Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 27
Þarmaflóran spilar lykilhlutverk í lífi okkar og heilsu og hefur mikið að segja um heilsufar okkar alla ævi. Þorbjörg Hafsteinsdóttir Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringarþerapisti hefur lengi notað vörulínu Probi og mælir heils hugar með henni fyrir alla. Í meltingarveginum lifa trillj­ ónir baktería og eru f lestar þeirra staðsettar í ristlinum. Þessar bakteríur köllum við þarma­ flóru en þær sinna ýmsum afar mikilvægum hlutverkum í líkama okkar. Öflug þarmaflóra er for­ senda heilbrigðrar starfsemi meltingarfæranna ásamt því að hafa góð áhrif á ónæmis­, tauga­ og hormónakerfið. Þarma f lóran ver okkur jafnframt gegn óæski­ legum örverum og sýklum og hefur margs konar jákvæð áhrif á heilsu okkar almennt. Til þess að viðhalda öflugri f lóru er mikil­ vægt að tileinka sér hollt og gott mataræði ásamt því að innbyrða reglulega mjólkursýrugerla í formi bætiefna. Betra að vanda vel valið á mjólkursýrugerlum Mjólkursýrugerlar eru hluti af örlífverum þarmanna en þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir og með mismunandi virkni. Mjólkur­ sýrugerla má finna í fæðu og meltingarvegi mannsins en þeir hafa heilsueflandi áhrif á líkam­ ann með því eða efla meltingu og frásog næringarefna. Þegar velja á mjólkursýrugerla til inntöku er ekki úr vegi að skoða magn gerla sem hvert hylki inniheldur sem og virkni og eru því gerlarnir frá Probi AB kjörin viðbót en þeir innihalda 10 milljarða lifandi mjólkursýru­ gerla í hverju hylki. Einkaleyfisvarðir gerlar frá Probi Sænska fyrirtækið Probi AB var stofnað fyrir 30 árum í kringum merkilega uppgötvun á mjólkursýrugerlinum Lactoba­ cillus plantarum 299v. Gerillinn sýndi sig vera sérlega harðger og hefur eiginleika til að fjölga sér í meltingarvegi og styrkja þar með varnir okkar og draga úr óþægind­ um tengdum maga og meltingu. Probi AB er í dag leiðandi á heims­ vísu í rannsóknum á mjólkursýru­ gerlum og með alheimseinkaleyfi á LP299V gerlinum, ásamt því að vera eini framleiðandinn með vörur sem innihalda gerilinn á Íslandi. Probi vörurnar eru fjórar talsins og eiga þær allar það sam­ eiginlegt að hafa jákvæð áhrif á þarmaflóruna og koma í veg fyrir meltingar óþæg indi. Því má segja að allir í fjölskyldunni geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Öflugir mjólkursýrugerlar n Probi Family inniheldur sér- valda samsetningu af tveimur einkaleyfisvörðum gerlum, Lac- tobacillus plantarum HEAL9 og Lactobacillus paracasei 8799:2 ásamt fólasíni, D-vítamíni og B12-vítamíni sem styður við eðlilega virkni ónæmiskerfisins. Probi Family eru bragðgóðar tuggutöflur sem henta allri fjöl- skyldunni frá þriggja ára aldri. n Probi Mage inniheldur gerilinn Lactobacillus plantarum 299V sem hefur eiginleika til að fjölga sér í meltingarvegi og hefur þar af leiðandi það að markmiði að draga úr óþægindum tengdum maga og meltingu. Probi Mage hentar börnum eldri en 6 mánaða en hægt er að opna hylkin og bæta meðal annars út á grautinn eða hvað sem hentar hverju sinni. n Probi Járn blandan inniheldur einnig gerilinn Lactobacillus plantarum 299v ásamt járni, fólínsýru og C-vítamíni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og eykur upp- töku járns. Probi Járn hefur það að markmiði að auka upptöku járns og er milt fyrir meltingar- kerfið, formúlan hentar barns- hafandi konum og mjólkandi mæðrum. n Probi Baby eru sérhann- aðir mjólkursýrugerlar fyrir þarfir barna. Varan inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactoba- cillus Rhamnosus 271 sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir meltingaróþægindi hjá börnum. Tilteknir góðgerlar hafa, umfram aðra, mótstöðu gegn bakteríudrepandi áhrifum sýklalyfja og komast því lifandi niður meltingarveginn án þess að lyfin hafi mikil áhrif á þá. Probi Baby mjólkursýrugerlarnir eru á duftformi sem hentar afar vel í grautinn eða drykkinn og eru afar hentugir á ferðinni. Probi línan hentar allri fjöl­ skyldunni og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. n Mjólkursýrugerlar sem henta allri fjölskyldunni Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringaþerapisti tekur inn Probi Mage og mælir með því. fréttablaðið/ernir PROBI FJÖLSKYLDAN ÞARMA- FLÓRAN ER LYKILLINN AÐ HEILSUNNI ÞESSI Í GRÆNA KASSANUM PROBI® MAGE ALLT kynningarblað 3ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2023

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.