Víkurfréttir - 07.12.2022, Qupperneq 20
Með jólin í hjarta mér er ný jólaplata úr smiðju Gunnars Inga Guðmundssonar og Rakelar Pálsdóttur
en söngkonan Rakel syngur öll fimm lög plötunnar. Platan kom út 24. nóvember síðastliðinn og er
plata vikunnar á Rás 2 vikuna 12.–16. desember. Gunnar átti mörg lög „á lager“ og því ákvað hann að
slá til og búa til plötu. „Það kom upp sú pæling að henda í eina plötu með öllum þeim lögum sem til
voru, með það að markmiði að gera plötu með nýjum íslenskum, frumsömdum jólalögum.“
Gunnar samdi lögin á plötunni en
söngkonan Rakel flytur lögin. Ásamt
því að semja lögin spilar Gunnar á
bassa. Upptökur fyrir plötuna hófust
í júní og stóðu fram í október. „Við
fórum í Stúdíó Bambus til Stefáns
Arnar Gunnlaugssonar og tókum
upp grunn af öllum lögunum sem
við byggðum ofan á og útkoman er
mjög góð,“ segir Gunnar.
Gunnar kemur frá Reykjanesbæ,
honum þykir gaman að fást við að
semja og gera jólalög en hann hefur
samið lög fyrir þekkta söngvara
eins og Arnar Dór og Sjonna Brink
en hann samdi einnig Þjóðhátíð-
arlag Vestmannaeyja árið 2003
fyrir Skítamóral. Þá segist Gunnar
nú þegar vera byrjaður að vinna að
nýrri plötu með lögum í kvikmynda-
stíl en hann langar að reyna fyrir sér
á þeim vettvangi.
Gunnar segir hann plötuna geta
komið fólki í jólaskap. „Platan skapar
okkur ákveðna sérstöðu þar sem á
henni eru ný íslensk frumsamin
jólalög, hún er án efa hugljúf og
notaleg jólaplata sem kemur fólki í
gott jólaskap.“
Rakel heldur jólatónleika á
Nauthól þann 21.desember næst-
komandi kl 20:00 en með henni
spila Gunnar Ingi, Birgir Þóris, Bent
Marinós og Þorvaldur Halldórsson.
Á dagskránni verða öll lög plötunnar
ásamt uppáhalds jólalögum Rakelar.
Byrjuðu að vinna að
jólaplötu í júní
Í rafrænni útgáfu Víkurfrétta er að
hlusta á plötuna í heild sinni hér.
Afmæli
Föstudaginn 9. desember verður
Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Suðurnesja, sjötugur.
Í tilefni af þeim tímamótum verður
opið hús á Réttinum að Hafnargötu
90 í Keflavík þar sem hjónin Jón
og Ásta munu taka á móti gestum
frá kl 18:00 til 21:00. Gjafir eru
afþakkaðar en fyrir þá sem vilja
verður söfnunarbaukur fyrir Vel-
ferðarsjóð Suðurnesja á staðnum.
Leikmyndasmiðir True Detective
fara mikinn í Reykjanesbæ þessa
dagana. Eftir að hafa umbreytt
hluta Hafnargötunnar í jólalega
götu í bænum Ennis í Alaska, bættu
leikmyndasmiðirnir um betur og
sköpuðu glæsilegan jólagarð við
eitt af húsunum á Sunnubraut í
Keflavík sem notast verður við í
fjórðu seríu þáttanna sem True
North er að framleiða hér á landi
fyrir HBO-framleiðslufyrirtækið.
Vegna kvikmyndatökunnar var
Sunnubraut lokað bæði þriðjudag og
miðvikudag í þessari viku. Brekku-
stíg og Þórustíg í Njarðvík verður
svo lokað að hluta dagana 8. og 9.
desember vegna kvikmyndatöku.
Glæsilegur jólagarður
við Sunnubraut í Keflavík
Aðeins viku eftir að uppbygging
leikmyndar True Detective hófst
við Hafnargötuna í Keflavík er
tökum lokið. Frá því snemma á
laugardagsmorgun var unnið að
því að fjarlægja leikmyndina, þrífa
upp gervisnjó og taka niður skilti
og merkingar.
Það er ekki þar með sagt að kvik-
myndatökuliðið hafi yfirgefið bæjar-
félagið, því næst var farið í upptökur
við Sunnubraut í Keflavík, á tveimur
stöðum í Njarðvík og á Ásbrú.
Unnið var á Ásbrú í byrjun vik-
unnar og á sunnudag var hafist
handa við að undirbúa íbúðalóðir
við Sunnubraut undir gervisnjó, því
náttúruöflin virðast ætla að halda
sig við snjólaust veður og jafnvel
súldarloft.
Tökum við Hafnargötu
lokið og leikmyndin rifin
Hafnargötunni í Ennis smábænum í Alaska var aftur breytt í fyrra horf.
20 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM