Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.12.2022, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022 ✝ Steinar Stein- grímsson fæddist á Ingvör- um í Svarfaðardal 23. nóvember 1949. Hann lést á Dalbæ 10. desember 2022. Foreldrar hans voru Steingrímur Eiðsson, f. 1915, d. 1976 og Sigrún Árnadóttir, f. 1912, d. 1952. Alsystkini hans eru Árni Veigar, f. 1943, d. 2009. Eiður Valur, f. 1943, d. 2015. Júlíus Tryggvi, f. 1945, d. 1) Sólrún, f. 1973, hennar dóttir er Fanney Edda. 2) Stein- grímur Rúnar, f. 1974, kvæntur Guðrúnu Ernu Rúdolfsdóttur, f. 1973, dætur þeirra eru Laufey og Þórey. 3) Ólafur Ingi, f. 1977, kvæntur Dagbjörtu Sig- urpálsdóttur, f. 1978, börn þeirra eru Steinunn Birta, Verónika Jana og Sigurpáll Steinar. Steinar ólst upp á Ingvörum í Svarfaðardal og bjó þar allt þar til hann stofnaði heimili með eiginkonu sinni á Dalvík. Steinar útskrifaðist sem bú- fræðingur frá Hólaskóla en vann við ýmislegt á Dalvík, lengst af starfaði hann sem bíl- stjóri hjá Olíudreifingu. Útförin fer fram í Dalvík- urkirkju í dag, 17. desember 2022, klukkan 13.30. 2016. Una Sigríð- ur, f. 1946. Hallur, f. 1948. Hálfsystk- ini Sigrún Hulda Steingrímsdóttir, f. 1956. Björn Ein- arsson, f. 1958. Eftirlifandi eig- inkona Steinars er G. Verónika Kon- ráðsdóttir, f. 31. ágúst 1955, frá Skálá Sléttuhlíð í Skagafirði. Steinar og Veró- nika gengu í hjónaband 12. jan- úar 1974. Börn þeirra eru þrjú: Elsku pabbi. Nú ertu farinn frá okkur eftir langa og erfiða baráttu og þó það hafi vissulega verið sárt að horfa á þig fara þá var á vissan hátt erf- iðara að sjá þig veslast upp í veik- indunum, takandi allar þessar töflur svo ekki sé minnst á þau lyf sem var dælt í þig í þinni með- ferð. Og ég er nokkuð viss um að þegar öllu er á botninn hvolft þá sértu bara frelsinu feginn, því það var ekki þitt að vera upp á aðra kominn. Þú vildir aldrei vera með neitt vesen. Þú varst friðsæll í lífinu og friðsæll þegar þú fórst. Við dauðsfall svona náins ætt- ingja fer maður alltaf að rifja upp minningar og þær eru margar og skemmtilegar tengdar þér. Það var alltaf stutt í hrekkina og allt- af fjör í Ásbyrgi þegar við bjugg- um þar. Þú vannst alveg eins hestur og varst oft rétt nýkominn heim þegar fréttir byrjuðu og þeim máttirðu nú aldrei missa af. Oft kom það fyrir að þú dottaðir yfir þeim og þá sá maður sér oft leik á borði að vekja þig með ýms- um hrekkjum eins og að setja dós af hjartarsalti við nefið á þér og þá stóð ekki á því að þú vaknaðir og byrjaðir að skammast í okkur systkinunum, „Só, Stei, Ólafur!“ þó það hefði bara verið ég. Einu sinni notaði ég vatnsglas til að vekja þig og hafði aldrei fyrr né síðar séð þig hlaupa ganginn í Ás- byrgi eins hratt og þá. En hún var nú alltaf fljót að brá af þér reiðin. Pabbi var mjög virkur í alls kyns félögum og kórum eins og gangnamannafélaginu, hesta- mannafélaginu, kirkjukór, karla- kór og með félögum sínum í karlaröddunum sem syngja mik- ið við t.d jarðarfarir og önnur til- efni, og það var svo gaman og gott að heyra hversu vel metinn og liðinn hann var alls staðar, enda gat hann talað um allt við alla og alltaf syngjandi og trall- andi. Hvers manns hugljúfi og vinamargur eru orð sem lýsa honum vel. Hann var mjög stoltur af barnabörnum sínum, hvort sem það var fyrir tónlistariðkun, hestamennsku þeirra eða þegar þau komu með einkunnirnar sín- ar yfir til hans í lok anna. Þar náði hann góðri tengingu við þau. Þegar hann svo veiktist þá bjó hann vel að því að eiga konu, dóttur og tengdadóttur sem allar hafa unnið eitthvað við umönnun og held ég að honum hafi þótt það ómetanlegt. Það eru einmitt þær sem ég vil fá að þakka sérstak- lega fyrir allt sem þær hafa gert því ég veit að það gat oft reynt mikið á, þá sérstaklega andlega. Takk mamma, Solla og Dagbjört. Starfsfólk Dalbæjar sem og heimahjúkrun Dalvík fá líka bestu þakkir fyrir þeirra umönn- un og hlýhug. Hvíldu í friði pabbi minn. Þinn Ólafur Ingi (Óli). Elsku pabbi minn. Mikið finnst mér erfitt að skrifa minningar- grein um þig. Þú varst einstakur maður, duglegur og góður pabbi, og mik- ill afi barnabarnanna þinna sem þú varst svo stoltur af og elsk- aðir, og þau þig. Þú varst hrókur alls fagnaðar hvert sem þú fórst, hvort sem það var að syngja eða spjalla. Öllum líkaði við þig og er mér mjög minnisstætt þegar við fórum síð- ustu ferðina í Stekkjarhúsið, þar sem þið gangnamennirnir sunguð og svo var sungið meira. Það var ótrúlegt hvað þeir dáðu þig og litu upp til þín á marga vegu. Þú varst svo glaður eftir þessa heim- sókn, við vorum að hugsa um að skilja þig eftir þarna fram frá. Stoltur varstu af okkur systk- inunum, þótt stundum hafir þú skammað okkur: „Só- Stei- nei Ólafur!“ Þú varst svo grobbinn þegar Fanney mín fæddist og áttir þú mikið í henni og varst henni mik- ill lærifaðir. Hún leitaði mikið til þín og þú kenndir henni t.d. að skipta um dekk. Við mæðgur stöndum saman, söknum þín og elskum þig alltaf. Vonandi hafið þið Sveipur riðið saman inn í eilífðina. Þín besta dóttir sem þú átt, Sólrún. Nú þegar komið er að hinstu kveðjustund tengdaföður míns langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Steinari kynntist ég fyrir 24 árum þegar ég fór að venja kom- ur mínar í Ásbyrgi til yngsta son- ar hans, Óla. Mér leið strax vel í Ásbyrgi hjá þeim fjölskyldunni og man ekki eftir neinum vand- ræðalegheitum þegar ég var að hitta þau í fyrstu skiptin enda af- skaplega notalegt og afslappað andrúmsloftið á heimilinu. Steinar vann á þessum tíma sem bílstjóri hjá Olíudreifingu og voru dagarnir hans oft langir. Eftir vinnu fór hann fram í hest- hús og á kvöldin á kóræfingu hjá einhverjum af kórunum sem hann söng með. Mjög upptekinn maður og hafði mikið fyrir stafni og það var einmitt eins og hann vildi hafa það. Á frídögum þá grínuðumst við fjölskyldan hans oft með það að nú er Steinar kom- inn með „fara eitthvað veikina“ því honum fannst hann alltaf þurfa að vera að gera eitthvað eða fara fram í sveit eða hesthús og finna sér eitthvað að gera. Þegar barnabörnin fóru að bætast við þá nutu þau góðs af þessari atorku hans og þeyttust með honum um sveitina og fóru í heimsóknir á bæi eða brösuðu í hesthúsinu með honum og fengu kakó og kex uppi á kaffistofu á eftir í verðlaun. Hann var dásam- legur afi og hafði alltaf áhuga á öllu því sem barnabörnin tóku sér fyrir hendur í lífinu. Við Óli fáum honum aldrei nógu vel þakkað allt hestastússið sem hann og Nikka lögðu á sig með Steinunni þegar hún fór að keppa á hestum. Þau fylgdu Steinunni eftir á öll þau mót og sýningar sem þau gátu. Hann var einstakur maður, hann Steinar, með jafnaðargeð og skipti ekki skapi, syngjandi eða blístrandi var hann alltaf. Hann var vinamargur og hrókur alls fagnaðar þar sem hann kom. Það var alltaf gott að vera í kring- um hann og ég fæ mikla hlýju í hjartað bara við að hugsa um hans einstaklega góðu nærveru. Við Steinar vorum mjög góðir vinir og gátum alltaf spjallað saman um allt og ekkert. Skemmtilegast þótti okkur að ræða ættfræði þar sem ég vissi oft lítið sem ekkert en Steinar fyllti inn í eyðurnar hjá mér, hann var eins og mannleg Íslend- ingabók. Þegar heilsu hans fór að hraka fyrir tveimur árum þá urðu stundirnar sem við eyddum tvö saman fleiri en áður þar sem ég fylgdi honum oft í læknaheim- sóknir eða rannsóknir. Ég dáðist alltaf að hans já- kvæða hugarfari í gegnum þessi veikindi, það var aldrei neitt ves- en heldur jákvæð barátta í að halda áfram að lifa því Steinar elskaði lífið. Veikindin sigruðu hann því miður að lokum og hann fékk hvíldina í faðmi okkar fjölskyld- unnar sinnar. Ég er svo þakklát og heppin kona að hafa fengið að vera tengdadóttir þessa heiðurs- manns. Takk fyrir allt. Hvíldu í friði minn kæri tengdapabbi, þín verður sárt saknað. Dagbjört. Afi var einstaklega glaður maður. Við gátum alltaf treyst á hann til að koma okkur fjölskyld- unni, og þá sérstaklega barna- börnunum, til að hlæja. Við frændsystkinin ólumst öll upp við það að fara í hesthúsið með afa. Þar var Sæmundur í sparifötunum alltaf á boðstólum ásamt Swiss-Miss og stóðhesta- blöðum. Á köldum dögum sátum við uppi í kaffistofunni og spjöll- uðum um liðna tíð og afi átti nóg af sögum til þess að segja okkur. Á morgnanna sat hann með okkur krökkunum að borða morgunkorn, eða „Lucky í lófa“ eins og við kölluðum það, og oftar en ekki var hann í götóttri síð- brók einni saman, því engu mátti nú henda. Hann var hrekkjóttur og lét ekkert stoppa sig við að rugla í okkur krökkunum, nema þegar leið að kvöldfréttum, það var heil- agur tími. 10-fréttirnar fylgdu á eftir til öryggis, ef hann skyldi hafa misst af einhverju. Afi var vinmargur og mjög fé- lagslyndur. Hann gat spjallað við alla um allt og ekkert og drukkið kaffi á meðan. Hann var mannleg Íslendingabók og var kunnugur öllum staðháttum. Söngur eða flaut fylgdi honum hvert sem hann fór og röddin hans mun lifa í hjörtum Svarf- dælinga hárra og lágra, sem og öllum sem honum kynntust. Þín verður sárt saknað og við munum aldrei gleyma öllum stundunum okkar saman. Við pössum upp á ömmu fyrir þig. Eyjarnar þínar, Fanney, Laufey og Þórey. Elsku afi Steinar. Takk fyrir alla gleðina, fróð- leikinn, hláturinn og sönginn í gegnum árin. Það er ómetanlegt að hafa átt afa eins og þig, sem hafðir alltaf svo mikinn áhuga á því hvað við værum að brasa í líf- inu og varst alltaf með góð ráð ef Steinar Steingrímsson Nú hefur hún elsku besta Halla vinkona okkar kvatt þessa jarðvist og er flogin í sumarlandið þar sem við viljum trúa að hún sé laus við allar þjáningar. Halla var alltaf hörkudugleg, ósérhlífin, gríðarlega orðheppin, hlý og skemmtileg. Það var yndislegt að eiga hana að vini síðastliðin 42 ár. Á Bolung- arvíkurárum okkar kynntumst við Höllu fyrst, árið 1980, og frá þeim tíma höfum við átt margar góðar stundir. Við fórum í ferðir saman, á Hesteyri, fjölmargar sumarbú- staðarferðir en auk þess var alltaf yndislegt að koma við á fallegu heimili þeirra Baldurs í Gröf í Hvalfjarðarsveit. Það má með sanni segja að barnalán Höllu var mikið og miklir mannkostir í öllum hennar sex börnum. Um ævina vann hún margvísleg störf. Þegar hún fór að starfa á dekkjaverkstæði og keyra stóra vörubíla gekk hún svolítið fram af vinkonu sinni en hún skil- aði þessum verkum vel eins og öllu öðru sem hún tók að sér. Hinn 1. desember 2016 brunuðum við í af- mæli til hennar sem óvænt varð að brúðkaupi hennar og Baldurs, mik- ið var það falleg stund með ykkur. Símtalið sem við fengum frá henni fyrir sex árum var mjög erf- itt, Halla okkar komin með krabba- Halldóra Halla Jónsdóttir ✝ Halldóra Halla Jónsdóttir fæddist 1. desem- ber 1956. Hún lést 7. desember 2022. Útförin fór fram 16. desember 2022. mein og þá ákváðum við að reyna að styrkja hana eins og við gætum og hvetja hana í þeirri baráttu sem fram undan var. Við dáðumst að styrk hennar, dugnaði og krafti í þessari bar- áttu. Haustið 2017 má segja að styrkur- inn hafi snúist við er dóttir okkar greind- ist með erfitt krabbamein á 4. stigi, þá var svo sannarlega gott að eiga hana elsku Höllu að og verðum við henni ávallt þakklát fyrir alla hlýjuna og ástúð sem hún sýndi okkur árið sem dóttir okkar var mikið veik sem og eftir andlát hennar. Elsku Baldur, börn, tengdabörn og barnabörn, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ykkar vinir, Álfhildur og Þór Ólafur. Elsku hjartans vinkona okkar hún Halla er fallin frá og höggið er stórt og mikið. Þótt vitað væri í hvað stefndi var vonin alltaf innan seilingar. Halla var eiginkona, móðir, dóttir og góður vinur, hún vann mikið og var með stórt heimili en öllum þessum hlutverkum sinnti hún með mikilli prýði þannig að manni fannst stundum að hún hefði fleiri klukkustundir í sólarhringn- um en við hin. Elsku vinkona, það var mikið áfall þegar þú greindist með krabbamein fyrir rúmum sex árum en harkan og seiglan sem þú sýnd- ir í þessari baráttu var aðdáunar- verð. Þú mættir í alla hittinga og ferðir þótt heilsan væri ekki góð og þrekið lítið, hugsaðir alltaf fyrst og fremst um hvernig aðrir hefðu það, sem lýsti þér svo vel. Við vinkon- urnar munum ylja okkur við minn- ingarnar frá öllum okkar samveru- stundum og ferðunum okkar góðu með ykkur hjónum. Við minnumst einstakrar manneskju með frá- bæra húmorinn og dillandi hlátur- inn sem fékk alla til að hrífast með. Elsku Baldur, börnin öll, for- eldrar, systkini og allir sem eiga um sárt að binda, innilegar sam- úðarkveðjur. Minningin um yndis- lega Höllu okkar lifir. Þínar vinkonur, Ásdís, Ísabella (Bella), Hrafnhildur (Habbý), Bryndís, Þórunn, Hulda og Hrönn. Sá Guð er öllu ræður nú gefi miskunn sína, græði dýpstu sárin og þerri tár af kinn. Inn í myrkur dauðans mun endurminning skína um elskulega konu er kveðjum við um sinn. Hún átti bros og hlýju til allra á vegferð sinni yl og birtu færði í þennan jarðarheim. Því þökkum við af alhug þau alltof stuttu kynni og allar liðnar stundir, ei gleyma munum þeim. Henni fylgja óskir frá ótal vinahjörtum. Með ástvinum við hryggjumst en muna skulum þó að mynd hennar við eigum í minningunum björtum. Mildi faðir gef oss í hjörtun frið og ró. (Þórey Jónsdóttir) Þá er hún Halla vinkona okkar búin að fá hvíldina eftir vægast sagt hetjulega baráttu við hinn ill- víga sjúkdóm krabbamein, sem hún ætlaði svo sannarlega að sigr- ast á. Við vinkonurnar vorum tíu saman í saumaklúbbi frá því við vorum unglingar en Halla er sú þriðja sem fer úr krabbameini úr þessum hópi. Það er erfitt að kveðja góða vinkonu sem var að okkar áliti á „besta aldri“ og átti svo margt ógert og margt til að lifa fyrir. Það er ótrúlega dýrmætt og gott að hittast reglulega og eldast saman í góðum vinahópi, það er okkar saumaklúbbur svo sannar- lega. Nú þegar við kveðjum Höllu vinkonu okkar er ekki hægt annað en dást að því ótrúlega þreki og þeirri jákvæðni sem einkenndu hana allan þann tíma sem hún barðist við þennan sjúkdóm, sem eru orðin meira en sex ár. Það var ekki hennar háttur að kvarta en þess í stað gerði hún óspart grín að sjálfri sér og sínum óförum. Þenn- an yndislega húmor, kraft og ósér- hlífni hefur hún alltaf haft en síð- ustu mánuði fannst okkur hún fá einhverja óútskýrða andlega orku sem gerði henni kleift að fara það sem hún ætlaði sér og njóta þess sem í boði var þótt máttfarin væri, því hún ætlaði sko að nýta tímann vel. Hún mætti alltaf í saumaklúbb eða morgunstund ef hún bara gat staðið og þá var sko ekki töluð vit- leysan, slegið á létta strengi og mikið hlegið. Hún hafði einstakt lag á að sjá spaugilegar hliðar á líf- inu og gerði óspart grín að sér og sínum. Í gegnum tíðina höfum við farið í margar ferðir og gert margt skemmtilegt saman og eigum við eftir að sakna þess að hafa ekki þennan gleðipinna með í hópnum, sem alltaf hélt uppi fjörinu. Að fylgjast með henni í þessu stríði hefur kennt okkur margt, t.d. að meta lífið og taka ekki hlutum sem sjálfgefnum. Við eigum eftir að sakna þessara stunda en munum ylja okkur við þær góðu minningar sem við eigum frá þeim. Ekki er hægt annað en að minn- ast á manninn hennar Höllu, hann Baldur, sem er búinn að standa með henni sem klettur í þessu stríði, alltaf á vaktinni og vildi helst ekki af henni líta. Við saumaklúbbssystur og mak- ar okkar vottum Baldri, börnum og barnabörnum, foreldrum hennar og systkinum okkar innilegustu samúð og biðjum góðan guð að styrkja þau. Guðný, Ólöf, Jóhanna Sigríður (Hanna Sigga), Kristín (Stína), Guðfinna, Björg og Ólöf Auður (Lóa). Nú þögn er yfir þinni önd og þrotinn lífsins kraftur. Í samvistum á sæluströnd við sjáumst bráðum aftur. (Ingvar N. Pálsson) Í dag kveðjum við með trega og þakklæti góða æskuvinkonu okkar hana Höllu Jóns. Þessi góði vinskapur okkar hófst þegar við vorum litlar stelpur sem fæddar eru á árunum 1956 og ’57 og bjuggum við á Höfðabraut, Garðabraut, Sandabraut og efst á Skagabraut og erum 10 talsins. Að eiga svona góðan og tryggan vina- hóp sem spannar 50 ár+ er ekki sjálfgefið. En það er alveg sama hvort við hittumst daglega, á mán- aða eða jafnvel ára fresti, það er alltaf eins og það hafi verið í gær. Halla er önnur í þessum vinkvenn- ahópi sem kveður en Lóa Jóns kvaddi árið 2013. Svo tóku unglingsárin við með miklum hvelli og mikið sem var gaman hjá okkur. Sveitaböllin stunduð af miklum móð og lítið slegið af þar. Minnisstæðar eru margar ferðir á sveitaböllin með rútu og þá var sungið eins og eng- inn væri morgundagurinn, enda við ungar og allt var tímalaust, engar áhyggjur, bara skemmtun. Svo tók alvaran við, barnastúss og bleyjur, en vinskapurinn gleymist ekki. Svo fyrir rúmum þremur árum fórum við nokkrar af okkur, sem ekki vorum í vinnu, að hittast viku- lega með prjónana okkar og spjalla og hafa gaman og eru þess- ar stundir okkur ógleymanlegar. Við skruppum í „bæjarferðir“ í Borgarnes, til Reykjavíkur og á Selfoss þar sem við skoðuðum prjónabúðir og fengum okkur kaffi og kruðerí. Í þessum vikulegu hittingum var auðvitað mikið hlegið, rifjaðar upp skemmtilegar sögur af okkur á unglingsárunum, og mikið sem það var alltaf gaman og svo skipt- umst við á uppskriftum og þáðum ráð ef upp kom eitthvert „prjó- navesen“. Þar var hún Halla okkar með ráð undir rifi hverju enda mikil prjóna- og hannyrðakona og sat sko ekki með hendur í skauti, nei aldeilis ekki, því hún var þekkt fyrir vandvirkni, iðjusemi og dugn- að. Við vissum allar að þessi dagur kæmi og komið væri að leiðarlok- um, en maður er aldrei tilbúinn, enda sannaði Halla það svo sann- arlega með sínu baráttuþreki, von og jákvæðni hvað það getur hjálp- að til, enda átti hún nóg af því. Að leiðarlokum erum við fyrst og fremst þakklátar fyrir allt það sem hún var okkur, fallega vin- skapinn, tryggðina, hlýjuna, hlát- urinn (maður minn) og ævarandi væntumþykju og ást í rúm 50 ár. Hennar verður sárt saknað, en minningin um yndislega vinkonu mun lifa um alla eilífð. Við biðjum algóðan Guð að styrkja fjölskyldu hennar og um- vefja þau á þessum erfiða tíma. Guð blessi minningu þína elsku vinkona. Hanna Sigga, Sigþóra, Guðfinna, Sigga og Ásdís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.