Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 4
Eftir Einar Benediktsson
Grein þessa um laxveitSi ritaSi Einar Bene-
diktsson skáld skömmu fyrir síSustu aldamót.
Greinin er svo meistaralega skrifuS, a8 sjálf-
sagt þótti aS birta hana hér í fyrsta tölublaSi
af málgagni íslenzkra lax- og silungsveiSi-
manna. Greinin er prentu’Ö upp úr „Sögur og
kvœÖ“, me8 leyfi útgefanda.
Við göngum á svig við tvo, þrjá
beztu veiðistaðina. Stangirnar yfir
öxlina og öngulinn kræktan neðst niður
í hjól. Færið smellur saman við hina
reyrmjúku stöng svo hvín í við hvert
spor. Sólin er að koma upp í röku
þokuskýi, rétt yfir austurásnum, og
breiðir skrúðskikkju gullroðna með
kvikulum litaskiptum yfir árbakkana;
þeir eru grasgrónir niður í vatn með
loðnum engjabekkjum, móum og hraun-
rjóðrum frá báðum löndum.
Jörðin er öll í einu úðabaði; stráin
drúpa við steina og þúfur, meyr og
þung, með glitrandi perlusveiga af næt-
urdögg. Þetta er skínandi fagur morg-
un. Loftið er svo himinhreint og hollt.
Allir fuglar kvaka af gleði, og áin suð-
ar og syngur svo langt sem eyrað heyr-
ir. Við göngum þegjandi upp með,
fram hjá melbörðum og holtum, þang-
að til við skiftum okkur í tvö laxalón,
sem liggja saman með stuttum lygnum
ál í milli.
Maðkurinn spriklar á oddinum, teyg-
ir sig og fettir eða skreppur í hnút og
vefur sig svo utan um krókinn, sem er
kappbeittur frá agnúa upp að spaða.
Það er til einskis að bjóða laxinum
minna en það mesta og bezta, sem kom-
ið verður á járnið. Hann er þóttafullur
alvörufiskur, sem aldrei lýtur að litlu,
sé annars kostur, og um þetta leyti er
hann stríðspikaður úr sjónum, en áin
full af æti.
Félagi minn er Frakki, hárfínn og
snyrtilegur. Hann vill ekki snerta á
maðki, og leiðist líka að tefja sig á að
egna öngulinn. Ég heyri hvininn af
færinu hans, snöggt og snarpt með
jöfnum bilum. Hann fleygir flugu
manna bezt, sem ég þekki. Ég hef séð
hann kasta móti vindi, hálfa leið út á
breiðasta hylinn, sem til er í ánni, og
það er ekki vandalaust. — Auk þess
ber hann sig vel við stöngina. Nú vagg-
ar hann sér í mjöðmunum, stígur þungt
á annan hælinn, og hallar sér hægt og
fimlega aftur á bak. Svo lyftir hann
stönginni hægt og hægt og dregur flug-
una að sér í skorpunni eftir endilöngu
lóni, eins og á að vera.
Ég geng fram á stóran stein, sem
stendur í ánni rétt við bakkann, spöl-
korn fyrir ofan lónið. í miðri ánni er
flúð undir vatnsborðinu, breið og mik-
2