ekki þrjár hljóm-
sveitir nemenda, hér eru krakkar
sem eru að læra söng og sum
hafa tekið einsöng opinberlega.
Þetta er mjög skemmtilegt starf,“
segir Jóna Katrín. Öll innkoma fer
í ferðasjóð ML-kórsins en stefnt er
að ferð með kórinn til Bolzano á
Ítalíu í apríl næstkomandi.
Þann 7. desember verða í
Skálholti svo aðrir tónleikar, hvar
efnisskráin verður í anda aðventu.
Þar koma fram með ML-kórnum,
Vörðukórinn, sem er skipaður 50
söngvurum úr Árnes- og Rangár-
vallasýslu, Kirkjukór Kálfholts-
kirkju í Holtum og Barnakór Grunn-
skólans á Hellu. Eyrún Jónasdóttir
er stjórnandi kóranna allra en
auk hennar stjórnar Kristinn Ingi
Guðnason barnakórnum.
Skólasöngur Líf og fjör á æfingu austur á Laugarvatni núna í vikunni.
Í dag, laugardaginn 26. nóvember
milli klukkan 13-16, verður upphafi
aðventu fagnað í Garðabæ með hátíð
fyrir alla fjölskylduna. Í Hönnunar-
safni Íslands verður hægt að skapa
eigin jólamerkimiða og á Bókasafni
Garðabæjar gera jólaskraut úr
endurunnum bókum. Barnakór
Vídalínskirkju verður með tónlistar-
dagskrá á sviði á Garðatorgi 4. Ungir
tónlistarmenn leika jólalög en dag-
skránni lýkur með leik Blásarasveitar
Tónlistarskóla Garðabæjar. Að-
ventumarkaður þar sem handverk,
svo sem kerti, keramik, prjónles og
skart verður til sölu, fer einnig fram
á Garðatorgi 1-4. Síðan kl. 14:30
verður jólaball á Garðatorgi 7 þar
sem jólasveinar leiða dans og söng í
glerhýsinu við bókasafn bæjarins.
Fjölbreytt jóladagskrá í Garðabæ
í dag í upphafi aðventunnar
Þ
egar hvessir fer allt á
hreyfingu svo ekki veitir
af að fá sér göngutúr og
plokka upp rusl sem fokið
hefur,“ segir Þuríður Kristjáns-
dóttir. Hún býr í Grafarholti í
Reykjavík og er mikið á ferðinni
þar. Snemma á síðasta ári byrjaði
hún markvisst að tína upp rusl við
göngustíga og á opnum svæðum í
hverfinu.
,,Mér finnst ég sjá mun. Hverfið
er hreinlegra en áður, ég sé árang-
ur. Mér þætti hins vegar gaman ef
fleiri gæfu sig með þessu móti að
umhverfismálum í nærumhverfi
sínu,“ segir Þuríður. Hún var lengi
prófarkalesari á Morgunblaðinu
en lét af störfum fyrir nokkrum
árum. Því hefur hún rýmri tíma
fyrir sjálfa sig sem hún nýtir meðal
annars til gönguferða um nærum-
hverfi sitt.
Grímur og sígarettustubbar
„Heilsan er góð og mér finnst
mikilvægt að vera á ferðinni.
Þegar kórónuveiran var í
algleymingi og flest lokað var
alltaf hægt að fara út að ganga.
Í ferðum þá hér um Grafarholtið
rann mér til rifja að sjá rusl úti
um allt; plastdræsur, sælgætis-
bréf, matarílát, drykkjarmál,
dósir og flöskur. Einnig fatnað að
ógleymdum grímunum, tóbaks-
púðunum og sígarettustubbun-
um. Ég fékk mér plokktöng, tíndi
þetta upp og kom í rusladallana.
Þegar þeir fyllast sendi ég skila-
boð til þjónustumiðstöðvar borg-
arinnar sem sendir þá mannskap
til að losa,“ segir Þuríður.
Nyrst í Grafarholti, það er í
Úlfarsárdal, er Reynisvatnsvegur.
Þar er oft mikið af rusli, til dæmis
vegna nýbygginga, sem berst um
hverfið með norðanáttinni.
,,Mikið rusl safnast í trjálundinn
við leikskólann Reynisholt og
einnig er mikið um alls kyns drasl
við Vínlandsleið og Þúsöld. Ég hef
ekki haldið neitt bókhald yfir hvað
ég tíni upp og ekki fundið neitt
merkilegt svo ég muni. Jú, reyndar,
einu sinni fann ég 5.000-kall. Bestu
launin fyrir plokkið eru að fá frískt
loft með útiverunni og að búa í
hreinlegu umhverfi,“ segir Þuríður.
Þuríður plokkar
rusl í Grafarholtinu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umhverfi Þuríður tekur til hendi í þágu umhverfis í Grafarholtinu góða, þar sem hún býr. Úlfarsárdalur í baksýn.
Hrein borg og fögur torg! Í þannig umhverfi vilja vafalaust allir búa og í við-
leitni til þess er hver sjálfum sér næstur. Úthverfið hefur öðlast annan svip með
hreinsunarstarfi, þar sem í runnum finnast m.a. plastflöskur og peningaseðlar.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í
Reykjavík er nú kominn í jólabúning.
Ljósaskreytingar hafa verið settar
upp og upplagt er fyrir fjölskyldur,
segir í fréttatilkynningu, að rölta
um garðinn, dást að ljósadýrðinni og
komast í jólaskap. Útigrillin verða
opin og er tilvalið að grilla pylsur
eða sykurpúða og taka með sér heitt
kakó þegar veður er gott.
Ljósadalurinn verður opinn dagana
27. nóvember til jóla, á fimmtudögum
til sunnudags frá kl. 17 til 20. Gestum
er boðið í hringekjuna og hest-
vagnaferðir frá kl. 17. Þá verða einnig
matarvagnar í garðinum.
Jólagleði í Fjölskyldugarðinum