Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 37
Þessi tímamót eru
ljúfsár fyrir mig.
Dagur B. Eggertsson
Það er mikil spenna að
hefja leika aftur.
Sóley Kristjánsdóttir
benediktboas@frettabladid.is
Metþátttaka er á World Class stúd-
íó-námskeiði sem um 70 barþjónar
frá öllum landshornum sækja og
líkja mætti við MBA-nám í starfs-
greininni og þar verða þjónarnir
dæmdir af verkum sínum sem að
sjálfsögðu eru drykkir sem þeir
blanda í anda ákveðinna þema.
Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni,
gæði og upplifun og stigagjöf eftir
því. Í vor keppa síðan tíu stigahæstu
barþjónarnir í lokakeppni og sigur-
vegarinn mun síðan mæta þeim
bestu frá öðrum löndum í alþjóð-
legri World Class-keppni.
„Ísland hefur tekið þátt fjórum
sinnum og þrjú ár eru liðin síðan
síðast. Ísland mun framvegis taka
þátt annað hvert ár þannig að það
er mikil spenna að hefja leika aftur,“
segir Sóley Kristjánsdóttir, vöru-
merkjastjóri áfengra drykkja hjá
Ölgerðinni.
World Class-kokteilbarir verða
svo með World Class-drykkjarseðla
eftir hverja umferð í minnst tvær
vikur svo fólk geti komið, smakkað
og fræðst um hugmyndina á bak við
drykkina.
„Við hvetjum fólk til að fylgjast
með á heimasíðunni drekkum-
betur.is/world-class eða Facebook
og Instagram undir World Class
Drykkir þar sem þátttakendur
verða kynntir í næstu viku,“ segir
Sóley.
Fyrsta stúdíóið, eins og það er
kallað, fer fram í dag á Héðni Kit ch-
en& bar en fresta þurfti námskeið-
inu um tvo daga þar sem öllu flugi
var aflýst í aftakaveðri á mánudag.
„Dennis Tamse frá Ketel One
vodka í Hollandi kennir námskeiðið
þar sem farið er yfir framleiðslu-
ferlið og smakkað á mismunandi
vodkategundum með áherslu á
hvernig barþjónarnir geti tengst
nærumhverfi sínu. Til dæmis með
því að sækja hráefni sitt beint frá
býli.
Íslendingar eru frá fornu fari
mikil vodkaþjóð og vodkinn er
enn langmest selda brennda vínið í
Vínbúðum með nær þriðjung sterk-
vínssölunnar. Viskí er í öðru sæti og
gin í því þriðja,“ segir Sóley og bætir
við að Tamse sé aðeins fyrsta stór-
stjarnan úr drykkjaheiminum sem
komi til að fræða og dæma og lyfta
ránni enn hærra.
„Við viljum að fólk hugsi um
drykki líkt og það hugsar um mat.
World Class er stærsta og virtasta
barþjónakeppnin þar sem kanónur
koma hingað til lands og kenna
það nýjasta í kokteilheiminum og
World Class Cocktail Festival mun
ekki fara fram hjá neinum í vor,“
segir hún.
Hly nur Björnsson er fram-
kvæmdastjóri keppninnar en hann
bætir því við að það sé mikið til-
hlökkunarefni að senda keppanda
alla leið til Sao Paulo í Brasilíu þar
sem keppnin fer fram. „Það er frá-
bært að halda keppnina á ný en
færni barþjóna er mikil á Íslandi og
við stefnum á topp tíu í lokakeppn-
inni í Brasilíu.“ n
Fróðleiksþyrstir barþjónar smakka alls konar vodka
Hlynur Björnsson, framkvæmdastjóri keppninnar, og Sóley Kristjánsdóttir,
vörumerkjastjóri áfengra drykkja hjá Ölgerðinni. MYND/AÐSEND
odduraevar@frettabladid.is
Kolbr ú n Berg-
þórsdóttir, ein-
hver þek ktasti
s é r f r æ ð i n g u r
landsins í mál-
ef nu m bre sk u
k o n u n g s f j ö l -
s k y l d u n n a r ,
segir Spare, nýja
ævisögu Harrys
Bretaprins, sýna
svo ekki verður um villst að hatur
Harrys á fjölmiðlum sé sjúklegt.
„Þetta er mjög einkennilegt því
hann var svo skemmti legur. Hann
var æringi, hann var hrekkjóttur og
gerði alls konar hluti. Hann klæddi
sig í nasistabúninginn og maður
andvarpaði en fyrirgaf honum því
hann var svo skemmtilegur,“ sagði
Kolbrún í sérstökum hlaðvarps-
þætti Bíóvarpsins um Netflix-þætt-
ina Harry&Meghan og bók prinsins.
Þáttarstjórnendur bentu á að í
bókinni vildi Harry ekkert kannast
við þá ímynd sem breskir fjölmiðlar
hafi dregið upp af honum.
Algjörlega glórulaust
„Erkiskúrkur þessarar sögu eru allir
fjölmiðlar. Punktur. Hann bara
hatar þá,“ sagði Þórarinn Þórarins-
son. Kolbrún tók undir þetta og
benti á að Harry gerði engan grein-
armun á venjulegum fjölmiðlum
og þeim sem gera út á svokallaða
paparazza.
„Þetta er sjúklegt hatur á fjölmiðl-
um. Það er algjörlega glórulaust,“
sagði Kolbrún sem telur þó líklega
rétt metið hjá Harry að ímynd hans
hafi verið fórnað á fjölmiðlaaltarinu
til þess að rétta hlut Kamillu, eigin-
konu Karls konungs, í umræðunni.
„Það var farið í herferð fyrir
Kamillu. Allt þetta fólk er með
ímyndarsérfræðinga og það var
gerð nokkurra ára áætlun um það
hvernig ætti að fá þjóðina til að
samþykkja Kamillu.“
Hægt er að nálgast Crownvarpið
á Spotify undir merkjum Bíóvarps-
ins. n
Harry er sjúkur
af fjölmiðlahatri
Kolbrún segir fjölmiðlahatur Harrys
vera sjúklegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Ekki einasta gerist það á nú-
líðandi kjörtímabili í borgar-
stjórn Reykjavíkur að Fram-
sóknarmaður verður í fyrsta
skipti borgarstjóri, heldur
slær sá sem fyrir er á fleti met í
valdatíma í Ráðhúsinu.
ser@frettabladid.is
Sá heitir vitaskuld Dagur B. Egg-
ertsson og hefur í dag setið samfellt
lengur á stóli borgarstjóra en flokks-
systir hans, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, gerði á sínum tíma, en síðar
á árinu, þegar fuglsungarnir fæðast
í Tjarnarhólmunum, kemst hann
líka upp fyrir Davíð Oddsson sem
þaulsætnasti borgarstjóri síðustu
fimmtíu ára.
Það er nokkuð.
„Þetta er búinn að vera fjölbreytt-
ur og skemmtilegur tími, svo ekki sé
meira sagt,“ segir Dagur sem tók við
valdataumunum í borginni 16. júní
2014 og átti þá ekkert sérstaklega
von á því að vera enn þá borgarstjóri
fram á nýjan áratug.
En það gerðist.
„Þessi tímamót eru ljúfsár fyrir
mig, altso dagurinn í dag, því ég er
að fara fram úr minni helstu fyrir-
mynd í stjórnmálum hvað valda-
skeiðið varðar, en Ingibjörg Sólrún
er auðvitað einn allra merkasti
borgarstjóri í sögu Reykjavíkur,“
segir Dagur.
Borgarstjórar frá 1908
Og talandi um þá sögu alla, en fyrsti
borgarstjórinn í Reykjavík tók til
starfa 1908, svo stórt hundrað ára
er frá því embættið varð til.
Sá sem reið á vaðið var Páll Ein-
arsson, sýslumaður og bæjarfógeti
í Hafnarfirði, en hann gegndi starf-
anum í sex ár. Við keflinu tók svo
Knud Zimsen og gegndi embættinu
lengur en nokkur annar maður, í
átján ár og tæpa átta mánuði.
Það hálfa er nóg í tilviki Dags.
„Já, níu ár og gott betur,“ reiknast
honum til.
En hvað tekur við?
„Ég verð formaður borgarráðs
þegar Einar Þorsteinsson tekur
við af mér í embætti borgarstjóra
– og hvað framhaldið þar á eftir
Dagur hefur nú
setið lengur en
Ingibjörg Sólrún
Dagur B. Eggertsson í júní 2014 þegar hann tók við embætti borgarstjóra, en á sumri komanda verður hann orðinn þaulsætnasti borgarstjóri síðustu hálfa öldina.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Dagur hefur setið jafn
lengi og Ingibjörg
Sólrún og þá nálg-
ast síðasta stóra
varðan á veg-
ferðinni, sjálfur
Davíð Oddsson
sem enn er þaulsæt-
nasti borgarstjóri
Reykjavíkur.
varðar er ég bara ekki búinn að
taka ákvörðun um. Ég ætla bara að
svara því þegar þar að kemur,“ segir
Dagur.
Gríðarlega mikill rekstur
Og hvernig er svo minningin frá
öllum þessum tíma, þetta hefur
verið at, en varla hefur hann verið
að atast í öllu?
„Nei, sannarlega ekki í öllu, enda
væri það engum hollt í þessu starfi,“
svarar hann um hæl. „En í gegnum
tíðina hef ég kynnst alveg ótrúlega
mörgum hliðum á starfsemi borg-
arinnar og upplifað ótal breytingar
og umbætur, svo og samfellda upp-
byggingu á vegum borgarinnar og
fyrirtækja hennar. Þetta er gríðar-
lega mikill rekstur og mikilvæg
þjónusta,“ segir borgarstjórinn.
Hvað hefur glatt þig mest?
„Hvað borgin hefur eflst mikið.
Og þar hefur umbreyting og þróun
borgarinnar í græna og rétta átt
skipt sköpum,“ segir Dagur B. Egg-
ertsson í tilefni dagsins. n
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 252. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR