Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2022, Blaðsíða 24
arinnar, en byggingarár hússins er
1955. Létu þau sérsmíða gerefti á
nýja herbergið svo það myndi passa
við restina af íbúðinni. Einnig fundu
þau notaða hurð á netinu sem var
sambærileg í útliti og hinar hurð-
irnar.
Auður leggur mikið upp úr því að
andrúmsloftið á heimilinu sé hlýlegt
og notalegt. „Þetta á að vera griða-
staðurinn okkar sem knúsar mann
þegar maður kemur heim,“ segir
Auður.
„Ég er voða mikill safnari, svo það
hefur sett minn svip á íbúðina. Bæk-
ur, plöntur, steinar og hlutir með
sögu kalla mikið á mig. Ég reyni að
kaupa sem minnst af nýju, og ein-
hvern veginn hafa hlutir ratað til
mín óvænt og oft alveg frítt svo
þetta hipsumhaps af hlutum gerði
íbúðina aðallega að minni,“ segir
Auður.
Hennar uppáhaldsstaður á heim-
ilinu er ofan í baðkarinu, sem er
extra djúpt. „Það gerir mig mjög
hamingjusama. Eina skilyrðið sem
ég setti þegar við vorum að leita
okkur að íbúð var að það væri bað-
kar,“ segir Auður.
Skipti úr kokteilsósu yfir í
hamborgarasósu
Húsgögn úr tekki hafa verið
vinsæl undanfarin ár, líkt og á
tímabili á síðustu öld. Á heimili
Auðar og Marínós er að finna
nokkur tekkhúsgögn, hansahill-
urnar fallegu og svo skrifborð.
Skrifborðið er uppáhaldshúsgagn
Auðar.
„Það var lokaverkefni mannsins
míns í húsgagnasmíði. Það er gull-
fallegt og var gert með fullkomnum
skúffum fyrir teiknidótið mitt,“ segir
Auður.
Hansahillurnar koma úr ýmsum
áttum en að mestu frá afa Marinós
með smá viðbótum frá ömmu og afa
Auðar og svo einhverju sem þau
fundu á Facebook.
Íbúðin er litrík og falleg, en Auð-
ur valdi flesta litina handahófs-
kennt. „Svo sagði maðurinn minn
nei við sumu svo ég aðlagaði þá liti.
Mesti brandarinn var að ég valdi
kokteilsósubleikan á vegginn sem
mér var neitað um svo ég skipti yfir
í hamborgarasósu,“ segir Auður og
passar liturinn svona ljómandi fal-
lega.
Framkvæmdum er ekki lokið hjá
þeim, en þau eru nú að safna sér
fyrir nýrri borðplötu í eldhúsinu og
hyggjast samhliða því stækka
eldhúsinnréttinguna út undir
gluggann. Svo vilja þau einnig setja
gólflista.
Myndavélin er úr
dánarbúi afa Marínós.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Smáhlutirnir eru
úr ýmsum áttum
en Auður er
mikill safnari.
Auður og Marínó höfðu
mikið fyrir því að halda
stíl íbúðarinnar þegar þau
bættu við herbergi.
Baðkarið er uppáhalds-
staður Auðar á heimilinu.
’
Það gerir mig
mjög hamingju-
sama. Eina skilyrðið
sem ég setti þegar við
vorum að leita okkur
að íbúð var að það
væri baðkar.“
HÖNNUN
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2022