Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 9
katrinasta@frettabladid.is
„Það er erfitt að segja til hvað gerist
í framhaldinu,“ segir doktor Páll
Einarsson jarðeðlisfræðingur um
jarðskjálftana í Tyrklandi í gær.
„Þetta er meira en 300 kílómetra
svæði sem er undir í þessum skjálft-
um núna. Það væri svipað því ef allt
Ísland myndi rifna í sundur í tvennt,
það er stærðin á þessum atburði í
jarðfræðilegum samanburði,“ segir
Páll.
Að sögn Páls eru f lekaskil milli
þriggja fleka sem mætast á austur-
og suðausturhluta Tyrklands. „Þetta
eru flekaskilin sem skilja að Arabíu-
flekann og Anatólíu-flekann sem er
megnið af Tyrklandi og eru f leka-
hreyfingar á milli þessara f leka,“
útskýrir hann.
Páll segir að um sé að ræða gríðar-
lega stórt misgengi sem liggi í gegn
um meginlandið og Austur-Anat-
ólíu-misgengið. Skjálftarnir eigi
upptök sín á því.
„Í kjölfar skjálftanna má búast
við eftirskjálftum. Skjálftarnir voru
tveir og ekki hægt að kalla seinni
skjálftann eftirskjálfta því hann
var 7,5 sem telst varla eftirskjálfti.
Því eru þetta tveir meginskjálftar.
Það er ólíklegt að þetta róist alveg í
bráð,“ segir Páll Einarsson. n
ggunnars@frettabladid.is
Íslenskur aðgerðastjóri segir ljóst
að björgunarstarf í Tyrklandi muni
taka marga mánuði – slík sé eyði-
leggingin og manntjónið.
„Fyrst um sinn er það auðvitað
fólkið á staðnum, heimamenn,
sem er að reyna að bjarga því sem
bjargað verður. Þarna er auðvitað
ófremdarástand og algjör ringul-
reið,“ segir Ólafur Loftsson, aðgerða-
stjóri hjá Landsbjörg, sem er á
útkallslista Sameinuðu þjóðanna og
í viðbragðsstöðu vegna atburðanna
í Tyrklandi.
„Þarna hafa há hús hrunið til
grunna og eldar blossað upp víða.
Við sjáum líka að það er kalt á þess-
um slóðum og næturfrost. Allt gerir
þetta aðgerðir og fyrstu viðbrögð
mjög erfið og flókin.“
Ólafur á allt eins von á því að vera
kallaður út og sendur til Tyrklands
innan tíðar. Þá sem hluti af svo-
kallaðri annarri eða þriðju bylgju
björgunaraðgerða.
„Það fer út ákveðið neyðarkall til
alþjóðasamfélagsins í kjölfar svona
atburða. Til rústabjörgunarsveita,
lækna og í raun allra þeirra sem
geta rétt fram hjálparhönd. Akkúrat
núna er hins vegar verið að reyna
að bjarga sem flestum mannslífum
og þetta er kapphlaup við tímann
fyrstu sólarhringana. Við gríðarlega
krefjandi aðstæður,“ segir Ólafur.
Hann segir snarpa eftirskjálfta
torvelda allt björgunarstarf á staðn-
um. Erfitt sé að gera sér í hugarlund
hve umfangsmikið verkefni bíði
björgunarsveita.
„Ef kallið kemur þá er maður auð-
vitað reiðubúinn til að leggja sitt af
mörkum. Manni rennur blóðið til
skyldunnar við þessar skelfilegu
aðstæður,“ segir Ólafur. n
Neyðarkall
hefur verið
sent út til
alþjóða-
samfélags-
ins og hafa
fjölmargar
þjóðir
svarað
kallinu
með því
að senda
mann-
skap, lyf
og nauð-
synjar.
Það er ólíklegt að þetta
róist alveg í bráð.
Doktor Páll
Einarsson, jarð-
eðlisfræðingur
Þarna er auðvitað
ófremdarástand og
algjör ringulreið.
Ólafur Loftsson,
aðgerðastjóri,
hjá Landsbjörg
Grafík njús
Allir sem vett-
lingi gátu valdið
aðstoðuðu
og reyndu að
hjálpa. Í Harem
í Sýrlandi vann
fólk sleitulaust
við að finna
einhverja með
lífsmarki.
Fréttablaðið/
Getty
60 mílur
100 km
Mikið mannfall í kjölfar í jarðskjála
Hundruð eru látin og þúsund slösuð eir að jarðskjáli, 7,8 að stærð,
reið yr suðurhluta Tyrklands og norðvesturhluta Sýrlands.
Heimildir: U.S. Geological Survey, Reuters © GRAPHIC NEWS
S Ý R L A N D
T Y R K L A N D
JÓRDANÍA
ÍSRAEL
EGYPTALAND
ÍRAN
ÍRAK
LÍBANON
KÝPUR
GEORGÍA
ARMENÍA
Miðjarðarhaf
Svartahaf
Miðlungs
Kröugur
Mjög kröugur
Svæsinn
STYRKUR
Skjálamiðja
Damaskus
MósúlAleppo
Istanbúl
Ankara
Latakia
Diyarbakir
Gaziantep
Osmaniye
Beirút
Adana
Kapphlaup við tímann
fyrstu sólarhringana
Svipað því og allt Ísland
myndi rifna í tvennt
Fréttablaðið fréttir 97. Febrúar 2023
ÞriÐJUDAGUr
Liðsmenn Landsbjargar æfa sig í rústabjörgun. Mynd/landsbjörG