Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 24
Otto er úrillasti maður í heimi.
Hann er svo fúllyndur að fýluna
leggur af honum langar leiðir.
Eftir að hann missir konuna
sína hefur lífið ekkert til að
bjóða honum upp á lengur og
hann vill enda þetta allt saman.
Þegar ung fjölskylda flytur í
hverfið mætir hann jafningja
sínum í hinni jákvæðu, hvat-
vísu og hnyttnu Marisol. Smám
saman myndast vinátta milli
þeirra og heimur hans verður
ekki samur aftur.
Ef þetta hljómar kunnuglega er
það ekkert skrítið. A Man Called
Otto er endurgerð á sænsku
myndinni En man som heter
Ove frá 2015. Sú mynd sló í gegn
um víða veröld og nú er komin
Hollywood-útgáfa af henni.
Báðar myndirnar eru byggðar
á bókinni Maður sem heitir
Ove, sem var mest selda bókin í
íslenskum bókaverslunum 2013.
Mörgum finnst eflaust ekki
ráðist á garðinn þar sem hann
er lægstur að endurgera þessa
frábæru mynd, sem sænski
leikarinn Rolf Lassgård sló í
gegn í undir fumlausri leikstjórn
Hannes Holm. Hér er það Marc
Forster sem leikstýrir, en Tom
Hanks fer með aðalhlutverkið,
sem hlýtur að teljast alvöru
gæðastimpill.
Við fyrstu sýn er Otto ábyggi-
lega mesti fýlupúki sem við
höfum nokkru sinni rekist á,
nöldurseggur dauðans sem þolir
engin frávik frá sinni daglegu
rútínu og rýkur upp á háa c-ið
af minnsta tilefni. Fólki finnst
hann bitur og sár og honum
finnst hann vera umkringdur
eintómum hálfvitum.
En þegar ungu hjónin flytja
Stundum þarf bara að finna rétta lykilinn
Ekki er alltaf allt
sem sýnist og þegar
efsta laginu er flett af
getur það sem birtist
komið á óvart.
Fróðleikur
n Í einu atriði myndarinnar þurfti að nota tölvutækni til að yngja
andlit Tom Hanks svo hann liti út fyrir að vera á fertugsaldri. Not-
aðar voru myndir úr The Burbs (1989) til að gera þetta.
n Yngri útgáfan af Otto er í myndinni leikin af Truman Hanks, sem
er sonur Tom.
n Sænska frummyndin var tilnefnd til tvennra Óskarsverðlauna
og var sú erlenda mynd sem halaði inn mestar tekjur í Bandaríkj-
unum árið 2016.
Frumsýnd
24. febrúar 2023
Aðalhlutverk:
Tom Hanks, Mariana Trevino,
Rachel Keller, John Higgins,
Tony Bingham og Lily Kozub
Handrit:
David Magee, en byggt á bók
Fredriks Backman og mynd
Hannesar Holm
Leikstjórn:
Marc Foster
í hverfið með tvær ungar dætur
sínar kemur smám saman í ljós að
maðurinn sem enginn í hverfinu
þolir á sér aðra hlið. n
Smárabíó, Háskólabíó og Sam-
bíóin Álfabakka og Kringlunni
8 kynningarblað 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS
KVIKMYNDAGETRAUN
í samstarfi við MYNDFORM
6 miðar í bíó, popp&gos
Farið inn að KVIKMYNDIR.IS
svarið nokkrum laufléttum
spurningum í boði þáttarstjórnanda
BÍÓBÆRINN