Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is
Jólagjafir
gæludýranna
færðu hjá
okkur
STAKSTEINAR
Leynimakk
meirihlutans
Sá fáheyrði atburður átti sér
stað í forsætisnefnd borg-
arinnar í gær
að fulltrúar
meirihlutans
neituðu tillögu
fulltrúa minni-
hlutans, Mörtu
Guðjónsdóttur,
um að taka á
dagskrá borg-
arstjórnar umræðu um málefni
Ljósleiðarans, dótturfyrirtækis
Orkuveitu Reykjavíkur. Mikil
leynd hefur hvílt yfir starfsemi
þessa fyrirtækis og áformuð útví-
kkun starfseminnar og gríðarleg
fyrirhuguð skuldsetning fæst
ekki rædd og upplýsingar þar um
eru ekki veittar fjölmiðlum og
þar með ekki almenningi, sem á
fyrirtækið.
Það voru fulltrúar Samfylk-
ingar, Framsóknarflokks,
Viðreisnar og Pírata sem stóðu
gegn því að málið fengist rætt.
Má furðu sæta að nýir borgarfull-
trúar Framsóknar láti véla sig til
þátttöku í þessu svo skömmu eftir
að flokkurinn kom að meirihlut-
anum. Hvers vegna í ósköpunum
vill flokkurinn taka á sig allar
syndir meirihlutans sem undir-
búnar hafa verið fyrir hans tíð
og hann ekki verið hafður með í
ráðum um?
Sú skjaldborg þagnar sem slegið
hefur verið um þetta mál sýnir
mikilvægi þess að ljósi verði varp-
að á hvernig að því hefur verið
staðið, hverjar forsendurnar eru,
hvaða fjárhagsskuldbindingar
eru í spilinu og hver áhættan er
fyrir Ljósleiðarann, Orkuveituna,
borgina í heild og þar með út-
svarsgreiðendur.
Og þetta er fjarri því eina málið
í borginni sem þolir ekki dags-
ljósið. Þau eru fleiri sem verður
að draga þangað fram.
Marta
Guðjónsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Leigubílafrumvarp samþykkt
lLeigubílstjórar boða tveggja sólar-
hringa verkfall í byrjun næstu viku
Alþingi samþykkti í gær ný lög um
leigubifreiðaakstur með 38 atkvæðum
gegn 10 en níu greiddu ekki atkvæði.
Bandalag íslenskra leigubílstjóra lýsti
því í kjölfarið yfir að það harmaði að
ekki hefði verið hlustað á þá er eiga
mest undir breytingunum og boðaði
að félagsmenn bandalagsins yrðu með
lágmarksþjónustu nú um helgina og
myndu leggja niður störf í tvo sólar-
hringa frá og með mánudagsmorgni.
Þingmenn stjórnarflokkanna utan
tveggja þingmanna Sjálfstæðisflokks,
Birgis Þórarinssonar og Arnars Þórs
Jónssonar, og þingmenn Viðreisnar
greiddu atkvæði með frumvarpinu.
Þingmenn Samfylkingar og Pírata
sátu hjá en þingmenn Flokks fólks-
ins og Miðflokksins greiddu atkvæði
gegn því.
Lögin taka gildi 1. apríl á næsta ári
en samþykkt var breytingartillaga frá
þingmönnum Samfylkingar, Fram-
sóknarflokks og Pírata um að lögin
verði endurskoðuð eftir tvö ár með
tilliti til reynslu af þeim breytingum á
regluumhverfi leigubifreiða sem þau
feli í sér.
Heildarendurskoðun laga um leigu-
bifreiðar hófst árið 2017 en í nóvem-
ber 2021 birti ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, rökstutt álit þess efnis að
íslenska ríkið brjóti á skyldum sín-
um gagnvart EES-samningnum,
sem einkum varðar rétt borgara til
að hefja og stunda sjálfstæða atvinnu-
starfsemi.
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Þingmenn samþykktu
frumvarp um leigubifreiðaakstur.
Aftur flogið til Eyja
Farþegar voru í flestum sætum,
báðar leiðir, þegar Ernir flaug til
Vestmannaeyja í gær. Með sérstök-
um stuðningi innviðaráðuneytisins
er Eyjaflug nú hafið að nýju eftir að
hafa legið niðri frá í maí síðastliðn-
um. Ernir mun fram á vor fljúga
þrisvar í viku til og frá Eyjum. Á
þriðjudögum eru ferðirnar tvær,
að morgni og undir kvöld, og geta
menn þá sinnt sínum erindum ann-
aðhvort í Eyjum eða Reykjavík og
komist heim að kvöldi. Á föstudög-
um er svo ein ferð fram og til baka.
„Við þurfum að hafa meira en eina
tengingu við fastalandið og fyrir því
finnum við vel þegar áætlun Herj-
ólfs raskast. Krafa okkar gagnvart
ríkinu um að tryggja reglulegar
flugsamgöngur milli Vestmannaeyja
og Reykjavíkur hefur því verið afar
þung,“ segir Íris Róbertsdóttir,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem
mætti á flugvöllinn í Eyjum í gær og
heilsaði upp á flugmenn Ernis.
„Með þeim ferðum sem nú hefjast
er ákveðnu lágmarki náð. Stóri
slagurinn er hins vegar eftir og sá
er að koma á ríkisstyrktu Eyjaflugi
til lengri tíma. Við höfum góðar
væntingar og góð orð um að svo
verði. Þá er ósk okkar sú að ferðir
verði daglegar; svo miklu máli
skipta góðar samgöngur íbúa og
atvinnulíf hér,“ segir bæjarstjórinn
um samgöngumálin. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jólaflug Flugmennirnir Bergur Már Bergsson, til vinstri, og Pétur Jökull
Jacobs í Eyjum í gær með Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra á milli sín.