Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.02.2023, Blaðsíða 11
Það er hálf undarlegt og eiginlega illskiljanlegt, þegar góðir menn og gegnir, skynsamir menn, tjá sig með þeim hætti, að Atlantshafsbanda- lagið, NATO, full aðild og þátttaka í starfi þess, sé f lott mál og fínt, en full aðild að ESB kolómögulegt áform, sem hafna beri. Það er nefnilega svo, að í grund- vallaratriðum eru það nákvæmlega sömu bræðra- og vinaþjóðirnar okkar, sem standa að báðum þess- um bandalögum. Í þeim skilningi er hér um nákvæmlega sama vina- og samstarfshópinn að ræða. Sömu vinirnir, sömu samherjarnir. Í báðum tilvikum eru skuldbind- ingar okkar miklar, við verðum um margt að fylgja sameiginlegri stefnu, sem við eigum fullan þátt í að móta hjá NATO, gætum líka átt hjá ESB, ef við værum þar inni, en á móti koma öryggi og margvíslegir kostir og réttindi, sem vega þyngra. Í NATO eru meðlimaríkin 30, og þau 4 evrópsku ríki, sem þar eru, en ekki í ESB, Albanía, Svartfjallaland, Norður Makedónía og Tyrkland, eru með öllum krafti og öllum ráðum að reyna að komast inn í ESB líka. Í ESB eru nú 27 ríki, þar af 21 í NATO, og EES-ríkin Ísland og Nor- egur eru auðvitað líka í NATO. Hvert er svo hlutverk þessara tveggja bandalaga og hverjir eru kostirnir við aðild? n NATO gætir sameiginlegra Já við NATO og nei við ESB stenst ekki skoðun Ole Anton Bieltvedt samfélagsrýnir og alþjóðlegur kaup- sýslumaður varna, öryggis og sjálfstæðis aðildarríkjanna n ESB gætir sameiginlegra mann- réttinda í aðildarríkjunum n ESB gætir líka sameiginlegra efnahagsmála og velferðar þeirra n ESB gætir enn fremur öryggis fyrirtækja aðildarríkja, atvinnu- starfsemi og almennings (með alls konar háum CE-stöðlum, sem tryggja öryggi og gæði hverskyns áhalda og verk- færa, allra véla og farartækja, allrar innfluttrar matvöru, alls fatnaðar o.s.frv., en CE-merkið blasir auðvitað við okkur á hvers konar varningi, sem gæða- og öryggisstimpill fyrir notandann eða neytandann) n ESB tryggir samkeppni, neyt- endarétt og neytendavernd í aðildarríkjunum (það hefur knúið fram sanngjörn símakjör fyrir alla ESB- og EES símanot- endur, styrkt réttindi ferða- manna gagnvart flugfélögum og annarri ferðaþjónustu, tryggt neytendum sanngjörn þjón- ustugjöld banka, tryggt sam- eiginlega sjúkraþjónustu allra ESB- og EES-borgara o.s.frv.) n ESB gegnir forystuhlutverki í því, að tryggja þegnum aðildar- ríkjanna frelsi til orðs og æðis og mesta mögulega lýðræði í álfunni n ESB ver þegna aðildarríkja gegn einokun og markaðsmisnotkun stórfyrirtækja og alþjóðlegra auðhringja n ESB er leiðandi afl í uppbygg- ingu menntunar og menningar í aðildarríkjunum n ESB leiðir tæknilega framþróun, innleiðingu stafrænna lausna og fjármögnun framtíðartækni í aðildarríkjunum n ESB gegnir algjöru forystuhlut- verki meðal aðildarríkjanna, hvað varðar umhverfisvernd og minnkun mengunar og eitur- efna, spillingu lofts, láðs og lagar, eyðingu dýra, náttúru og skóglendis, ekki bara í Evrópu, heldur um allan heim n ESB tryggir sameiginleg ytri landamæri álfunnar n ESB tryggir þegnum aðildar- ríkjanna mestu mögulegu rétt- indi og möguleika til ferðalaga og viðskipta meðal þjóða og bandalaga utan ESB. Nú er það auðvitað svo, að Banda- ríkin og Kanada eru líka í NATO, án þess að vera í ESB. Náinn viðskipta- og samvinnusamningur, fríverzlun- arsamningur, er hins vegar kominn á milli ESB og Kanada, sem tók 7 ár að fullgera. Svipaður náinn viðskipta- og samstarfssamningur var líka í burð- arliðunum milli ESB og USA, meðan Obama sat þar við stjórnvölinn, og eflaust fara þær umleitanir aftur af stað, ef demókratar halda völdum í USA. Það breytir þó ekki því, að Evrópa, nú ESB og NATO, bæði bandalögin með höfuðstöðvar í Brüssel, verða að tryggja eigin evrópskar lausnir og framtíðarvelferð, hagsmuni og öryggi, þar sem valdataka manns, eins og Donalds Trump, getur aftur átt sér stað í USA, en menn eins og hann geta kippt fótunum undan NATO, Atlantshafssamstarfinu, og reyndar annarri alþjóðasamvinnu. Allir þeir, sem eru hlynntir fullri aðild okkar að NATO, þar sem við höfum fullan aðgang að umræðu og ákvörðunum, getum látið rödd okkar heyrast, sem fullgilt aðildar- ríki, ættu að styðja fulla aðild okkar að ESB, með sama hætti, en ávinn- ingur okkar af fullri aðild þar er í raun ekki síður mikilvægur, jafnvel meiri. Með fullri aðild, fengjum við 6 menn á Evrópuþingið og okkar eigin kommissar, ráðherra, af þá 28 í framkvæmdastjórninni, en allar aðildarþjóðirnar hafa einn ráð- herra hver, líka Þjóðverjar, Frakkar og Ítalir, allar bara einn. Ef við sendum góðan mann, eða konu (þó að þær séu fyrir mér menn líka), til Brüssel, er ekki loku fyrir það skotið, að okkar fulltrúi gæti orðið forseti framkvæmdastjórnar- innar, á sama hátt og Jean-Claude Juncker, frá öðru smáríki, Lúx- emburg, var um langt árabil forseti og með honum á valdastóli Donald Tusk, frá Póllandi, sem heldur ekki er eitt af stærstu ríkjum ESB. Þar áður var José Manuel Bar- roso, frá Portúgal, 10 milljón manna landi, forseti framkvæmdastjórn- arinnar, en ESB velur ekki menn í valdastöður eftir stærð landanna, sem þeir koma frá, heldur eftir hæfileikum, kostum og getu ein- staklingsins. n N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is ÚTSALA á sýningarvörum í verslun Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar, sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60% afsláttur Ciro 3 litir Áður 39.900 NÚ 29.900 Alison snúnings Áður 33.900 NÚ 27.000Sierra nokkrir litir Áður 25.700 NÚ 19.200 Kato svart Áður 29.900 NÚ 19.400 Adele Áður 39.900 NÚ 23.900 Obling 3ja sæta Áður 129.000 NÚ 103.000 Brookliyn borðstofuborð 220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik Áður 199.000 NÚ 149.000 Notthingham sófaborð Áður 116.000 NÚ 58.000 Hill hvíldarstóll með tauáklæði Áður 176.000 NÚ 123.000 Staturn 3ja sæta Áður 159.000 NÚ 119.000 25% 25% 25% 25% 40% 50% 35% 30% 20% 20% FréTTABlAðið skoðun 117. FEBrúAr 2023 ÞRIðJuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.