Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 24
Í augnablikinu finnst mér ekkert leiðinlegt í vinnunni, en ætli það sé ekki skemmtilegast þegar það stemmir hjá manni. Eymundur Sveinn Einarsson hefur verið löggiltur endur- skoðandi í 24 ár og er eigandi og framkvæmdastjóri hjá Endurskoðun og ráðgjöf í Garðabæ sem tók til starfa árið 2000. gummih@frettabladid.is Eymundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð árið 1987, lauk Cand.oecon-prófi frá Háskóla Íslands 1992 og fékk löggildingu í endurskoðun árið 1999. Hann er stjórnarmaður í Félagi löggiltra endurskoðenda en félagið vinnur að hagsmuna- og framfaramálum á starfssviði endurskoðenda og er vettvangur skoðanaskipta um fagleg málefni. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að mennta þig sem löggiltur endur- skoðandi? „Einhvern veginn datt ég inn í bókhald strax í afleysingum á unglingsárum. Fyrir mér hafa bók- hald og reikningsskil virkað sem einhvers konar púsluspil eða þraut sem þarf að leysa og getur ekki annað en gengið upp. Að mennta mig í reikningshaldi og endur- skoðun fannst mér vera rökrétt framhald á þeirri áráttu,“ segir Eymundur. Þú ert búinn að vera í bransanum frá árinu 1999. Hafa ekki orðið miklar breytingar á þessum tíma? „Fyrir utan tæknilegar breyt- ingar sem er óþarfi að telja upp, þá hafa ákveðnir grunnþættir ekki breyst mikið eins og persónuleg ráðgjöf, reikningsskil og skattskil. Hins vegar er annað sem hefur breyst gífurlega en það er allt sem varðar endurskoðun félaga. Íslendingar fylgja alþjóðlegum stöðlum um í endurskoðun sem hafa verið að taka miklum breyt- ingum undanfarin ár. Því miður er það þannig í „ör“-hagkerfi, eins og því íslenska, þar sem verið er að innleiða kröfur til íslenskra félaga hvað varðar endurskoðun, að það eru gerðar sömu kröfur til lítilla félaga hér og risafyrirtækjasam- steypa í Evrópu. Það er í raun með ólíkindum að atvinnulífið skuli ekki bregðast við með einhverjum hætti þar sem kostnaður minni félaga á Íslandi sem þó geta verið endurskoðunar- skyld, er gífurlegur. Þetta á við þegar stór hluti endurskoðunar- vinnunnar er „tickboxing“ til að uppfylla skilyrði endurskoðunar- staðla sem eiga engan veginn við í okkar umhverfi. Að mínu mati er búið að fjarlægja „common“ út úr „common sense“ eins og maður segir á góðri ísl-ensku. Því miður virðist ekki vera neinn áhugi eða þekking hjá hinu opinbera til þess að bregðast við þessu með reglugerða- eða lagabreytingum atvinnulífinu til hagsbóta,“ segir Eymundur. Kröfurnar eru sífellt að aukast Er þetta skemmtilegt og gefandi starf? „Fyrir mér er starfið ákveðið áhugamál. Sem endurskoðanda gefst manni tækifæri til að eiga samskipti við mikinn fjölda fólks og jafnframt fá mikla innsýn í þá fjölbreyttu starfsemi sem við- skiptavinir okkar standa í. Þrátt fyrir að vinnan sé mjög krefjandi þá fylgja starfinu miklir kostir, atvinnuöryggið er gott og afkoman er prýðileg.“ Er mikil eftirspurn eftir störfum ykkar? „Hún er gríðarleg og vinnuálagið er töluvert. Ég var einhvern tímann spurður að því hvort ég ynni mikið og ég svaraði því til að ég væri svona „átta til fjögur“ týpan. Við- komandi fannst það reyndar ekki vera mikið þangað til að ég benti honum á að ég væri ekki að meina 08.00 til 16.00. En það er mikil eftirspurn eftir okkar störfum og kröfurnar til okkar eru sífellt að aukast,“ segir Eymundur. Hvaða kostum þarf góður endur- skoðandi að búa yfir? „Miðilshæfileikar gætu reyndar oft komið sér hrikalega vel. En fyrst og fremst hæfileikinn að geta greint kjarnann frá hisminu, vera glöggur greinandi og hafa þraut- seigju og hæfileika til geta borað sig í gegnum verkefni.“ Hefur orðið fækkun í ykkar stétt? „Já, því miður. Á árunum 2016– 2021 fækkaði löggiltum endur- skoðendum sem störfuðu við fagið úr 260 í 230, þannig að þetta er töluverð fækkun í hlutfalli við stækkun hagkerfisins og auknar kröfur til stéttarinnar. Mín skoðun er sú að hluti af vandamálinu sé hversu erfitt er að fá ungt fólk inn í stéttina, fyrirkomulag aðgengis að faginu sé komið á einhvers konar endastöð. Ferillinn frá því þú ákveður að reyna við löggildingu í faginu og þar til þú klárar, eða ekki, er einfaldlega allt of langur. Ég held að það sér algert forgangs- mál að breyta því sem fyrst,“ segir Eymundur. n Púsluspil eða þraut sem þarf að leysa Eymundur segir að fyrir sér sé starfið ákveðið áhugamál og þrátt fyrir krefjandi vinnu fylgi því miklir kostir. MYND/AÐSEND Sem endurskoð- anda gefst manni tækifæri til að eiga samskipti við mikinn fjölda fólks og jafnframt fá mikla innsýn í þá fjölbreyttu starfsemi sem viðskiptavinir okkar standa í. Eymundur Sveinn Einarsson 6 kynningarblað 7. febrúar 2023 ÞRIÐJUDAGUREndurskoðun og bókhald Þóra Birna Gísladóttir lauk námi í bókhaldi frá Nýja tölvu- og viðskiptaskól- anum, NTV, fyrir rúmu ári síðan. Áhuginn á bókhaldi kviknaði þegar hún var í meistaranámi í matvæla- greinum þar sem hún tók kúrsa í bókhaldi. sandragudrun@frettabladid.is Námið í NTV var þrjár annir og Þóra Birna segir að námið hafi algjörlega staðist væntingar, kennararnir hafi verið frábærir og nemendahópurinn fjölbreyttur og á öllum aldri. „Þetta var fólk með alls konar bakgrunn, konur voru í meirihluta en það voru líka nokkrir karl- menn,“ segir hún. Áður en Þóra Birna skellti sér í bókhaldsnám hafði hún lokið námi sem framreiðslumaður, eða faglærður þjónn. Hún var líka með meistaragráðu í matvælagreinum og hafði unnið störf tengd því. „Ég hafði aðallega unnið á veitingastöðum áður en ég fór í bókhaldsnámið. Ég vann lengi á Lækjarbrekku sem vaktstjóri og meistari en vann líka í nokkur ár á leikskóla,“ segir hún. Bókhaldsnám var því frekar stór breyting frá fyrra námi og störfum Þóru Birnu. Hún hafði þó fengið smjörþefinn af því áður en hún skráði sig í NTV. „Það voru bókhaldskúrsar í meistaranámi mínu í matvæla- greinum sem kynntu mig fyrst fyrir greininni. Ég fékk svo smá reynslu af bókhaldskerfi við vakt- stjórastörf á veitingahúsi. Það vakti áhuga minn á frekara námi í faginu,“ útskýrir hún. Fjölbreytt verkefni Þóra Birna segir að það hafi ekki verið auðvelt að finna starf að námi loknu þar sem flestir leita eftir einhverjum með reynslu. En hún fann sem betur fer starf hjá Örmum ehf. og sér þar um bók- hald, skipulag og fleira fyrir Arma bíla. Starfið er fyrsta starf hennar sem viðurkenndur bókari. Spurð að því hvort hún hafi fengið einhverja starfsþjálfun í náminu hjá NTV eða hvort henni hafi bara verið hent beint út í djúpu laugina þegar hún hóf störf segir hún að starfsþjálfun hafi ekki verið hluti af náminu en hún fékk góða aðstoð frá samstarfsfólki sínu hjá Örmum sem hjálpaði henni að komast inn í starfið. „Verkefnin eru mjög fjölbreytt hjá mér þar sem ég sé um fyrirtæki frá A til Ö. Það er oft þannig að hlutverkum er skipt á milli, einn sem sér kannski bara um að senda reikninga en þetta fyrirkomulag gefur manni mestu reynsluna,“ útskýrir Þóra Birna. Hún er mjög ánægð með að hafa tekið ákvörðun um að skella sér í bókhaldsnám. „Ég kynnist alls kyns fólki. Bæði í náminu og á vinnustaðnum mínum. Þar er fólk alls staðar að úr þjóðfélaginu sem poppar upp daginn,“ segir hún. Hún segir einn- ig aðspurð að auðvelt sé að aðskilja vinnu og einkalíf í þessu starfi. „Það er mjög einfalt. Vinnutím- inn getur verið sveigjanlegur og það er ekkert mál að skilja vinnuna eftir í vinnunni.“ Margir hafa þær hugmyndir að bókhaldsstarf sé þurrt og leiðin- legt? Er það þín upplifun? „Það er ekki mín upplifun, en fer líklega eftir einstaklingum og vinnunni. Mitt starf er mjög fjölbreytt og kannski myndi mér leiðast ef ég væri að gera alltaf það sama alla daga allan daginn. En almennt held ég að bókhalds- starf sé ekki þurrt og leiðin- legt,“ segir Þóra Birna. Hún segir erfitt að nefna eitthvað eitt sem er skemmtilegast við starfið. „Í augnablikinu finnst mér ekk- ert leiðinlegt í vinnunni, en ætli það sé ekki skemmtilegast þegar það stemmir hjá manni.“ Spurð að því hvort námið hafi borgað sig og hvort bókhalds- störf séu vel launuð, svarar hún að námið hafi klárlega borgað sig. „Þetta er besta vinna sem ég hef verið í. Ég held að bókhalds- störf séu almennt vel borguð, og klárlega betur launuð ef þú ferð í námið.“ n námið hefur klárlega borgað sig Þóra Birna sér ekki eftir að hafa skellt sér í bókhaldsnám. MYND/AÐSEND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.