Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 48
MENNING48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2022
Ljósmyndarinn Orri Jónsson kallar
ljósmyndabókina Fangið þitt er
svo mjúkt það er eins og lamba ull
„blygðunarlausa ástarjátningu“
til fjölskyldunnar, en hann vinnur
með ljósmyndabókaformið á hátt
sem er sjaldséður í íslenskri ljós-
myndasenu.
Söguna af tildrögum bókarinnar
rekur hann aftur til þess þegar
hann fór fyrir nokkrum árum í
meistaranám til Toronto og flutti
með fjölskyldunni þangað þrátt
fyrir að hafa lofað sjálfum sér að
setjast aldrei aftur á skólabekk.
„Mér finnst það yfirleitt ekki
gjöfult umhverfi fyrir skapandi
hugsun, og ég fann það einmitt
fljótt að nálgunin og þankagangur-
inn í þessu námi var rosalega
pragmatískur. Upphafið og endir-
inn á öllum verkefnum og allri
umræðu er einhver texti, krafan
er að þú vitir hvað þú ætlir að gera
og útskýrir það í texta. Farir svo
af stað og framkvæmir eitthvað
með myndmiðil sem þú útskýrir
svo í texta eftir á. Þú einhvern
veginn leggur allt upp og réttlætir
allt með textaskrifum. Mér fannst
þetta eitthvað svo öfugsnúið í
myndlistarnámi og hætti því, kort-
er í útskrift.“
Stendur hjarta mínu nærri
Þá flutti fjölskyldan til Mexíkó og
dvaldi þar í nokkra mánuði í litlu
þorpi. Þar varð fyrsti vísirinn að
bókinni til.
„Þar náði ég einhverjum fókus.
Það sem mig langaði að gera,
sérstaklega eftir reynslu mína af
náminu í Toronto, var að vinna
með eitthvert efni sem skipti mig
máli. Ekki kokka upp eitthvert
konsept og fara svo og skjóta það,
heldur vinna með eitthvað sem
stendur hjarta mínu nærri. Þá lá
beint við skoða hvað ég hef verið
að mynda í gegnum tíðina og hvaða
myndir mér þótti enn vænt um,
burtséð frá því hvort þær pössuðu
inn í eitthvert prójekt eða ekki.“
Að lokum segir hann þó að til hafi
orðið verkefni þegar hann fór að
sjá þráð í gegnum þær myndir sem
hreyfðu við honum.
„Þannig varð þessi bunki af
myndum til. Fyrst var hann mjög
stór en svo eimaði ég hann niður
með alls konar hrókeringum.
Þetta eru myndir sem ná yfir 32
ára tímabil og þetta er að hluta til
leikur að tímaskynjun. Myndirnar
eru að stórum hluta mannamyndir
af minni kjarnafjölskyldu og af því
umhverfi þar sem við höfum búið
okkur heimili, á Íslandi, New York,
Toronto og Mexíkó.“
Upplifunin dýnamískari
Spurður út í það hvaða hlutverk
hinar ólíku staðsetningar leika í
verkefninu segir Orri: „Engar af
þessum myndum eru teknar í öðr-
um tilgangi en af þörf fyrir að muna
og af væntumþykju, og ánægjunni
að mynda. Þær eru frjálsar að því
leyti. Staðsetningarnar koma ein-
faldlega til af því að við höfum búið
á nokkrum stöðum í gegnum tíðina,
en þegar þær koma saman þá held
ég að það gefi aðra vídd og opni
á einhverja upplifun sem verður
kannski dýnamískari en ef þetta
væri allt tekið á sama stað. Ég vona
það. En það er ekkert plan eða plott
á bak við þessa ólíku staði, þetta
bara liggur í hlutarins eðli því þetta
eru heimili okkar.“
Þessi ljósmyndabók er ekki sú
fyrsta sem Orri setur saman. Bók
hans Interiors var gefin út hjá hinu
virta þýska ljósmyndaforlagi Steidl
árið 2011. Þar var myndefnið íslensk
eyðibýli.
„Það er allt annað viðfangsefni og
líka bara allt önnur nálgun. Þessar
tvær bækur eru fáránlega ólíkar.
Interiors er í rauninni mjög einföld
bók. Það væri hægt að segja að hún
sé einfaldlega arkíva af einu mótívi.
Allar myndirnar eru skotnar á
sama format, þær eru allar í lit
og allar jafn stórar á síðunni. Svo
það er engin narratíva í þeirri bók
og enginn tímaframvinda. Verkin
innan bókarinnar eru því svolítið
tímalaus.“ Hann segir því það hafa
verið mun snúnara að setja hina
nýju bók saman en að sama skapi
skemmtilegra.
Ljósmyndabókin ber hinn langa
titil Fangið þitt er svo mjúkt það er
eins og lamba ull og spurður út í
hann segir Orri:
„Það kom til greina á tímabili að
láta söguna á bak við titilinn vera
einhvers staðar í bókinni en svo
ákvað ég að það væri skemmtilegra
að hafa enga skýringu á bak við
hann. En sagan á bak við titilinn
er að þegar við bjuggum síðast í
Kanada þá vaknaði yngsti sonur
okkar upp um miðja nótt og þurfti
að fara á klósettið. Og ég rumskaði
og tók hann í fangið. Baðherbergið
var á neðri hæðinni svo ég þurfti
að halda á honum niður þröngan
stiga. Hálfa leið niður stigann þá
þrengir hann faðmlagið og muldrar
þetta upp úr svefni: „Fangið þitt
er svo mjúkt, það er eins og lamba
ull“. Þetta er eitt það fallegasta sem
hefur verið sagt við mig.“
Hverfur frá kaldri nálgun
Ástin á fjölskyldunni fær að vera í
forgrunni í verkinu. „Mig langaði að
þetta væri blygðunarlaus og kald-
hæðnilaus ástarjátning. Komandi úr
þessu vestræna mastersnámi var
ég kominn með svo mikinn leiða á
þessari köldu nálgun, akademískri
hugsun og íróníu sem er áberandi í
margri myndlist, að þurfa að sýna
fram á hvað maður er klár og snið-
ugur í verkum sínum. Mig langaði
bara að koma með algjörlega blygð-
unarlausa hlýju og kaldhæðnilausa
yfirlýsingu.“
Hann minnist á að lítið sé um
að karlkyns ljósmyndarar, feður,
geri langtímaverk um fjölskylduna.
„Konur hafa í gegnum ljósmynda-
söguna séð um að tækla þennan
gjöfula efnivið, en karlar hafa verið
feimnir við þetta hingað til, mögu-
lega hræddir um að vera ekki teknir
alvarlega í listheiminum ef þeir
ynnu með myndefni af börnum.“
Orri segir að í bókinni felist
ákveðin frásögn, sem sé ólíkt flest-
um öðrum íslenskum ljósmynda-
bókum, í gegnum tíðina hafi þær
oftast verið notaðar sem nokkurs
konar arkívusöfn. Fáir íslenskir
ljósmyndarar hafa unnið á þennan
hátt með ljósmyndabókina en Orri
segist halda að það sé að breytast.
„Þetta er opið og gjöfult form að
vinna inn í en það snúna við þetta
er að lesandinn þarf að skilja tungu-
málið sem þú ert að vinna með,“
segir hann og bætir við að það sé
vandasamt að leggja svona bók inn
í samfélag sem ekki sé vant þessari
hefð. Fólk sé óvant því að nálgast
ljósmyndabækur á þennan hátt, það
þurfi að gefa þeim meiri tíma og
nálgast á annan hátt en einfaldari
arkívu-bækur til að ná utan um efni
þeirra.
Kallast á fram og til baka
En þótt í verkinu felist frásögn
þá segir Orri að ekki þurfi að lesa
verkið frá fyrstu blaðsíðu til þeirrar
síðustu.
„Maður verður að vera raunsær
og átta sig á því að fólk skoðar
ekki ljósmyndabækur þannig.
Mér fannst ég þurfa að raða henni
þannig að hún gæti lesist frá fyrstu
blaðsíðu að þeirri síðustu en þú
verður líka að geta flett henni aftan
frá, eða opnað hana einhvers staðar
í miðjunni og blaðað í henni. Mynd-
rænt reyndi ég að byggja hana upp
þannig að myndirnar kallist svolítið
á fram og til baka innan bókarinnar
en að sama skapi vil ég ekki flækja
þetta um of.“
Sumar af ljósmyndunum í bókinni
voru sýndar á sýningu í galleríinu
i8 árið 2018 og vonast Orri til þess
að þær verði sýndar víðar. „Það
var allt annar prósess að setja upp
þá sýningu en að gera þessa bók.
Myndirnar tala allt öðruvísi saman
á vegg heldur en inni í bókaforminu.
Ég held að það séu rúmar sjötíu
myndir í bókinni, um fjörutíu á
sýningunni, en þetta er unnið upp
úr bunka með rúmlega hundrað
myndum. Ég sé fyrir mér að þegar
þetta verður sýnt á fleiri stöðum
þá verði sýningarnar alltaf töluvert
ólíkar eftir rýmunum.“
lNý ljósmyndabók Orra Jónssonar ber titilinn Fangið þitt er svo mjúkt það er eins og lamba ull
lÍ bókinni felst frásögnlFjölskyldan er í forgrunni sem og þau heimkynni sem hún hefur fundið
Blygðunarlaus ástarjátning
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósmyndarinn „Mig langaði bara að koma með algjörlega blygðunarlausa hlýju og kaldhæðnilausa yfirlýsingu.“
Opna Mannamyndir af nánustu fjölskyldumeðlimum Orra eru í forgrunni.
VIÐTAL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is