Fréttablaðið - 07.02.2023, Page 36
Árshátíð tónlistarbransans
var haldin með hefðbundn-
um stæl og Harry Styles um
helgina. Ben Affleck leiddist
þótt veislustjórinn Trevor
Noah færi mikinn með
gamanmál á meðan Adele
fann klettinn sinn, Beyoncé
brilleraði og Lizzo, Shania
Twain og áðurnefndur Harry
frömdu senuþjófnaði með
klæðaburði sínum.
toti@frettabladid.is
Tónlistarverðlaunagripunum sem
kenndir eru við Grammy var útdeilt
á glæsilegu þorrablóti ríka, fína og
fræga fólksins í Los Angeles aðfara-
nótt mánudags.
Ice-T og Coco mættu sprúðl-
andi hress til veislunnar þar sem
Adele fann klettinn sinn, Beyoncé
brilleraði og flest þau sem vettlingi
geta valdið og á míkrófóni haldið
létu ljós sitt skína í sínu fínasta eða
furðulegasta pússi. Vart var því
þverfótað fyrir senuþjófum og ljós-
myndarar heimspressunnar máttu
hafa sig alla við þegar þeir smelltu af
myndum í þúsundatali.
Hér gefur því aðeins að líta örlítið
sýnishorn frá kvöldinu sem fór
ákaflega vel fram enda Will Smith,
sem betur fer, fjarri góðu gamni
og því fékk enginn á lúðurinn en
lúðrum var útdeilt af einurð og festu
til þeirra sem teljast mega fremst
meðal jafningja á hinum ýmsu tón-
listarsviðum. n
Lúðrablástur og
tískuslys á
þorrablóti í LA
Lizzo
kann
listina að vekja
jákvæða athygli og
toppaði sig í einhverju
frá Dolce&Gabbana sem
huldi kjól sem hlýtur að
mega teljast einn sá
glæsilegasti á þessu
þorragiggi.
Adele
fékk ekki
aðeins lúður heldur
rættist draumur hennar
um að fá að hitta Dwayne
Johnson, sjálfan Klettinn,
þegar hann læddist aftan
að henni á sannkölluðu
Kodak-augnabliki.
Sjitt,
hvað mér
leiðist hérna! Ben
Affleck er eins og fiskur
í vatni á Óskarsverðlaun-
unum en tónlistarmegin
í tilveru Jennifer Lopez
er hann meira eins og
þorskur á þurru
landi.
Megan Fox
og Machine Gun
Kelly voru ansi hreint
svöl. Hún þó mun betur
áttuð en vélbyssukjaftur-
inn sem var ekki alveg
með hugann við
stund og stað.
Hin
mjög svo
sigursæla Taylor
Swift var elegant að
vanda og fangaði athygli
viðstaddra með notalegri
nærveru og nokkuð klass-
ískum sundurslitnum
kjól frá Roberto
Cavalli.
Ofur-
hjónin Coco
og Ice-T, sá forni
rapphundur sem í
seinni tíð hefur helst látið
að sér kveða sem löggan
Odafin Tutuola í Law&Or-
der:SVU lyfta hvaða
gleðskap sem er á
hærra plan.
Harry
Styles lét
EgonLab klæða sig
og óð beint í skotlínu
kynnisins Trevor Noah
sem sagði hann sérlega
fínan í kvennaríum þótt
hann væri í einhvers
konar tilbrigði við
smekkbuxur.
Ef ég
sé með hatt-
inn! Shania Twain
lét aðra tískusenuþjófa
ekki eiga neitt inni hjá sér
og varpaði skugga sínum
á þau með rauðu hári
og speisaðri drakt frá
Harris Reed. Með
hatt í stíl.
Að
öllum
hinum ólöstuðum
skein stjarna Beyoncé
skærast. Hún hirti fjóra
lúðra og er komin með 32
styttur í hús og þar með
sigursælasti tónlistar-
maðurinn í sögu
Grammy.
20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 7. FeBRúAR 2023
ÞRiðJUDAGUR