Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR46 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 „Þórir Jóhann Helgason, lands- liðsmaður í knattspyrnu, meiddist á hné á æfingu með liði sínu, Lecce á Ítalíu, í fyrradag. Félagið skýrði frá því í gær að meiðslin væru ekki alvarleg en hann myndi væntanlega missa af tveimur fyrstu leikjum liðsins í A-deildinni eftir áramótin. „Sænski knattspyrnumaðurinn Emil Berger er farinn frá Leikni í Reykjavík en hann hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin tvö ár. Emil kveður Leikni sem næstmarkahæsti leikmaður liðsins í efstu deild og sá þriðji leikjahæsti. „Nökkvi Þeyr Þórisson, framherji Beerschot í Belgíu, og Aron Bjarna- son, kantmaður Sirius í Svíþjóð, eru nýliðar í landsliðshópnum í knattspyrnu sem Arnar Þór Viðars- son kynnti í gær vegna vináttuland- sleikja við Svíþjóð og Eistland sem fram fara á Algarve í Portúgal 8. og 12. janúar. Arnór Ingvi Traustason er leikjahæstur með 44 landsleiki en hann kemur aftur inn eftir nokkurt hlé, sem og Guðlaugur Victor Pálsson sem hefur leikið 31 landsleik en missti af leikjum liðsins í nóvember. Auk þeirra hafa aðeins Arnór Sigurðsson, Sveinn Aron Guðjohnsen, Andri Lucas Guðjohnsen og Davíð Kristján Ólafsson leikið fleiri en 10 landsleiki en hópinn í heild má sjá á mbl.is/ sport. „Atvinnukylfingurinn Guðmund- ur Ágúst Kristjánsson lauk í gær keppni á Opna Máritíusmótinu á afrísku eyjunni Máritíus, en hann náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi. Guðmundur lék vel í gær, var á 70 höggum, eða tveimur undir pari vallarins, en náði ekki að vinna upp slæman fyrsta hring á fimmtudaginn þegar hann lék á 78 höggum. Guðmundur var fjórum höggum frá því að komast í hóp 70 efstu og leika tvo síðari hringina en hann endaði í 104.-112. sæti af 156 keppendum á mótinu sem er liður í Evrópumótaröðinni. HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni karla, 16-liða úrslit: Eyjar: ÍBV – Valur ...................................... L14 KA-heimilið: Víðir – KA............................ L15 ÍSHOKKÍ Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – SA .......................... L17.45 Subway-deild karla Haukar – Grindavík ....................... (frl.) 78:81 Valur – Njarðvík ...................................... 88:75 Staðan: Keflavík 10 8 2 930:850 16 Valur 10 8 2 873:823 16 Breiðablik 10 7 3 997:973 14 Njarðvík 10 6 4 891:805 12 Haukar 10 6 4 856:832 12 Tindastóll 10 6 4 871:806 12 Grindavík 10 5 5 824:881 10 Stjarnan 10 4 6 874:894 8 Höttur 10 4 6 833:824 8 ÍR 10 3 7 811:888 6 Þór Þ. 10 2 8 979:1010 4 KR 10 1 9 887:1040 2 1. deild karla Þór Ak. – Skallagrímur ........................ 74:108 Hrunamenn – Fjölnir............................ 78:101 ÍA – Selfoss .............................................. 79:86 Sindri – Hamar ...................................... 96:101 Staðan: Álftanes 13 12 1 1224:1095 24 Hamar 12 9 3 1155:1041 18 Sindri 13 8 5 1213:1118 16 Selfoss 13 8 5 1186:1070 16 Skallagrímur 13 6 7 1191:1114 12 Hrunamenn 13 6 7 1211:1272 12 Ármann 12 5 7 1064:1092 10 ÍA 13 5 8 1084:1185 10 Fjölnir 13 4 9 1126:1184 8 Þór Ak. 13 1 12 1004:1287 2 Spánn B-deild: Alicante – Almansa............................. 101:55 Ægir Már Steinarsson tók 1 frákast og gaf 3 stoðsendingar fyrir Alicante á 16mínútum. Bikarkeppni karla 16-liða úrslit: ÍR – Selfoss ............................................... 34:28 Kórdrengir – Hörður .............................. 25:38 Grill 66 deild karla Fjölnir – Þór ............................................. 24:24 Staðan: HK 9 8 1 0 307:230 17 Valur U 8 6 1 1 243:214 13 Víkingur 9 5 1 3 275:264 11 Fjölnir 10 3 4 3 296:296 10 Þór Ak. 11 4 2 5 317:312 10 Fram U 9 4 1 4 266:263 9 KA U 8 3 2 3 249:250 8 Selfoss U 9 3 1 5 284:322 7 Haukar U 8 2 1 5 231:239 5 Kórdrengir 9 0 0 9 226:304 0 Danmörk Skjern – Tvis Holstebro...................... 33:28 Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir Skjern. Halldór Jóhann Sigfússon er aðstoðar- þjálfari Holstebro. Frakkland Ivry -- St. Raphaël ................................ 30:28 Darri Aronsson er meiddur og lék ekki með Ivry. Meistaradeild kvenna A-RIÐILL: París SG – RealMadrid ........................... 2:1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir var ekki í leikmannahópi París SG. Vllaznia – Chelsea ....................................... 0:4 Staðan: Chelsea 13, París SG 10, Real Madrid 5, Vll- aznia 0. B-RIÐILL: Wolfsburg – Slavia Prag ......................... 0:0 Sveindís Jane Jónsdóttir lék fyrstu 75mín- úturnar með Wolfsburg. Roma – St. Pölten........................................ 5:0 Staðan: Wolfsburg 11, Roma 10, St. Pölten 4, Slavia Prag 2. England B-deild: Birmingham – Reading ............................ 3:2 Jökull Andrésson var ekki í leikmannahópi Reading. Staða efstu liða: Burnley 22 12 8 2 43:23 44 Sheffield Utd 22 12 5 5 36:19 41 Blackburn 22 12 0 10 25:26 36 Norwich 22 10 5 7 30:23 35 Watford 22 9 7 6 28:22 34 Preston 22 9 7 6 22:21 34 Birmingham 23 8 8 7 26:22 32 Millwall 22 9 5 8 27:26 32 Reading 23 10 2 11 26:33 32 Holland B-deild: Eindhoven – Venlo.................................... 0:2 Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á hjá Venlo á 88. mínútu. Valur eltir Keflavík eins og skugginn Íslandsmeistarar Vals jöfnuðu topplið Keflavíkur að stigum á toppi Subway-deildar karla í körfubolta með 88:75-heimasigri á deildarmeisturumNjarðvíkur í 10. umferðinni í gærkvöldi. Valur og Keflavík eru bæði með 16 stig, en Keflavík vann leik liðanna fyrr í vetur og er því í toppsætinu. Njarðvík er áfram í fjórða sæti með tólf stig, eins og Haukar og Tindastóll, og í baráttu um heimavallarrétt í úrslitakeppninni. Njarðvík vann fyrsta leik- hlutann með tíu stigum og var með 37:33-forystu í hálfleik. Vals- menn voru hins vegar töluvert sterkari í seinni hálfleik. Callum Lawson skoraði 25 stig fyrir Val og Kristófer Acox gerði 15 stig. Nicolas Richotti skoraði 16 fyrir Njarðvík og þeir José Martin ogMario Matasovic 15 hvor. Framlengd spenna í Ólafssal Grindavík hafði betur gegn Haukum eftir framlengingu og mikla spennu í Ólafssal, 81:78. Grindavík var með forystuna nánast allan leikinn, en með góðum endaspretti tókst Haukum að jafna og knýja fram fram- lengingu. Þar reyndust Grindvík- ingar sterkari og unnu að lokum þriggja stiga sigur. Ólafur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur skoraði 32 stig og tók níu fráköst fyrir sitt lið. Darwin Davis var stigahæstur í liði Hauka með 23 stig. Haukar eru í fimmta sæti með 12 stig og Grindavík í sjöunda sæti með tíu stig. Virðast þau bæði ætla í úr- slitakeppnina, en ekki að berjast við efstu liðin. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÓlafssalurDamier Pitts sækir að körfu Hauka í Ólafssal í gær. Sannfærandi ÍR-ingar í úrvalsdeildarslag ÍR vann sannfærandi 34:28-heima- sigur á Selfossi í úrvalsdeildarslag í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta í gærkvöldi. Einu marki munaði í hálfleik, 14:13. ÍR skoraði fimm fyrstu mörk- in í seinni hálfleik og hélt undirtök- unum allt til loka. Dagur Sverrir Kristjánsson skoraði tíu mörk fyrir ÍR og Viktor Sigurðsson sex. Ólafur Rafn Gíslason varði 17 skot í mark- inu. Hannes Höskuldsson skoraði ellefu fyrir Selfoss. Þá vann Hörður, nýliði úr úrvalsdeildinni, þægilegan sigur á Kórdrengjum, botnliði 1. deildar- innar, 38:25. Var úrvalsdeildarliðið sterkara frá upphafi til enda. Jón Ómar Gíslason skoraði sjö mörk fyrir Hörð og þeir José Neto og Endijs Kusners fimm hvor. Eyþór Vestmann skoraði átta fyrir Kórdrengi. Átta liða úrslitunum lýkur í dag með leikjum ÍBV og Vals og Víðis og KA. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon NeglaDagur Sverrir Kristjánsson skoraði tíu mörk fyrir ÍR-inga gegn Selfossi í sannfærandi sigri Breiðhyltinga í úrvalsdeildarslag. Fetar Messi í fótspor Diego? lEða verða Frakkar afturmeistarar? Þriðji heimsmeistaratitillinn fellur sigurliðinu á morgun í skaut, hvort sem það verður Argentína eða Frakkland sem fær afhenta stytt- una eftirsóttu sem heimsmeistarar karla í knattspyrnu fá að hampa á fjögurra ára fresti. Liðin mætast í úrslitaleiknum í Katar klukkan 15 að íslenskum tíma. Argentínumenn hafa beðið eftir sínum þriðja titli í 36 ár, eða síðan Diego heitinn Maradona fór á kostum í Mexíkó sumarið 1986 og argentínska liðið vann Vest- ur-Þýskaland 3:2 í úrslitaleiknum. Áður vann Suður-Ameríkuþjóðin titilinn á sínum heimavelli árið 1978 eftir sigur á Hollandi í úrslitaleikn- um í Buenos Aires, 3:1. Frakkar hafa aftur á móti ekki þurft að bíða neitt. Þeir eru ríkj- andi heimsmeistarar frá 2018 og unnu þá Króata 4:2 í úrslitaleik í Moskvu. Áður hrepptu þeir titilinn á heimavelli árið 1998 með sigri á Brasilíumönnum, 3:0, í úrslitaleikn- um í París. Um leið er næsta víst að marka- kóngur HM kemur úr öðru hvoru úrslitaliðanna. Lionel Messi hefur skorað fimm mörk fyrir Argentínu á mótinu og Julian Álvarez fjögur en Kylian Mbappé hefur skorað fimm mörk fyrir Frakka og Olivier Giroud fjögur. Markahæstu menn Króatíu og Marokkó eru með tvö mörk og því þarf einhver að fara á kostum í bronsleiknum í dag til þess að ná markakóngstitlinum í sínar hendur. Króatar hafa áður fengið silfur (2018) og brons (1998) á HM og reyna því að ná í sín þriðju verðlaun á meðan Marokkómenn eru enn að skrifa söguna fyrir sjálfa sig og alla Afríku og freista þess að komast á verðlaunapallinn í fyrsta skipti. Bronsleikurinn í Katar hefst klukk- an 15 í dag. Verða allir með? Stærsta spurningin fyrir úrslitaleikinn á morgun er sú hvort liðin nái að tefla fram öllum sínum sterkustu mönnum. Veikindi hafa herjað á Frakkana, Dayot Upamecano og Adrien Rabiot gátu ekki spilað gegn Marokkó í undanúrslitunum og þeir Kingsley Coman, Raphaël Varane og Ibrahima Konaté hafa allir verið veikir. Frakkar hafa kennt of öflugri loftkællingu í Katar um slappleika sinna manna. Lionel Messi er sagður hafa spilað meiddur gegn Króatíu á þriðju- daginn og Argentínumenn standa á öndinni eftir fregnir af því að hann hafi ekki æft með liðinu í gær. Þeirra sóknarleikur snýst að miklu leyti um Messi, sem auk þess hefur skýrt frá því að þetta verði örugg- lega sinn síðasti leikur í lokakeppni heimsmeistaramóts. Margir líta á leikinn sem einvígi Messi og Mbappé, liðsfélaganna frá París SG, og viðbúið er að sá þeirra sem lyftir styttunni í leikslok verði jafnframt útnefndur besti leikmað- ur keppninnar. Þetta er 22. úrslitaleikur heimsmeistaramótsins frá því Úrúgvæ lagði Argentínu að velli í þeim fyrsta á heimavelli sínum í Montevideo árið 1930. Sigurliðið kemst í fjórða sætið yfir sigur- sælustu þjóðirnar frá upphafi en Brasilía hefur orðið fimm sinnum heimsmeistari, Þýskaland fjórum sinnum og Ítalía fjórum sinnum. HM Í KATAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is AFP/Franck Fife/Jewel Samad Heimsmeistari Lionel Messi og KylianMbappé eru ekki líklegir til að mæt- ast oft í návígjum en líklegir til að hafa afgerandi áhrif á úrslit leiksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.