Morgunblaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 56
Í lausasölu 1.410 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Jólatónleikar Sinfóníunnar
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ferna jólatónleika í
Eldborg Hörpu um helgina, kl. 14 og 16 báða daga. „Á
tónleikunum í ár hljómar fjölbreytt tónlist sem hefur
verið ómissandi í jólahaldi í gegnum tíðina, m.a. lögin
Jól eftir Jórunni Viðar og Friður, friður frelsarans eftir
Felix Mendelssohn,“ segir í tilkynningu. Meðal þeirra
sem koma fram með sveitinni eru söngvararnir Alex-
ander Jarl Þorsteinsson og Björk Níelsdóttir, Kolbrún
Völkudóttir táknmálssöngkona, Stúlknakór Reykjavík-
ur og Aurora. Hljómsveitarstjóri er Mirian Khukhunai-
shvili og kynnir er trúðurinn Barbara.
ÍÞRÓTTIR
Óttar vill vera áfram á Ítalíu
Knattspyrnumaðurinn Óttar Magnús Karlsson var
útnefndur leikmaður ársins hjá bandaríska B-deildar-
liðinu Oakland Roots á nýliðnu keppnistímabili. Óttar
Magnús, sem er 25 ára gamall, skoraði 19 mörk í 30
leikjum með liðinu á tímabilinu og var á meðal marka-
hæstu leikmanna B-deildarinnar.
„Ég vissi í raun lítið út í hvað ég var að fara þegar ég
gekk til liðs við Oakland,“ sagði Óttar Magnús í samtali
við Morgunblaðið.» 47
KRINGLUNNI
Bolvíkingurinn Jón Elíasson, kerta-
meistari Fjölskylduhjálpar Íslands,
lauk í liðinni viku við að steypa um
4.500 útikerti úr tólg, en hann hefur
séð um framleiðsluna undanfarinn
áratug nema hvað hann missti úr eitt
árið vegna veikinda. „Ég steypti í um
300 dollur á um átta tímum á dag í
þrjár vikur á þessari vertíð og notaði
um eitt og hálft tonn af mör,“ segir
hann.
Jón var á sjó frá því hann var ung-
lingur og hætti sjötugur fyrir tveimur
árum. „Ég reri alltaf úr Bolungarvík
en síðustu árin var ég bara á strand-
veiðum yfir hásumarið,“ segir hann.
Þá hafi hann byrjað að vinna fyrir
Fjölskylduhjálpina og kertagerðin
orðið hluti af því sjálfboðaliðastarfi
2013.
Kertin eru með nýju útliti í ár vegna
öðruvísi dósa en áður. „Vinnan gekk
betur fyrir sig núna,“ segir Jón og
bætir við að hann hafi steypt um 900
kerti í vor til þess að minnka álagið á
aðventunni.
Kertin seld víða
Mörinn kemur í frystum blokkum
og vinnan er hefðbundin. Jón tekur
mörinn inn síðdegis og lætur hann
þiðna til morguns. Þá byrjar hann á
því að setja hann í hakkavél, bræðir
hann síðan og hellir í dollurnar eftir
að hafa klippt til kveikinn og límt hann
fastan í þær. „Núna setti ég dollurn-
ar beint í kassa og fór með þá inn í
geymslu en áður setti ég dollurnar
á bakka, fór með þá í geymsluna og
kom svo dollunum fyrir í kössum
daginn eftir.“ Framleiðslan fer fram í
upphituðum gámi við hliðina á verslun
Fjölskylduhjálparinnar í Iðufelli 14 í
Reykjavík. Þar er opið klukkan 13-17
fyrir jólin og margir sjálfboðaliðar að
störfum. Þegar Jón er ekki að búa til
kertin vinnur hann fyrir Fjölskyldu-
hjálpina í um fjóra tíma á dag alla
virka daga, en tekur sér frí af og til
vegna ferðalaga. „Ég hef yfirleitt
verið einn í kertagerðinni en stundum
fengið aðstoð, þó ekki núna,“ segir
hann. Þess utan sinni hann öllum
tilfallandi störfum. „Þá er ég mest í
bakvinnslunni, sæki vörur hingað og
þangað, keyri kertin á staði eins og í
Garðheima, Krónuna og Nettó, tíni til
ruslið og svo framvegis.“
Jón var í Bolungarvík fyrri hluta
vikunnar en var mættur í Iðufellið
á fimmtudag. „Það er gott að koma
hérna í hádeginu, hitta fólk og spjalla
við það og fá sér kaffi áður en vinnan
hefst,“ segir hann. Bætir við að hann
sakni ekki sjómennskunnar enda hafi
aldurinn sagt til sín. „Það var eigin-
lega sjálfhætt.“
lJónElíasson steypti um4.500útikerti á aðventunni
Öflugur kertameistari
Fjölskylduhjálparinnar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Í Iðufelli Jón Elíasson ásamt öðrum sjálfboðaliðum í húsakynnum Fjölskylduhjálpar Íslands.