Morgunblaðið - 26.11.2022, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2022
Skapandi smiðjur hjá Dansgarðinum
Dansgarðurinn býður upp á
skapandi smiðjur fyrir fjölskyldur
í Breiðholti og aðra áhugasama
ámorgun, sunnudag, og næstu
tvo sunnudagamilli kl. 14 og 16.
Smiðjurnar eruætlaðar foreldr-
ummeð börn á aldrinum6-10 ára.
Þær fara fram í stúdíói Klassíska
listdansskólans íMjódd uppi á 3.
hæð, en inngangur er við hliðina á
Subway. „Listamennirnir semvið
höfummeð okkur í þessuævintýri
eru reynslumiklir á sínu sviði,“
segir í tilkynningu.
Ámorgun vinnaKatrínGunnars-
dóttir ogRánFlygenringmeð
dans og teikningu, eftir viku vinna
ValgerðurRúnarsdóttir og Svein-
björnThorarensen (Hermigervill)
með dans og tónlist og 11. desember
vinnur sirkushópurinnHringleikur
með dans og fimleika. „Að loknum
vinnustofumverður boðið upp á
kaffi, kakó og kex svo þátttakendur
fái tækifæri til að eiga óformlegt
spjall og kynnast.“
Vinnustofurnar eru ókeypis, en
skrá þarf sig fyrirframánetfanginu:
dansgardurinn@gmail.com.
„Fjölskyldur af erlendumuppruna
sérstaklega velkomnar. Þátttakend-
ur þurfa ekki að hafa grunn í dansi
eða íslensku til að taka þátt.“
Dúó Katrín Gunnarsdóttir og Rán
Flygenring kenna saman.
Jólasýning Grósku á Garðatorgi
Jólasýning Grósku, félags myndlistarmanna í
Garðabæ, verður opnuð á Aðventuhátíð Garðabæjar
á Garðatorgi í dag, laugardag, milli kl. 13 og 16. „Sýn-
ingin er tileinkuð jólunum í margbreytilegummynd-
um. Jólin eru hátíð ljóss og friðar, gleði og skemmt-
ana en stundum tengjast sorg og sársauki jólunum
því margir eiga erfitt. Jólin hafa verið haldin heilög
til að fagna fæðingu Krists en forðum var þetta helg
hátíð þar sem glaðst var yfir endurkomu sólar við
vetrarhvörf. Búast má við fjölbreyttri sýningu hjá
Grósku en auk þess semmálverk og myndir verða til
sýnis á flekum á Garðatorgi teygir sýningin sig inn
í versluninaMe&Mu. Listamenn frá Grósku verða á staðnum. Sýning
Grósku stendur fram yfir þrettándann,“ segir í tilkynningu.
Verk eftir Jón
Þorsteinsson.
Perlur eftir marga af helstu lista-
mönnum þjóðarinnar verða boðn-
ar upp á uppboði í sal hjá Fold
uppboðshúsi við Rauðarárstíg
á mánudaginn kemur kl. 18.30.
Boðin verða upp nokkur verk
eftir Kjarval, Ásgrím Jónsson,
Gunnlaug Blöndal og Gunnlaug
Scheving. Einnig má nefna verk
eftir LouisuMatthíasdóttur,
Ísleif Konráðsson og Stefán Jóns-
son – Stórval.
Gott úrval abstraktverka er
á uppboðinu eftir listafólk eins
og Kristján Davíðsson, Svavar
Guðnason, Nínu Tryggvadóttur,
Sigurbjörn Jónsson, Valtý
Pétursson, Karl Kvaran, Svavar
Guðnason og Eirík Smith. Auk
þess verða boðin upp verk eftir
m.a. Guðmund Thorsteinsson –
Mugg, Birgi Andrésson, Alfreð
Flóka, Tryggva Ólafsson, Einar
Jónsson, Ásmund Sveinsson,
Júlíönu Sveinsdóttur, Karólínu
Lárusdóttur og Baltasar Samper.
Skoða má verkin hjá Fold um
helgina milli kl. 12 og 16 báða
daga. „Fold uppboðshús vekur
athygli á að viðskiptavinir geta
lagt inn forboð á hefðbundin
uppboð í sal, rétt eins og á vefupp-
boðum, en einnig boðið í verk í
gegnum síma geti þeir ekki setið
uppboðið sjálft.“
Uppboð hjá Fold
Snati Mynd af íslenskum fjárhundi
eftir LouisuMatthíasdóttur.
Sumarferðin í
Hörpu á morgun
Sumarferðin
nefnist nýr
sönglagaflokk-
ur eftir Þorvald
Gylfason við
kvæði Kristjáns
Hreinssonar
sem fluttur
verður á sígild-
um sunnudög-
um í Norður-
ljósumHörpu
á morgun kl. 16. „Ljóðin og lögin
fjalla um söknuð, sorg og gleði,
viljann og vonina, ástina, lífið og
listina. Flokkurinn er framhald
fyrri flokks sem var frumfluttur
í Hannesarholti 2017, Sextán
söngvar fyrir sópran og tenór,“
segir í tilkynningu. Flytjendur
eru Hallveig Rúnarsdóttir sópr-
an, Elmar Gilbertsson tenór og
Snorri Sigfús Birgisson á píanó,
en þulur er Kristján Hreinsson.
Hallveig
Rúnarsdóttir
Hársbreidd í Skaftfelli
Hársbreidd eða Lines of Flight
nefnist sýning sem Nína Magnús-
dóttir opnar í Skaftfelli í dag kl.
16-18, en um er að ræða vetrarsýn-
ingu safnsins. Á sýningunni getur
að líta yfir 20 verk sem Nína, sem
búsett er á Seyðisfirði, gerði í
kjölfar aurskriðanna í desember
2020 sem leiddu til tímabundinn-
ar rýmingar Seyðisfjarðar.
„Listakonan og fjölskylda henn-
ar gátu ekki snúið aftur til heim-
ilis síns og vinnustofu í nokkra
mánuði og dvöldu í bryggjuhúsi
Roth-fjölskyldunnar á Seyðisfirði.
Þetta tímabil neyðarflutninga
var tími uppgjörs og leitar að
stöðugleika á óvissutímum. Ólíkt
fyrri verkum hennar í málaralist
og öðrum miðlum, notar Nína
hár sem efnivið í nýjustu verk-
um sínum; aðferð sem þróaðist
áreynslulaust út frá hugmyndinni
um hár sem hluta af líkamanum
en einnig efni sem er aðskilið hon-
um. Líkt og aðrar lífrænar trefjar
eins og ull eða silki, hefur hár
innri uppbyggingu sem tengist
hverjum einstökum uppruna. Við
gerð verkanna tóku hinir hárfínu
þræðirnir á sig karakter línuteikn-
inga. Sum verkanna sýna þrívíðar
„línur“ hársins á móti grófu, hvítu
yfirborði, á meðan önnur nota
liti í óhlutbundnum blæbrigðum
sem leika sér með spennuna milli
jákvæðs og neikvæðs rýmis,“ segir
í tilkynningu. Þar er minnt á að
í gegnum söguna hefur hár haft
menningarlega og táknræna þýð-
ingu í bókmenntum, goðafræði,
þjóðsögum, myndlist og dægur-
menningu.
Sýningin sem stendur til 29.
janúar 2023 er opin þriðjudaga til
sunnudaga milli kl.17 og 22.
Regla „Þetta snýst ekki um að beita hugmyndafræðinni og þvinga hárið und-
irmína stjórn; heldur frekar að koma einhvers konar reglu á ringulreiðina
og kanna nýja tegund af formi,” segir NínaMagnúsdóttir um verk sín.
S
kúli Sigurðsson gaf á
dögunum út sína fyrstu
skáldsögu, Stóri bróðir.
Sagan gerist á tveimur
tímabilum, annars vegar og að
meginefni til árið 2018 en hins
vegar í lok síðustu aldar. Sagan er
í upphafi sögð frá sjónarhóli lög-
reglu- og blaðamanna sem átta sig
fljótlega á því að árás á karlmann
sem á sér stað
við Rauða-
vatn kunni að
vera liður í
skipulagðri röð
líkamsárása
sama manns.
Ekki er einfalt
að gera frekar
grein fyrir
söguþræði án
þess að skemma fyrir tilvonandi
lesendum en í upphafi virðist sem
maður í hefndarhug sé óánægður
með verklag og áherslur yfirvalda
í ofbeldismálum og hafi tekið
lögin í sínar hendur, sé að útdeila
réttlæti með því að hafa hendur í
hári afbrotamanna og veita þeim
makleg málagjöld, ekki ósvipað
Leðurblökumanninum í samnefnd-
um bíómyndum.
Fljótlega bætast við upplýsingar
sem skýra málin betur og af stað
fer hröð og spennandi atburðarás.
Í upphafi bókar tileinkar höfund-
ur foreldrum sínum bókina „þrátt
fyrir efnið“. Það er ágætis viðvörun
áður en bókin er lesin. Efnið er
óhugnanlegt og ofbeldislýsingar
nákvæmar og góðar en hugsan-
lega ekki fyrir viðkvæma. Bókin
er ágætlega skrifuð og efnið gott.
Sagan er spennandi og það er stíg-
andi í henni allt frá byrjun til enda
en lokaofbeldissenan er rosaleg.
Samskipti löggæsluyfirvalda
og fjölmiðla eru með nokkrum
ólíkindablæ auk þess sem lögreglu-
stjórinn sem mest er fjallað um
virðist nánast of illa gefinn og frem-
ur ótrúverðugt að þannig innrætt
manneskja nái svo hátt innan lög-
gæslunnar. Höfundur virðist átta
sig á því og er með sínar skýringar
á tilvist viðkomandi í embætti.
Stóri bróðir er eins og áður sagði
fyrsta skáldsaga höfundar. Þetta
er spennandi glæpasaga sem er á
köflum nokkuð reyfarakennd en
er fyrir vikið meira krassandi og
skemmtanagildi talsvert. Það verð-
ur spennandi að lesa næstu verk
höfundar sem er mjög efnilegur.
Það væri ekki óhugsandi að Héðinn,
reyndur lögreglumaður sem gegnir
mikilvægu hlutverki í Stóra bróður
gæti verið áhugaverð aðalpersóna í
fleiri glæpasögur höfundar. Þar er
á ferðinni áhugaverð persóna. Stóri
bróðir er góð frumraun höfundar.
Krassandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spennandi Skúli Sigurðsson hefur ritferil sinn með krassandi glæpasögu.
BÆKUR
PÁLL EGILL
WINKEL
Spennusaga
Stóri bróði
Eftir Skúla Sigurðsson
Drápa 2022. Innb., 526 bls.