Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 26
elin@frettabladid.is Ingrid Alexandra, prinsessa og arftaki krúnunnar í Noregi á eftir föður sínum, fagnaði 19 ára afmæli 21. janúar. Norðmenn eru afar stoltir af þessari ungu prinsessu sem er mikil íþrótta- og útivistar- kona. Skíðaíþróttin er í hávegum höfð eins og hjá öðrum í fjölskyld- unni en einnig hefur hún mikinn áhuga á brimbrettum og hefur komist í undanúrslit í þeirri grein. Ingrid er á lokaári í menntaskóla en hefur ekki enn ákveðið hvað hana langar til að læra í framhald- inu. Foreldrarnir hafa sagt að hún fái að velja það nám sem hugur hennar stefnir á. Bæði afi hennar, Haraldur konungur, og faðir, Hákon krónprins, gengu í herinn eftir menntaskóla. Prinsessan hefur farið í nokkrar heimsóknir í norska herinn þar sem hún fékk fræðslu um verkefni hans. Það mun vera hluti af lærdómi hennar fyrir framtíðarstarf sem drottning Noregs. Norðmenn fylgjast grannt með prinsessunni og fjölmiðlar hafa greint frá því að henni sé umhugað um umhverfismál, noti til dæmis oft og tíðum kjóla úr fataskáp móður sinnar. Netmiðillinn VG hefur bent á þetta og sýnt nokkrar myndir af móður og dóttur í sama kjólnum. Mjög jákvætt að endur- nýta dýran fatnað, segir blaðið, en móðir Ingridar, Mette-Marit, hefur oft verið gagnrýnd fyrir að ganga í óheyrilega dýrum merkjafatnaði. Kjóllinn sem Ingrid klæddist á opinberri konunglegri mynd þegar hún varð 18 ára er meðal þeirra sem móðir hennar hafði áður klæðst. n Prinsessa endurnýtir fatnað móður sinnar Opinber mynd af Ingrid Alexöndru þar sem hún klæðist kjól móður sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Litríkir gestir á tískuvikunni í París Tískuvikan í París fór fram seinni hluta janúarmánaðar. Að venju var mikið um dýrðir hjá stærstu tískumerkjum heims en það eru ekki síst gestir hátíðarinnar sem vekja athygli fyrir skrautlegan og skemmtilegan klæðaburð. Lítum á nokkra vel valda karlkyns gesti hátíðarinnar. starri@frettabladid.is Bleikir leðurskór frá Dior vöktu athygli. Gul- ur blazer- jakki yfir bláan jakka frá Louis Vuitton. Pilsið setur svo punktinn yfir i-ið. Blóm í alls kyns litum lífga svo sannarlega upp á umhverfið. Bleiki liturinn og regnboga- lituð Louis Vuitton handtaska passa ljómandi vel saman. Sam- stíga vinir í fatnaði frá Louis Vuitton. Gleraugun setja skemmti- legan svip á útlitið. Ljós- brún ullarpeysa og víðar buxur passa vel við svarta frakkann. Dún- kenndi guli frakkinn veitti gott skjól ásamt gulri húfu á höfði. 40 mg 100 mg 50 mg 2,5 mcg Kollagen týpa II Víðisbörkur Kúrkúmín D3-vítamín Liprari liðir, alla daga fyrir bættan hreyfanleika, uppbyggingu brjósks og heilbrigði liða BUILD-YOUR-JOINTS GOOD ROUTINE® fæst í Apótekaranum, Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Lyf og heilsu, og á goodroutine.is K AV IT A 4 kynningarblað A L LT 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.