Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 24
Otto er úrillasti maður í heimi. Hann er svo fúllyndur að fýluna leggur af honum langar leiðir. Eftir að hann missir konuna sína hefur lífið ekkert til að bjóða honum upp á lengur og hann vill enda þetta allt saman. Þegar ung fjölskylda flytur í hverfið mætir hann jafningja sínum í hinni jákvæðu, hvat- vísu og hnyttnu Marisol. Smám saman myndast vinátta milli þeirra og heimur hans verður ekki samur aftur. Ef þetta hljómar kunnuglega er það ekkert skrítið. A Man Called Otto er endurgerð á sænsku myndinni En man som heter Ove frá 2015. Sú mynd sló í gegn um víða veröld og nú er komin Hollywood-útgáfa af henni. Báðar myndirnar eru byggðar á bókinni Maður sem heitir Ove, sem var mest selda bókin í íslenskum bókaverslunum 2013. Mörgum finnst eflaust ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur að endurgera þessa frábæru mynd, sem sænski leikarinn Rolf Lassgård sló í gegn í undir fumlausri leikstjórn Hannes Holm. Hér er það Marc Forster sem leikstýrir, en Tom Hanks fer með aðalhlutverkið, sem hlýtur að teljast alvöru gæðastimpill. Við fyrstu sýn er Otto ábyggi- lega mesti fýlupúki sem við höfum nokkru sinni rekist á, nöldurseggur dauðans sem þolir engin frávik frá sinni daglegu rútínu og rýkur upp á háa c-ið af minnsta tilefni. Fólki finnst hann bitur og sár og honum finnst hann vera umkringdur eintómum hálfvitum. En þegar ungu hjónin flytja Stundum þarf bara að finna rétta lykilinn Ekki er alltaf allt sem sýnist og þegar efsta laginu er flett af getur það sem birtist komið á óvart. Fróðleikur n Í einu atriði myndarinnar þurfti að nota tölvutækni til að yngja andlit Tom Hanks svo hann liti út fyrir að vera á fertugsaldri. Not- aðar voru myndir úr The Burbs (1989) til að gera þetta. n Yngri útgáfan af Otto er í myndinni leikin af Truman Hanks, sem er sonur Tom. n Sænska frummyndin var tilnefnd til tvennra Óskarsverðlauna og var sú erlenda mynd sem halaði inn mestar tekjur í Bandaríkj- unum árið 2016. Frumsýnd 24. febrúar 2023 Aðalhlutverk: Tom Hanks, Mariana Trevino, Rachel Keller, John Higgins, Tony Bingham og Lily Kozub Handrit: David Magee, en byggt á bók Fredriks Backman og mynd Hannesar Holm Leikstjórn: Marc Foster í hverfið með tvær ungar dætur sínar kemur smám saman í ljós að maðurinn sem enginn í hverfinu þolir á sér aðra hlið. n Smárabíó, Háskólabíó og Sam- bíóin Álfabakka og Kringlunni 8 kynningarblað 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS KVIKMYNDAGETRAUN í samstarfi við MYNDFORM 6 miðar í bíó, popp&gos Farið inn að KVIKMYNDIR.IS svarið nokkrum laufléttum spurningum í boði þáttarstjórnanda BÍÓBÆRINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.