Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 20
FRÉTTIR Innlent20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf krokur.is 522 4600 Taktu Krók á leiðarenda Krókur er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. á þinni leið Vesturhraun 5, 210 Garðabær Það sem af er ári eru um 40 íbúðir í byggingu á misjöfnu byggingarstigi í Sandgerði. Flestar íbúðir eru í Skerjahverfi sem er nýtt hverfi við Stafnesveg sunnan við knattspyrnuvellina sem fótboltafélagið Reynir notar. Í fyrsta áfanga eru eingöngu byggð parhús og fjölbýlishús. Þetta hverfi stendur hærra en önnur hverfi og er gott útsýni til sjávar. Það virðist vera landlægt að mygla finnist í leikskólum. Það fannst mygla í tveimur húsum við leikskólann Sólborg. Allt starf var flutt á aðra staði í bæjarfélaginu, ein deild fór í Samkomuhúsið, ein í Ráðhúsið og ein í grunnskólann. Svo voru keyptar gámaeiningar sem eru við veginn að Skerja- hverfi. Nú er búið að lagfæra hluta leikskólans Skýjaborgar og ein deild komin þangað, það er ljóst að viðgerðir og endunýjun á öllum búnaði mun kosta milljónir. Á þessu ári hefur verið unnið við að leggja ljósleiðara um allan bæ, meðal annars er búið að leggja ljósleiðara að Stafnesi. Þeir sem sáu um að tengja ljósleiðar- ann klipptu á símastreng sem lá út í Hvalsneskirkju, þar með fór öryggiskerfi í kirkjunni úr sambandi sem endaði með því að tæknimenn komu og tengdu inn á ljósleiðarann. Það hefði verið betra að þeir sem tengdu hefðu látið vita að breytingin yrði gerð. Fyrir nokkrum áratugum var Miðnes hf. í Sandgerði eitt af öflugustu útgerðarfyrirtækjum á landinu, félagið átti margar byggingar í Sandgerði sem í voru frystihús, stórt fiskverkunarhús og margt fleira. Í Keflavík áttu þeir beinamjölsverksmiðju, frysti- húsið Keflavík og Duus-húsin. Eftir að Miðnes sameinaðst HB á Akranesi voru miklar hugmynd- ir um allskonar framkvæmdir í Sandgerði og að endurnýja báta fyrirtækisins. Það fór allt á annan veg, allir bátar og togarar fóru frá Sandgerði og allt var selt þar. Um 300 manns misstu vinnuna þegar allt fór í burtu og allur kvótinn, sem Brim ehf. á nú. Nesfiskur hf. í Garði keypti stærstu byggingarn- ar fyrir um 20 árum og stofnaði fiskverkunina Ásberg ehf. Í nóvember síðastliðnum var skipt um nafn á fiskverkuninni og heitir hún í dag Miðnes ehf. Árið 2021 var byrjað á lagfær- ingum á 135 ára turni Hvalsnes- kirkju en veðrið var afskaplega leiðinlegt, sem tafði framkvæmdir mjög mikið. Á þessu ári var loks hægt að hefja viðgerðir aftur og það kom fljótlega í ljós að timbrið í turninum var víða ansi fúið. Allar skreytingar utan á turninum voru fúnar. Það sama var með gluggana. Allar skreytingar og gluggar voru smíðaðir hjá Staftré sem sá um endursmíði á turninum og þykir hafa tekist mjög vel til með endurnýjun turns Hvalsnes- kirkju. Einnig voru sett ný led-pollaljós frá Hvalsnesbænum að kirkjunni og taka þau sig vel út. Næsta verkefnið er að helluleggja frá sáluhliði að þjónustuhúsi og setja led-pollaljós við stíginn. Lionsklúbbur Sandgerðis hefur til margra ára boðið eldri borgur- um í kvöldverð og leikhúsferð. Tvö síðustu ár sá Covid-19 fyrir því að ekkert varð af jólahlaðborðinu. En 10. desember var boðið til veislu í Samkomuhúsinu í Sandgerði, 170 eldri borgarar mættu og gæddu sér á frábærum mat sem kom frá veitingastaðnum Sjávarsetrinu sem er við Sandgerðishöfn. Það hefur fjölgað í þessum hópi eftir að Sandgerði og Garður samein- uðust í sveitarfélagið Suðurnesja- bæ. Nýtt hverfi í Sandgerði ÚRBÆJARLÍFINU Reynir Sveinsson Sandgerði Morgunblaðið/Reynir Sveinsson EndurgerðVel hefur til tekist við endurgerð á turninum á Hvalsneskirkju. Fertugustu og fjórðu Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldn- ir í Langholtskirkju á morgun, laugardag, kl. 20 og á sunnudag kl. 17. „Jólasöngvarnir eru ómissandi liður í hátíðahaldi margra og nú gleðst kórinn yfir því að geta aftur haldið þá án nokkurra takmarkana og boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur í hléi, venju sam- kvæmt,“ segir í tilkynningu frá kórnum. Á tónleikunum koma fram Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili undir stjórn Magnúsar Ragnars- sonar og Sunnu Karenar Einars- dóttur. Einsöngvarar að þessu sinni verða Hildigunnur Einars- dóttir mezzósópran og Andri Björn Róbertsson bassi, en auk þeirra koma fram einsöngvarar úr kórun- um. Hljómsveitina á tónleikunum skipa þau Melkorka Ólafsdóttir á flautu, Matthías Birgir Nardeau á óbó, Frank Aarnink á slagverk og Richard Korn á kontrabassa. Mið- ar fást á tix.is og við innganginn. Jólasöngvar Kórs Langholts- kirkju í 44. sinn um helgina Jólastund Magnús Ragnarsson stjórnandi ásamt Kór Langholtskirkju. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur hafið undirbúning að sam- einingu átta héraðsdómstóla í einn héraðsdómstól. Forsenda samein- ingarinnar að mati ráðherra er sú að héraðsdómstóllinn hafi áfram starfs- stöðvar á landsbyggðinni þar sem nú- verandi dómstólar eru staðsettir. Efla þurfi og styrkja starfsstöðvarnar með nýjum verkefnum. Fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðherra að starfshópur um sameiningu héraðsdómstólanna, sem skipaður var í mars, hafi nú skil- að ráðherra skýrslu og megintillögur hópsins séu þær að héraðsdómstól- arnir verði sameinaðir í einn Hér- aðsdóm með yfirstjórn í Reykjavík og átta starfsstöðvar á þeim stöð- um sem héraðsdómstólarnir eru nú starfræktir. Störfum verði fjölgað á starfsstöðvum á landsbyggðinni og munu að lágmarki þrír starfa á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn hér- aðsdómari og einn dómarafulltrúi. Lagt er til að dómstjóri og varadóm- stjóri Héraðsdóms verði skipaðir til fimm ára úr hópi héraðsdómara af stjórn dómstólasýslunnar. Það verði gert að undangengnu hæfnismati í stað kosningar á meðal dómara. Starfshópurinn telur að þegar ráð- ist er í jafn miklar breytingar á upp- byggingu stofnana réttarkerfisins og hér er lagt til sé mikilvægt að gefinn verði rúmur aðlögunartími frá lög- festingu til gildistöku laganna eða allt að tvö ár. Er því lagt til að sameining héraðsdómstólanna taki gildi 1. ágúst 2024 en dómstjóri verði skipaður frá 1. mars 2024 til þess meðal annars að undirbúa sameininguna og starfsemi Héraðsdóms. lStarfsstöðvar áfram á landsbyggðinni Undirbýr sam- einingudómstóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.