Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 38
Það er eins og þetta sé þaulæft augnablik að ná svona þessum vinkli og þessu mómenti. 22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 7. FeBRúAR 2023 ÞRiðJUDAGUR Við gerum tilboð í stærri og smærri verk fyrir einstaklinga, félagasamtök og stofnanir. hjolatvinnulifsins@gmail.com Hjól atvinnulífsins ehf. Sími 777 2531 Hjól atvinnulífsins ehf. Málningardeild Kynnir EVU Eva er metnaðarfull og hjá henni er fagmennskan í fyrirrúmi Hún er jafnvíg á veggfóður, lökkun, og alla alhliða málningarvinnu Eva málar allt sem skiptir máli !!!!!! Víkingur Heiðar leikur Ave María úti í Engey í tónlistar­ myndbandi sem gerir nú stormandi lukku á YouTube en þegar píanósnillingurinn slær lokatóninn birtist óvænt kráka sem flýgur yfir höfuð hans og hleður augnablikið ómetanlegri dramatík fyrir leikstjórann Erlend Sveinsson sem segir tilviljunina algera. toti@frettabladid.is „Viðbrögðin eru bara alveg vonum framar og ég held við séum bara akkúrat núna að detta í milljón áhorf á YouTube á einhverjum tíu dögum. Það eru um það bil hund­ rað þúsund manns á dag,“ segir Erlendur Sveinsson sem leikstýrir nýju tónlistarmyndbandi þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson leikur Ave María á píanó sem þyrla flutti, af öllum stöðum, út í Engey. „Víkingur er náttúrlega stór­ stjarna í tónlistarheiminum og þá sérstaklega þeim klassíska og hugmyndin var að gera tónlistar­ myndband við plötuna From Afar sem hann var að gefa út hjá Deutsc­ he Grammophon,“ heldur Erlendur áfram og bendir á að útgáfufyrirtækið, sem frægt er fyrir sinn g u la l ím­ miða, sé það elsta í heimi og hafi á sínum snærum ek k i ómerkari talenta en Moz­ art og Bach. Erlendur segir að í einhverju samtali við útgefandann hafi sú hugmynd komið upp að fara eitthvert með píanó til þess að taka f lutning Víkings upp og eftir nokkra umhugsun og hugmyndavinnu endaði hann með píanó og flytjandann úti í Engey þar sem hann spilaði Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns. Algert vesen Þegar hugmyndavinnan dró Erlend að eyju sem tökustað segist hann hafa séð Viðey sem spennandi kost en rak þá augun í Engey sem hann hafði engan gaum gefið áður. „Þá náttúrlega fór hugmyndaflugið af stað og undirbúningurinn að því í fyrsta lagi að koma píanói þarna út og svo fólki. Þetta var algert vesen þar sem það er náttúrlega engin höfn þarna og ekkert auðvelt að komast þarna með bát og hvað þá að koma píanói á eyjuna. Þannig að þá var bara eitt í boði og það var þyrla,“ segir Erlendur. Rammfalskur loftflutningur K r ist ín Sævarsdótt ir, samstarfskona hans og f r a m leiða nd i m y n d b a n d s i n s , endaði síðan með því að leggja sjálf til píanóið sem var ferjað í háloft­ unum á tökustað í því sem Erlendur líkir við herf lutn­ inga. „Það er gaman að segja frá því að þetta er f jölsk yldupíanóið hennar Kristínar sem er búið að vera í fjöl­ skyldunni hennar í áratugi og nú er það sko heldur betur komið með sögu.“ Þegar píanóið, Erlendur, Kristín, tökumaðurinn Baldvin Vernharðs­ son og síðast en ekki síst Víkingur Heiðar voru öll komin á staðinn var ekkert því til fyrirstöðu að byrja. Annað en auðvitað að stilla hljóð­ færið eftir ferðalagið með tilheyr­ andi raski og hitasveiflum. „Diddi píanóstillir varð að sjálf­ sögðu að vera með þar sem píanóið var náttúrlega alveg rammfalskt eftir þessa flutninga,“ segir Erlendur og bætir aðspurður við að Deutsche Grammophon sjái síður en svo eftir aurnum sem fór í þyrluflugið með Víking og píanóið. Ekki sveltur tónelsk kráka „Þau eru alveg í skýjunum með þetta,“ segir Erlendur um útgefend­ Lokatónn Víkings Heiðars óvænt sleginn með kráku Krákan tók flugið sem þaulæfð væri akkúrat þegar Víkingur Heiðar sló lokatóninn í Engey. Mynd/Aðsend urna sem tóku, eins og hann sjálfur, fagnandi fljúgandi kráku sem segja má að fullkomni myndbandið með óvæntri innkomu akkúrat þegar Víkingur slær lokanótuna. „Undir lok myndbandsins, þegar Víkingur slær seinustu nótuna sína, f lýgur kráka af stað í átt að mynda­ vélinni og það var bara alveg eins og þetta væri planað. Það er eins og þetta sé þaulæft augnablik að ná svona þessum vinkli og þessu mómenti þannig að þetta var ansi mögnuð tilviljun.“ Erlendur bendir á að viðbrögð hans við óvæntu útspili krákunnar tónelsku sé hægt að sjá á YouTube í stuttu myndbandi um píanóflutn­ ingana og gerð tónlistarmynd­ bandsins. „Hann heitir Bjarni Svanur sem dokúmentaði ferlið en okkur fannst þetta svo áhugavert og óhefðbundið að það væri tilvalið að fá hann til þess að fylgja okkur eftir í gegnum þetta allt saman.“ n Þyrlu þurfti til þess að koma píanóinu út í eyjuna og það var að vonum rammfalskt þegar þangað var komið sem var þó ekkert sem Diddi píanóstillir gat ekki bjargað. Mynd/Aðsend

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.