Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 11
Það er hálf undarlegt og eiginlega
illskiljanlegt, þegar góðir menn og
gegnir, skynsamir menn, tjá sig með
þeim hætti, að Atlantshafsbanda-
lagið, NATO, full aðild og þátttaka
í starfi þess, sé f lott mál og fínt,
en full aðild að ESB kolómögulegt
áform, sem hafna beri.
Það er nefnilega svo, að í grund-
vallaratriðum eru það nákvæmlega
sömu bræðra- og vinaþjóðirnar
okkar, sem standa að báðum þess-
um bandalögum. Í þeim skilningi
er hér um nákvæmlega sama vina-
og samstarfshópinn að ræða. Sömu
vinirnir, sömu samherjarnir.
Í báðum tilvikum eru skuldbind-
ingar okkar miklar, við verðum
um margt að fylgja sameiginlegri
stefnu, sem við eigum fullan þátt í
að móta hjá NATO, gætum líka átt
hjá ESB, ef við værum þar inni, en á
móti koma öryggi og margvíslegir
kostir og réttindi, sem vega þyngra.
Í NATO eru meðlimaríkin 30, og
þau 4 evrópsku ríki, sem þar eru, en
ekki í ESB, Albanía, Svartfjallaland,
Norður Makedónía og Tyrkland, eru
með öllum krafti og öllum ráðum að
reyna að komast inn í ESB líka.
Í ESB eru nú 27 ríki, þar af 21 í
NATO, og EES-ríkin Ísland og Nor-
egur eru auðvitað líka í NATO.
Hvert er svo hlutverk þessara
tveggja bandalaga og hverjir eru
kostirnir við aðild?
n NATO gætir sameiginlegra
Já við NATO og nei við ESB stenst ekki skoðun
Ole Anton
Bieltvedt
samfélagsrýnir og
alþjóðlegur kaup-
sýslumaður
varna, öryggis og sjálfstæðis
aðildarríkjanna
n ESB gætir sameiginlegra mann-
réttinda í aðildarríkjunum
n ESB gætir líka sameiginlegra
efnahagsmála og velferðar
þeirra
n ESB gætir enn fremur öryggis
fyrirtækja aðildarríkja, atvinnu-
starfsemi og almennings (með
alls konar háum CE-stöðlum,
sem tryggja öryggi og gæði
hverskyns áhalda og verk-
færa, allra véla og farartækja,
allrar innfluttrar matvöru, alls
fatnaðar o.s.frv., en CE-merkið
blasir auðvitað við okkur á hvers
konar varningi, sem gæða- og
öryggisstimpill fyrir notandann
eða neytandann)
n ESB tryggir samkeppni, neyt-
endarétt og neytendavernd
í aðildarríkjunum (það hefur
knúið fram sanngjörn símakjör
fyrir alla ESB- og EES símanot-
endur, styrkt réttindi ferða-
manna gagnvart flugfélögum
og annarri ferðaþjónustu, tryggt
neytendum sanngjörn þjón-
ustugjöld banka, tryggt sam-
eiginlega sjúkraþjónustu allra
ESB- og EES-borgara o.s.frv.)
n ESB gegnir forystuhlutverki í
því, að tryggja þegnum aðildar-
ríkjanna frelsi til orðs og æðis
og mesta mögulega lýðræði í
álfunni
n ESB ver þegna aðildarríkja gegn
einokun og markaðsmisnotkun
stórfyrirtækja og alþjóðlegra
auðhringja
n ESB er leiðandi afl í uppbygg-
ingu menntunar og menningar í
aðildarríkjunum
n ESB leiðir tæknilega framþróun,
innleiðingu stafrænna lausna
og fjármögnun framtíðartækni í
aðildarríkjunum
n ESB gegnir algjöru forystuhlut-
verki meðal aðildarríkjanna,
hvað varðar umhverfisvernd og
minnkun mengunar og eitur-
efna, spillingu lofts, láðs og
lagar, eyðingu dýra, náttúru og
skóglendis, ekki bara í Evrópu,
heldur um allan heim
n ESB tryggir sameiginleg ytri
landamæri álfunnar
n ESB tryggir þegnum aðildar-
ríkjanna mestu mögulegu rétt-
indi og möguleika til ferðalaga
og viðskipta meðal þjóða og
bandalaga utan ESB.
Nú er það auðvitað svo, að Banda-
ríkin og Kanada eru líka í NATO, án
þess að vera í ESB. Náinn viðskipta-
og samvinnusamningur, fríverzlun-
arsamningur, er hins vegar kominn
á milli ESB og Kanada, sem tók 7 ár
að fullgera.
Svipaður náinn viðskipta- og
samstarfssamningur var líka í burð-
arliðunum milli ESB og USA, meðan
Obama sat þar við stjórnvölinn, og
eflaust fara þær umleitanir aftur af
stað, ef demókratar halda völdum í
USA.
Það breytir þó ekki því, að Evrópa,
nú ESB og NATO, bæði bandalögin
með höfuðstöðvar í Brüssel, verða
að tryggja eigin evrópskar lausnir
og framtíðarvelferð, hagsmuni og
öryggi, þar sem valdataka manns,
eins og Donalds Trump, getur aftur
átt sér stað í USA, en menn eins og
hann geta kippt fótunum undan
NATO, Atlantshafssamstarfinu, og
reyndar annarri alþjóðasamvinnu.
Allir þeir, sem eru hlynntir fullri
aðild okkar að NATO, þar sem við
höfum fullan aðgang að umræðu
og ákvörðunum, getum látið rödd
okkar heyrast, sem fullgilt aðildar-
ríki, ættu að styðja fulla aðild okkar
að ESB, með sama hætti, en ávinn-
ingur okkar af fullri aðild þar er í
raun ekki síður mikilvægur, jafnvel
meiri.
Með fullri aðild, fengjum við 6
menn á Evrópuþingið og okkar
eigin kommissar, ráðherra, af þá 28
í framkvæmdastjórninni, en allar
aðildarþjóðirnar hafa einn ráð-
herra hver, líka Þjóðverjar, Frakkar
og Ítalir, allar bara einn.
Ef við sendum góðan mann, eða
konu (þó að þær séu fyrir mér menn
líka), til Brüssel, er ekki loku fyrir
það skotið, að okkar fulltrúi gæti
orðið forseti framkvæmdastjórnar-
innar, á sama hátt og Jean-Claude
Juncker, frá öðru smáríki, Lúx-
emburg, var um langt árabil forseti
og með honum á valdastóli Donald
Tusk, frá Póllandi, sem heldur ekki
er eitt af stærstu ríkjum ESB.
Þar áður var José Manuel Bar-
roso, frá Portúgal, 10 milljón manna
landi, forseti framkvæmdastjórn-
arinnar, en ESB velur ekki menn í
valdastöður eftir stærð landanna,
sem þeir koma frá, heldur eftir
hæfileikum, kostum og getu ein-
staklingsins. n
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
FréTTABlAðið skoðun 117. FEBrúAr 2023
ÞRIðJuDAGuR