Fréttablaðið - 07.02.2023, Síða 36

Fréttablaðið - 07.02.2023, Síða 36
Árshátíð tónlistarbransans var haldin með hefðbundn- um stæl og Harry Styles um helgina. Ben Affleck leiddist þótt veislustjórinn Trevor Noah færi mikinn með gamanmál á meðan Adele fann klettinn sinn, Beyoncé brilleraði og Lizzo, Shania Twain og áðurnefndur Harry frömdu senuþjófnaði með klæðaburði sínum. toti@frettabladid.is Tónlistarverðlaunagripunum sem kenndir eru við Grammy var útdeilt á glæsilegu þorrablóti ríka, fína og fræga fólksins í Los Angeles aðfara- nótt mánudags. Ice-T og Coco mættu sprúðl- andi hress til veislunnar þar sem Adele fann klettinn sinn, Beyoncé brilleraði og flest þau sem vettlingi geta valdið og á míkrófóni haldið létu ljós sitt skína í sínu fínasta eða furðulegasta pússi. Vart var því þverfótað fyrir senuþjófum og ljós- myndarar heimspressunnar máttu hafa sig alla við þegar þeir smelltu af myndum í þúsundatali. Hér gefur því aðeins að líta örlítið sýnishorn frá kvöldinu sem fór ákaflega vel fram enda Will Smith, sem betur fer, fjarri góðu gamni og því fékk enginn á lúðurinn en lúðrum var útdeilt af einurð og festu til þeirra sem teljast mega fremst meðal jafningja á hinum ýmsu tón- listarsviðum. n Lúðrablástur og tískuslys á þorrablóti í LA Lizzo kann listina að vekja jákvæða athygli og toppaði sig í einhverju frá Dolce&Gabbana sem huldi kjól sem hlýtur að mega teljast einn sá glæsilegasti á þessu þorragiggi. Adele fékk ekki aðeins lúður heldur rættist draumur hennar um að fá að hitta Dwayne Johnson, sjálfan Klettinn, þegar hann læddist aftan að henni á sannkölluðu Kodak-augnabliki. Sjitt, hvað mér leiðist hérna! Ben Affleck er eins og fiskur í vatni á Óskarsverðlaun- unum en tónlistarmegin í tilveru Jennifer Lopez er hann meira eins og þorskur á þurru landi. Megan Fox og Machine Gun Kelly voru ansi hreint svöl. Hún þó mun betur áttuð en vélbyssukjaftur- inn sem var ekki alveg með hugann við stund og stað. Hin mjög svo sigursæla Taylor Swift var elegant að vanda og fangaði athygli viðstaddra með notalegri nærveru og nokkuð klass- ískum sundurslitnum kjól frá Roberto Cavalli. Ofur- hjónin Coco og Ice-T, sá forni rapphundur sem í seinni tíð hefur helst látið að sér kveða sem löggan Odafin Tutuola í Law&Or- der:SVU lyfta hvaða gleðskap sem er á hærra plan. Harry Styles lét EgonLab klæða sig og óð beint í skotlínu kynnisins Trevor Noah sem sagði hann sérlega fínan í kvennaríum þótt hann væri í einhvers konar tilbrigði við smekkbuxur. Ef ég sé með hatt- inn! Shania Twain lét aðra tískusenuþjófa ekki eiga neitt inni hjá sér og varpaði skugga sínum á þau með rauðu hári og speisaðri drakt frá Harris Reed. Með hatt í stíl. Að öllum hinum ólöstuðum skein stjarna Beyoncé skærast. Hún hirti fjóra lúðra og er komin með 32 styttur í hús og þar með sigursælasti tónlistar- maðurinn í sögu Grammy. 20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 7. FeBRúAR 2023 ÞRiðJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.