Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN & DREIFING
Torg ehf.
2022 - 2025
Kolbeins
Marteinssonar
BAKÞANKAR |
Móðir mín er haldin sterkri trú og
vissu um að þegar flutt er inn í nýtt
húsnæði þá megi aðeins flytja inn
á laugardegi. Viska þessi á sér upp-
runa úr íslenskum þjóðsögum, sem
sjaldnast hafa þótt boða nokkuð
gott. Öllu verra er að sannfæring
móður minnar í þessum efnum er
svo sterk að hún nær ekki aðeins
til hennar heldur einnig barna og
barnabarna. Ef fyrir dyrum standa
flutningar hjá einhverjum afkom-
enda hennar má ganga að því sem
vísu að hún mæti og ræði mikil-
vægi þess að flutt sé inn á réttum
degi. Ég veit fyrir víst að hún ræddi
þetta við dóttur mína áður en hún
flutti til útlanda síðastliðið haust
til að koma í veg fyrir mögulegar
hörmungar.
Arfleifð þessara þjóðsagna hefur
leitt til þess að ég hef þurft að flytja
inn í hálfmálað hús og seinkað
flutningum. Samkvæmt mömmu
liggur lífshamingjan í því að laugar-
dagar séu til lukku. Aldrei megi til
dæmis flytja inn einhvern af fyrstu
þrem virkum dögum vikunnar.
Mánudagar séu til mæðu. Þriðju-
dagar til þrautar og miðvikudagar
til moldar. Eitt mega þjóðsögurnar
samt eiga, dagarnir fara batnandi
því nær sem dregur helginni.
Ég hef stundum reynt að mót-
mæla þessu við mömmu og bent
henni á að samkvæmt sömu
fræðum séu föstudagar til fjár, og
þar sem ég vilji gjarnan græða væri
kannski betra að flytja inn á föstu-
degi. Þá kemur alltaf sama sagan.
Foreldrar mínir sváfu á dýnum á
gólfinu í fyrstu íbúð þeirra til þess
eins að vera viss um að fyrsta nóttin
bæri upp á laugardag. Því beri mér
að gera það líka og hlýða mömmu
rétt eins og hún hlýddi sinni. Við
slíkum rökum á ég engin svör og
panta bíl á laugardaginn. n
Þjóðsögur
flutninga
-25%
AF ÖLLUM
FLÍSUM
Það frábæra við flísar er að þær henta í svo mörg
herbergi: eldhúsið, baðið, þvottahúsið og holið.
Í febrúar eru allar flísar á 25% afslætti.
Eigum við að púsla saman?
FINNUM RÉTTU
FLÍSINA
SAMAN
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
26. janúar - 5. febrúar
25%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
OG APPTILBOÐ Á
HVERJUM DEGI
Heilsu- & lífsstílsdagar Nettó
Gleðilegt nýtt
heilsuár!
Skannaðu
QR-kóðann
og náðu
í blaðið