Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Side 12

Morgunblaðið - 17.12.2022, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 DAGLEGTLÍF12 Hafnarfjörður og Cuxhaven eru vinabæir Söguskilti við höfnina afhjúpað Ádögunum var afhjúpað söguskilti um vinabæina Hafnarfjörð og Cuxhaven í Þýskalandi, en samstarf hefur verið milli þessara tveggja staða allt frá árinu 1988. Skiltinu var valinn staður við „Kugelbake“ á strandstígnum við höfnina í Hafnarfirði. Í tilefni af 25 ára afmæli vinabæjar- samstarfsins, árið 2013, gaf þýska borgin Hafnarfjarðarbæ fjögurra metra háa timbureftirgerð af 30metra háu siglingamerki sem reist var árið 1703 við ströndina nyrst í Neðra-Saxlandi þar sem áin Saxelfur (Elbe) rennur í Norðursjóinn. Kugelbake er borgar- merki Cuxhaven líkt og vitinn er merki Hafnarfjarðar. Tilvalið þótti að staðsetja söguskiltið við siglingamerkið til þess að útskýra betur tilurð þess. Um textagerð á skiltinu sá Björn Pétursson bæjarminjavörður og ljósmyndir tók Ólafur Már Svavarsson. Sem dæmi um frekari afrakstur vinabæjarsamstarfsins má nefna að árið 1993 var vígt nýtt torg í miðborg Cuxhaven sem hlaut nafnið Hafnarfjör- durplatz og á Óseyrarsvæðinu í Hafnar- firði fékk við sama tækifæri ný gata nafnið Cuxhavengata. Strax við stofnun vinabæjarsamstarfsins árið 1988 var auk þess tekin ákvörðun um að stofna til svokallaðs „Cuxhavenlundar“ við Hvaleyrarvatn og hefur sú hefð skapast að þegar sendinefndir frá Cuxhaven koma hingað í heimsóknir gróðursetji fulltrúar þeirra hér tré þegar færi gefst. Auk þessa hefur samstarfið verið mikið og gefandi í æskulýðs- og íþrótta- málum,mennta- ogmenningarmálum, á stjórnmálasviðinu og að ógleymdu viðskiptalífinu. Þá hefur Cuxhaven árlega fært Hafnfirðingum að gjöf jólatré sem lýst hefur upp skammdegið í bænum í áratugi. sbs@mbl.is Strandstígur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Wilhelm Eitzen, formaður vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður, stödd saman við skiltið góða. Jólin alls staðar. Í fréttaveitu AFP birtist í hnotskurn samfélag hvers dags og allt fram streymir endalaust. Stjórnmál og stríð eru algengt fréttaefni en nú þegar komið er fram yfir miðjan desember fær heimurinn nýjan svip. Harðjaxlar fara í sparifötin og brosa framan í heiminn og börn fá blik í auga. Skraut á veggjum og ljósum prýdd stræti í borgum. Blítt lætur veröldin. sbs@mbl.is AFP/Toby Melville London Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, og eiginkona hans, Akshata Murty, litu á jólatréð í Down- ingstræti 10 eftir að hafa heimsótt matar- og drykkjarmarkað þar sem smáfyrirtæki kynntu framleiðslu sína. AFP/Arun Sankar Indland Skrautmunir af ýmsum gerðum fyrir jólahaldið á markaði í indversku borginni Chennai. Glys og mikill glæsileiki, að hætti Indverja, og ljósadýrð loftin fyllir, eins og segir í texta við frægt íslenskt jólalag. AFP/Stefano Rellandin París Breiðstrætið Champs-Elysees og Sigurboginn eru fagurlega skreytt, sem koma ætti Frökkum upp til hópa í stemningu og jólaskap. AFP/Sebastien Nogier Mónakó Albert prins af Mónakó og Charlene prinsessa af Mónakó með börnum sínum þegar ljós á jólatrénu við höllina í smáríkinu voru tendruð. AFP/Ahmad Gharabli Ísrael Jólasveinn í Jórsölum. Palestínumaðurinn Issa Kassissieh reið úlfalda á Olíufjallinu inn til borgarinnar og vakti mikla athygli. V Ö N D U Ð Í S L E N S K H Ö N N U N 11.300 KR 9.590 KR Jólatilboð C O L L E C T I O N S K A N N A Ð U O G L ÍT T U V IÐ B R A N D S O N . I S L Í T TU V I Ð Á VEF S Í ÐUNN I S KOÐAÐU V I N SÆLAR VÖRUR Á JÓLAT I L BOÐ I ÆÐISLEGU ÞRÚÐR LEGGINGS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.