Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 AKUREYRARKIRKJA | Helgistund í kapellu kl. 11. Prestur er Svavar Al- freð Jónsson. Ungar söngkonur syngja aðventu- og jólasálma. Organ- isti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Jólahelgistund á léttum og ljúfum nótum kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur jólasöngva úr ýmsum áttum undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. Jólasaga og jóla- íhuganir lesnar á milli söngva og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir flytur hugvekju. Kaffi og spjall eftir stund- ina. ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta og jólabarnaball kl. 13 í umsjá Emmu, Þorsteins og sr. Sigurðar. Jólasöngvar sungnir og jólasagan flutt, og jafnvel von á jólasveini líka. ÁSTJARNARKIRKJA | Jólastund fjölskyldunnar kl. 14. Við hvetjum barnafjölskyldur sérstaklega til að mæta. BESSASTAÐASÓKN | Litlu jól sunnudagaskólans í Brekkuskógum 1 kl. 11. Dansað í kringum jólatréð, jólasveinar koma í heimsókn og heitt súkkulaði og piparkökur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Örn Magnússon organisti leiðir tónlistina ásamt félögum úr kór Breiðholts- kirkju. BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Við fáum til okkar góða gesti, yngstu meðlimi Skóla- hljómsveitar Austurbæjar ásamt Snorra Heimissyni stjórnanda. Sól- veig Franklínsdóttir, Jónas Þórir, Katr- ín Eir Óðinsdóttir, Hanna Jónsdóttir og sr. María Guðrúnardóttir Ágústs- dóttir leiða stundina. DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Alfreð Örn Finnsson sókn- arpestur pédikar og þjónar fyrir altari. Sólveig Sigríður Einarsdóttir leikur á orgel og Steinunn Björg Ólafsdóttir leiðir almennan safnaðarsöng. Súpa að guðsþjónustu lokinni. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, prest- ur er Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn og Guðmundur Sigurðsson er organ- isti. FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðs- þjónusta kl. 17. Sr. Helga Kolbeins- dóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir tónlistina undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Eftir stund- ina verður boðið upp á kaffisopa og smákökur. GRAFARVOGSKIRKJA | Jólaball kl. 11. Jólasveinar koma í heim- sókn. Umsjón hafa sr. Guðrún Karls Helgudóttir og Ásta Jóhanna Harð- ardóttir. Undirleikari er Stefán Birki- sson. Selmessa verður kl. 13 í Kirkjuselinu. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Egg- ertsdóttir. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Guðsþjónustuform sem sækir fyrir- mynd til Kings College í Cambridge á Englandi. Lesnir eru ritningarlestar úr 1. Mósebók, spámannaritunum og guðspjöllunum. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt messuþjónum, Ásta Haraldsdóttir spilar og Kirkjukór Grensáskirkju syngur. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Jazzmessa sunnudag kl. 20. Prestur erSigurjón Árni Eyjólfsson. Kirkju- vörður er Lovisa Guðmundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Jóla- vaka sunnudag kl. 20. Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar og Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur, flytur ræðu. Bergmál, ungmennakór Hafn- arfjarðarkirkju syngur jólasöngva ásamt Unglingakór Hafnarfjarðar- kirkju undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Kári Þormar leikur á orgel og píanó og stjórnar söng Barbörukórsins. Kertaljós og hátíðleiki. HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Barnastarf. Prestur er Sigurður Árni Þórðarson. Kristný Rós Gústafsdóttir er djákni. Ragnheiður Bjarnadóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir, Sólveig Franklínsdóttir og María Elísabet Halldórsdóttir. Organ- isti er Björn Steinar Sólbergsson. Kórinn Graduale Futuri syngur og flyt- ur helgileik. Kórstjóri: Sunna Karen Einarsdóttir. Jólaball í safnaðarsaln- um eftir guðsþjónustuna. Sunnudag- ur kl. 17. Syngjum jólin inn. Sam- söngur. Ókeypis aðgangur. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjudagur Háteigskirkju. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Organisti er Arn- hildur Valgarðsdóttir. Félagar úr Kor- díu kór Háteigskirkju leiða messu- söng. Aðventusöngvar við kertaljós kl. 20. Aðventukvöld Háteigskirkju. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytur hug- vekju. Tónlistarhópurinn Umbra flytur tónlistaratriði. Kordía kór Háteigs- kirkju syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista kirkjunnar. Prestar: Eiríkur Jóhannsson og Helga Soffía Konráðdóttir. Léttar veitingar að athöfn lokinni. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa sunnudag kl. 17 í umsjón sr. Karenar L. Ólafsdóttur. Matthías V. Baldurs- son sér um tónlistarflutninginn ásamt sönghópnum Raddadadda. HVERAGERÐISKIRKJA | Jólastund fjölskyldunnar kl. 11. Barnakór Hveragerðiskirkju syngur. Jólasaga lesin. Dansað í kringum jólatré og jólasveinar koma í heimsókn. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11. Service. Transla- tion into English. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. Samkoma á spænsku kl. 16. Reu- niónes en español. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Fjöl- skyldusamvera kl. 13. Hugvekju flyt- ur Halldóra Ólafsdóttir. Gengið verð- ur í kringum jólatréð í lok stundarinnar og hver veit nema við fáum óvænta heimsókn. Að sam- verustund lokinni verður boðið upp á vöfflur og heitt súkkulaði með rjóma gegn vægu gjaldi, sem rennur til kaupa á nýjum gítar fyrir unglinga- starfið. KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Sel- messa í Kirkjuselinu kl. 13. Sungnir verða óskasálmar jólanna. Sr. Sig- urður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. KÓPAVOGSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni af 60 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Biskup Íslands vísiterar söfnuðinn, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestum og djákna safn- aðarins. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Hanna ÓConnor leikur á tropet. Eftir messu verður kaffi í safnaðarheimili og sögusýning opn- uð. LANGHOLTSKIRKJA | Sunnudaga- skóli og messa kl. 11. Sara Gríms- dóttir söngkona leiðir sunnudaga- skólann, Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar. Félagar úr Fíl- harmóníunni syngja undir stjórn og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Léttur hádegisverður að messu lokinni. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur er Jón Ragn- arsson. Organisti er Elísabet Þórð- ardóttir. Kór Laugarneskirkju. Messuþjónn er Jóhanna Sigmunds- dóttir. LÁGAFELLSKIRKJA | Aðventu- stund kl. 11. Sr. Arndís Linn leiðir stundina. Barnakórinn syngur undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur, kór- stjóra. Organisti er Þórður Sigurðar- son. Piparkökuskreytingar, mandar- ínur, djús og kaffi í skrúðhúsi eftir stundina. NESKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Org- anisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudaga- skólanum. Umsjón Kristrún og Ari. Kaffisopi eftir messu á Torginu. SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Aðventuguðsjónusta kl. 14. Nokkrir félagar úr Valskórnum syngja. Jón Guðmundsson leikur á flautu. Sigrún Steingrímsdóttir organisti stjórnar al- mennum safnaðarsöng. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari og predikar. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Jólaball, Siggi Már og Óli leiða stundina. Helgi Hannesson spilar á píanóið. Jólaball á eftir þar sem dansað verður kringum jólatréð. Guðsþjónusta kl. 13, sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Sveinn Arnar Sæmundsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Bókin um Nesstofu við Seltjörn. Þorsteinn Gunnarsson, höfundur hennar, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar og organistinn leikur á orgelið. Selkórinn syngur. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðar- heimili. Enskir jólasöngvar og lestrar kl. 13. Eliza Reid, forsetafrú og Carr- in F. Patman, sendirherra Bandaríkj- anna lesa ásamt 6 öðrum. Kamm- erkór kirkjunnar syngur undir stjórn Friðriks organista. Kaffiveitingar í boði sendiherra Bandaríkjanna. VÍDALÍNSKIRKJA | Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11. Garðakórinn syngur undir stjórn Jóhanns Bald- vinssonar og strengjakvintett út Tón- listarskóla Garðabæjar leikur. Sr. Guðrún Eggerts Þórudóttir og Jóna Þórdís Eggertsdóttir æskulýðsfulltrúi leiða stundina. Jólatónleikar Gosp- elkórs Jóns Vídalíns kl. 20 (sjá nánar á gardasokn.is og á Facebook-síðu kórsins). Sala aðgöngumiða á klik.is. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Jólaball nk. sunnudag kl. 11 í Ytri Njarðvík- urkirkju. Við dönsum í kringum jólatré og syngjum jólalög, jólasvein- ar koma í heimsókn. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Sauðárkrókskirkja ✝ Edda Íris Eggertsdóttir, alltaf kölluð Íris, fæddist 17. júlí 1942. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 21. nóvember 2022. Íris lauk gagn- fræðaprófi frá gamla Austurbæj- arskólanum og síðan hárgreiðslu- og meist- aranámi frá Iðnskólanum. Amma hennar og afi, Ísfold Helgadóttir og Eggert Bjarni Kristjánsson, tóku Írisi í fóst- ur. Móðir Írisar var Margrét Eggertsdóttir. Vitað var að faðir Írisar var hermaður og þeir fáu einstaklingar sem vissu um faðerni hennar fóru með þá vitneskju í gröfina. Uppeldissystkini og móð- sínum varð mikil og þótti henni alla tíð undurvænt um þau. Íris giftist Stefáni Eiríks- syni, f. 4. feb. 1938, árið 1962, en þau slitu samvistum 20 ár- um síðar. Börn þeirra eru: Bryndís Valberg, f. 24. nóv- ember 1961, og Stefán E., f. 10. janúar 1963. Barnabörn eru þrjú, Stefán Mekkinósson, Atli Rafn Stefánsson og Andr- ea Stefánsdóttir. Barna- barnabörnin eru líka þrjú. Fyrir tvítugt var Íris orðin tveggja barna móðir og þurftu þau hjónin að sjá fyrir fjölskyldunni. Íris kom upp hárgreiðslustofu heima í eld- húsinu og í áratugi rak hún sitt eigið hárgreiðslufyrir- tæki, fyrst heima og síðar setti hún upp stofu úti í bæ. Íris hafði mjög mikinn áhuga á og ánægju af tónlist. Hún spilaði smávegis á gítar, harmoniku og píanó og hafði fallega söngrödd. Það var lífsstíll Írisar að stunda lík- amsrækt og dansa. Hún var stórkostlegur dansari og sótti dansstaði reglulega. Í kringum 1990 fer Íris að draga sig hægt og rólega frá hárgreiðslunni og hugur hennar beindist að sjúkraliða- námi og ferðaþjónustu. Hún fór í sjúkraliðanám og vann í nokkur ár á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli. Íris lét draum sinn rætast og keypti hús í Svíþjóð. Húsið var sumarbústaður hennar í tæp 20 ár. Þetta var gömul járnbrautarstöð, sem Íris breytti og rak sem gistiheim- ili. Á sama tíma og hún bauð upp á gistingu fyrir erlenda ferðamenn í Svíþjóð á sumrin réð hún sig í vinnu hjá Fata- verslun Andrésar á Skóla- vörðustíg og vann þar við verslunarrekstur. Fyrir þremur árum greind- ist Íris með Lewy body- heilabilunarsjúkdóminn og lést síðan eftir baráttu við sjúkdóminn á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 21. nóvember 2022. Útförin fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 9. desem- ber 2022. ursystkini Írisar voru átta talsins. Á milli Írisar og móðursystkina þróaðist óslitin og einlæg vinátta. Í dag eru sjö þeirra látin. Eina móð- ursystirin sem eft- ir lifir er Ásta María Eggerts- dóttir, enda að- eins tveimur árum eldri en Íris. Urðu þær alla tíð ómissandi hvor annarri. Íris varð jafnframt þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast sex hálfsystkini og eru tvö enn á lífi; Hjördís Bára Sigurðar- dóttir og Grétar Sigurðsson. Þar var Íris elst í hópi og var oft kölluð til þegar líta þurfti eftir hópnum. Ábyrgðar- tilfinning Írisar gagnvart þessum litlu hálfsystkinum Elsku mamma mín, hvernig á ég að kveðja þig? Það er svo erfitt að sætta sig við að þú sért farin. Þú varst besta vinkona mín. Þú hvattir mig áfram í mínu lífi á öllum sviðum. Þú kenndir mér um gildi menntunar, þú kenndir mér öll heimilisstörf, bakstur og matseld. Þú kenndir mér að skíða, þú kenndir mér á hljóðfæri og þú kenndir mér að syngja öll gömlu lögin. Þú kenndir mér að meta leikhús, listsýningar og svo margt ann- að. Ég var fimm ára þegar ég stalst í kjólana þína og snyrti- vörurnar, því ég vildi vera eins og þú, alltaf smart til fara, hár- ið óaðfinnanlegt, andlitið snyrt og neglurnar málaðar. Þú varst alltaf svo mikil dama. Þú um- barst það að hárgreiðslustofan þín væri leikvöllur minn og vin- kvenna minna. Þá fór ég í þitt hlutverk. Við gátum endalaust leikið okkur saman og alveg frá því að ég man eftir mér varstu hlæjandi, lífsglöð og skemmti- leg. Þær eru óteljandi samveru- stundirnar okkar yndislegu, sem við áttu saman bæði hér á Íslandi og í Svíþjóð. Á hverju sumri í næstum 20 ár dvaldi ég og stundum sonur minn hjá þér við leik og störf í Svíþjóð. Það var unaður að fylgjast með því hve mikið þú elskaðir son minn, barnabarnið þitt Stefán Mekkinósson, og að sjálfsögðu hin barnabörnin. Ég er afskaplega þakklát fyrir það að börnin fengu að kynnast ömmu sinni eins og ég kynntist henni. Svo kom höggið. Lewy body, næstalgengasti heilabilunar- sjúkdómurinn á eftir alzheimer, stal nánast áratug af ævi þinni. Hún var þungbær sorgin sem fylgdi því að takast á við per- sónuleikabreytingar sem versn- uðu jafnt og þétt síðustu ár ævi þinnar. Ákvörðun að vista þig á hjúkrunarheimili var mjög erfið og samviskubitið yfir því að hafa brugðist þér beit fast. Það nísti hjarta mitt að fara frá þér, þegar þú vildir fá aðstoð við að strjúka frá hjúkrunarheimilinu, þegar þú horfðir á eftir mér ganga út um læstar dyr, á þessari lokuðu deild sem þú varst vistuð á, með biðjandi augu. Gerði Covid-faraldurinn dvöl þína á sjúkrahúsinu og hjúkr- unarheimilinu jafnframt mun erfiðari fyrir vikið þar sem að- gangur að þér var mjög tak- markaður og oft alveg lokaður. Þú varst hrædd, einangruð, kvíðafull og öryggislaus á þess- um tíma, sem jók enn meira á vanlíðan okkar systkina. Sænska þjóðlagið „Hvem kan segla forutan vind?“ kemur í hugann þegar ég hugsa til þín. Þú kenndir mér að vera sterk og fyrir vikið ég get siglt án vinds og róið án ára, en ég get ekki misst bestu vinkonu mína, án þess að fella tár. Ég elska þig, elsku mamma mín. Þín Bryndís Valberg. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum Írisi, erum þakklát fyrir að hafa verið heppin að eignast hana sem stóru systur og minnumst hennar sem lífsglaðrar, elsku- legrar konu sem vildi öllum vel með sinni jákvæðu kátínu og krafti til lífsins. Íris var vel greind, kvik, jákvæð og dug- lega kona og afar sorglegt að horfa á eftir henni hverfa frá okkur smátt og smátt af þeim sjúkdómi sem hrjáði hana síð- ustu æviárin sem var Lewy body dementia. Það eru margar minningarn- ar sem við áttum saman sem og sækja á hugann Það var alltaf gaman hjá okkur, allar vitleys- urnar sem okkur datt í hug og komu okkur sjálfum á óvart þegar við litum til baka, þá var hlegið þar til tárin runnu. Hún var systir okkar og þó að hún væri alin upp hjá móð- urömmu og -afa þá skipti það hreint engu máli. Við áttum alltaf vin og syst- ur í henni hvað sem á gekk enda mikill samgangur milli heimilanna. Í bernsku okkar systkina passaði hún okkur á meðan mamma og pabbi fóru til útlanda, gerðist þá ráðskona heima og fataðist hvergi sú ábyrgð þótt ung væri sjálf. Íris var stórhuga kona sem þorði að láta drauma sína ræt- ast, réðst í að kaupa sér stórt hús í Svíþjóð seint í lífinu sem hún átti í yfir tuttugu ár og notaði sem sumardvalarstað. Seinni árin eftir að hún hætti að vinna dvaldist hún frá vori að hausti, það var endalaus gestagangur, allir voru vel- komnir og á sinn glæsilega og höfðinglega hátt tók hún á móti gestum enda með afbrigðum gestrisin. Hún var sú gjafmildasta manneskja sem ég þekkti enda stórhuga í öllu sem hún gerði og datt í hug. Hún gat aldrei komið nema að færa manni eitthvað sem gladdi hvort sem það voru litlu börnin eða full- orðnir. Íris var svo mikil barna- gæla, fylgdist vel með öllum börnum sem fæddust í fjöl- skyldunni og var endalaust hreykin af börnunum sínum og afkomendum. Hún lét sig ekkert muna um að bjóða mér í siglingu á skemmtiferðaskipi um Karíba- hafið eitt árið með skemmti- legum fjölskylduvinum. Hún hætti ekki fyrr en hún gat laumað fallegum gullhring í öskju eitt kvöldið á koddann minn sem hún hafði séð mig handleika í verslun, þegar ég brást við sneri hún upp á sig og sagði: „Nú ég varð að gera eitt- hvað, þú vildir ekki leyfa mér að borga farið.“ Ég mun alltaf varðveita þennan fallega grip og minninguna um þessa skemmtilegu og ógleymanlegu ferð. Íris var mikill menningarviti og sótti leikhús og tónleika, safnaði málverkum, lék á nokk- ur hljóðfæri og dansaði eins og engill ásamt því að stunda reglulega íþróttir. Það var með ólíkindum hvað hún var fjölhæf manneskja. Það var venja að þegar fjöl- skyldan kom saman þá var sest niður, sungið, spilað á hljóðfæri ef um afmæli eða önnur tíma- mót í lífi fjölskyldunnar var að ræða, alltaf var glatt á hjalla. Íris var oftast í forsvari við þessar uppákomur enda með afbrigðum söngelsk og músík- ölsk, hafði hún mjög góða söng- rödd. Þökkum henni umhyggjuna í garð okkar langveika bróður Helga sem hún gleymdi ekki eftir andlát foreldra okkar, lagði mikið af mörkum til hans en Helgi lést árið 2019. Við erum svo rík af fallegum minningu um elskulega stór- huga og lífsglaða systur sem auðgaði líf okkar systkinanna sex. Elsku Bryndís Íris, Stefán Eiríkur og fjölskyldur, við sendum ykkur innilegar sam- úðarkveðjur. Með söknuði kveðjum við þig, elsku systir, hvíl í friði. Hjördís Bára (Bíbí) og Grétar Sigurðarbörn. Edda Íris Eggertsdóttir Hildur Gísladóttir ✝ Hildur Gísladóttir fæddist 26. apr- íl 1938. Hún lést 7. október 2022. Útförin var gerð 31. októ- ber 2022. Meira: www.mbl.is/andlat Minningar á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.