Fréttablaðið - 17.02.2023, Síða 18
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Ólöf Ólafsdóttir konditori er
þekkt fyrir sína sælkeraeftir-
rétti sem hafa slegið í gegn á
veitingastaðnum Monkeys,
fyrir bragð, áferð og útlit.
Hún hefir unnið til verð-
launa fyrir Eftirrétt ársins
árið 2021 en þá kom hún,
sá og sigraði með guðdóm-
legum eftirrétti. Ári síðar var
hún skipuð í dómnefndina.
Ástríða Ólafar hefur legið í bakstri
og eftirréttagerð frá því hún man
eftir sér. Í þættinum Matur og
heimili á dögunum galdraði hún
fram uppáhaldsbollurnar sínar
fyrir áhorfendur og deilir hér upp-
skriftinni svo allir geti leikið þetta
eftir fyrir bolludaginn.
„Ég hef alltaf verið með brenn-
andi áhuga á eftirréttum og
kökum. Áhugi minn á bakstri
vaknaði þegar ég var lítil. Ég fékk
alltaf að undirbúa og baka mínar
afmælistertur sjálf og einnig fyrir
litlu systur mína,“ segir hún og
bætir við: „Þá fékk ég að nýta sköp-
unargleði mína til fulls og baka allt
sem ég vildi. Ef þú spyrð mömmu
kæmi í ljós að ég setti allt eldhúsið
á hliðina, hveiti og súkkulaði alls
staðar, í öllum skúffum, hillum og
yfir öllu gólfinu,“ segir hún og hlær.
„Ferillinn byrjaði þegar ég var 17
ára. Þá fékk ég að aðstoða pastry-
eldhús en þegar ég steig þar inn
í fyrsta skipti vissi ég að þá yrði
ekki aftur snúið, þetta var það
sem mig langaði til þess að gera. Í
kjölfarið flutti ég til Danmerkur og
lærði konditorinn og vann náms-
samninginn minn í bakaríi hérna
heima. Stuttu eftir að ég útskrifað-
ist hóf ég störf á Monkeys sem head
pastry chef og fékk að hanna minn
eigin eftirréttaseðil. Sérstaða mín
er aðallega kökur og eftirréttir
þótt ég hafi líka brennandi áhuga á
croissant- og súrdeigsbrauðgerð.“
Afmælisterta fyrir ömmu
Spurð segir Ólöf að það fyrsta sem
hún bakaði alveg sjálf hafi verið
afmælisterta fyrir afmæli ömmu
sinnar. „Þetta var fyrsta alvöru
tertan en ég lærði að búa til minn
eigin sykurmassa úr sykurpúðum
og fékk að kaupa ballerínu- og
fiðrildaútstungujárn. Ég get ekki
lofað að þessi kaka hafi verið sú
Rjómabollur
að frönskum
hætti
Ólöf hefur
alltaf verið
með brenn-
andi áhuga á
eftirréttum og
kökum. Í þætt-
inum Matur og
heimili á dög-
unum bakaði
hún og full-
komnaði sínar
uppáhalds-
bollur i tilefni
bolludagsins og
deilir hér upp-
skriftinni með
lesendum.
Ólöf töfraði
fram hina
frönsku choux
au craquelin,
það er klassísk
vatnsdeigsbolla
með kex-
hjúp. Bolluna
fyllti hún með
vanillurjóma,
súkkulaði-
ganache og
maríneruðum
jarðarberjum.
Þvílík fegurð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Ólöf kenndi réttu handtökin í þætt-
inum Mat og heimili á Hringbraut.
fallegasta eða sú besta á bragðið en
hún hitti beint í mark,“ segir hún.
Árið 2021 vann Ólöf til verð-
launa fyrir eftirrétt ársins. „Hann
varð til þremur dögum fyrir
keppni. Ég var búin að æfa mig
í tvær vikur fyrir keppnina og
komin með eftirrétt sem ég var þó
ekki alveg nógu sátt við þannig
að ég ákvað að byrja alveg upp á
nýtt. Það var ekkert smá stress en
skilaði sér. Þemað fyrir keppnina
var vegan, ég hafði ekki unnið
mikið með það áður en það opnaði
augu mín fyrir alls konar skemmti-
legum og nýjum aðferðum.“
Verðlaunin voru ekki af lakari
taginu og færðu Ólöfu meiri þekk-
ingu og reynslu í faginu. „Í verð-
laun fyrir fyrsta sætið var ferð til
Chicago í The Chicago Chocolate
Academy og fékk ég diplómu í
„plated desserts“ eða fullkláraður
eftirréttur á diski.“
Einn af uppáhaldsdögum
Bolludagurinn á stóran sess í
hjarta Ólafar og tilhlökkunin
ávallt mikil. „Einn af uppáhalds-
dögunum mínum á árinu er bollu-
dagurinn og hef ég haldið ótal
mörg bollukaffi. Ég ætla að deila
með ykkur minni uppáhaldsbollu
en það er hin franska choux au cra-
quelin, það er klassísk vatnsdeigs-
bolla með kexhjúp en ég bakaði
og útbjó fyllingu og toppaði hana
eins og mér þykir hún fallegust og
best í þættinum Matur og heimili á
dögunum.
Bolluna fyllti ég með van-
illurjóma, súkkulaði-ganache og
maríneruðum jarðarberjum.
Mitt helsta leynitrix þegar
kemur að vatnsdeigsbollubakstri
er að opna alls ekki ofninn á
meðan bollurnar bakast og passa
vel upp á þykktina á deiginu, það
má alls ekki vera of þykkt og alls
ekki of þunnt.“
Choux au craquelin með
jarðarberjum og vanillu
Kexdeig
100 g hveiti
100 g sykur
100 g mjúkt smjör
Blandið öllu saman í deig, rúllið
deiginu út á milli tveggja bök unar -
pappírsarka og setjið inn í kæli.
Vatnsdeig
100 g mjólk
100 g vatn
100 g smjör
Smá salt
100 g hveiti
3 egg
Hitið mjólk, vatn og smjör að
suðu. Bætið hveitinu og saltinu út
í og hrærið vel saman með sleikju.
Ristið deigið í pottinum í u.þ.b.
mínútu.
Setjið deigið í skál og leyfið því
að kólna, hrærið saman við það
eitt egg í einu og passið að fylgjast
með þykktinni á deiginu. Egg geta
verið mismunandi að stærð og
stundum þarf ekki að nota þau öll,
deigið á að vera þykkt og renna
frekar hægt af sleikjunni eða svo
að það haldi sér í nokkurn veginn
sömu lögun.
Setjið deigið í sprautupoka og
sprautið bollunum á bökunar-
plötu klædda smjörpappír. Takið
kexdeigið úr kælinum, stingið út
hringi sem eru örlítið stærri en
deigbollan.
Leggið kexið ofan á bolluna og
bakið í 175 °C heitum ofni í u.þ.b.
25-30 mínútur eða þar til að boll-
urnar eru orðnar gullinbrúnar.
Passið að opna ofninn ekki meðan
á bakstrinum stendur því þá er
hætta á að bollurnar falli.
Súkkulaði-ganache
200 g rjómasúkkulaði
100 g rjómi
Setjið súkkulaðið og rjómann
saman í skál og hitið í örbylgju-
ofni í 20 sekúndur í einu þangað
til að súkkulaðið er bráðið.
Maríneruð jarðarber
200 g jarðarber skorin í teninga
Rifinn börkur af einni sítrónu
1 tsk. sykur
Öllu blandað saman í skál.
Vanillurjómi
500 g rjómi
50 g flórsykur
Fræ úr einni vanillustöng
Allt sett saman í skál, síðan er
þetta þeytt þar til að rjóminn er
léttþeyttur.
Samsetning
Skerið bollurnar þversum í
tvennt, sprautið rjómanum á og
setjið jarðarberin ásamt súkku-
laði-ganache í miðjuna.
Setjið lokið ofan á bolluna og
skreytið að vild. Ég skreytti mínar
með rjóma, jarðarberjum og
blómum. n
6 kynningarblað A L LT 17. febrúar 2023 FÖSTUDAGUR