Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 36

Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 36
V eiðimannasögur PF að veggir veiðihúsanna mættu mæla og tjöldin tala, væri margvíslegan fróðleik þangað að sækja. Þetta vita allir veiðimenn og það er sannast sagna, að margar minning- ar eiga laxa- og silungs-dorgarar, sem fá út- rás í hvíldartímanum á kvöldin, þegar búið er að búa um sig í svefnpokanum og kveikt hefir verið í pípunni. Miklar sögur fara af því, að þá séu viðhöfð stór orð og þá einkum séu stóru orðin í sambandi við þyngd og stærð laxanna, „sem misstust“, eftir að búið var að glíma við þá í marga klukkutíma. En það er með veiði- menn éins og Skotana, þeim þykir gaman að heyra þessar sögur af sjálfum sér og kippa sér alls ekki upp við það þó þeim sé brugðið um ýkjur. * EN það eru fleiri veiðisögur til heldur en um stærð fiska, sem misstust. Svo að segja í hverri einustu veiðiferð kemur eitthvað skemmtilegt atvik fyrir, sem þess er vert, að því sé haldið á lofti. „Veiðimaðurinn“ hefir hugsað sér að birta slíkar veiðisögur til fróð- leiks og skemmtunar og fara hér nokkrar á eftir. * T I ÉR skal ekki hirt um að tína gamla hús- * ganga, sem löngu eru orðnir landsfrægir, en þó sagan um Ólaf Hvanndal prentmynda- meistara sé á margra vitorði, þykir hún þess verð, að hún sé færð í letur. Ólafur var að veiða á flugu. Svo háttaði til, þar sem hann var, að klettur gekk fram í ána skammt fyrir neðan þar sem hann stóð. Hvann- dal er góður veiðimaður og kastar langt og fallega. Svo vildi til þó í þetta skipti, sem sag- an greinir frá, að flugan hvarf Hvanndal sjón- um fyrir klettinn í ánni. Hann hefir vafalaust verið annars hugar um stund. En menn geta gert sér i hugarlund undrun hans, er hann sá línuna fljúga hátt í loft upp, án þess að hann hreyfði stöngina. En er hann leit upp sá hann hvers kyns var: Kría hafði gleypt fluguna og fest í sér öngulinn! Hugkvæmur maður í okkar hóp leggur til að svona útbúnaður sé viðhafður á stangveið- um. Þá er vissa fyrir þyngd þeirra laxa, er missast. * SÖGU um félagslyndi laxahænga sagði mér einu sinni Sigfús Jónsson gjaldkeri hjá Morgunblaðinu. Hann var fyrir nokkrum ár- um að veiða í svokölluðum Straumum, en svo nefnist veiðistaður, þar sem Norðurá fellur í Hvítá. í fyrsta eða öðru kasti kom á hængur, sem síðar reyndist vera um 12 pund. Á meðan Sigfús var að glíma við laxinn tók hann eftir því að annar hængur fylgdi hinum fast eftir og það svo, að stundum mátti vart sjá hvor þeirra var á færinu. Þannig fylgdust þeir að, hlið við hlið, allan timann meðan ver- ið var að þreyta þann, sem á önglinum var, og er honum var landað kom þessi tryggi félagi hans svo nærri, að auðveldlega hefði mátt bera í hann. * j SUMAR vildi það til uppi í Borgarfirði, að *■ þrír kunnir veiðimenn voru að veiða í sama hylnum. Allt i einu segir einn þeirra: „Hann er á hjá mér!“ Annar segir svo að segja um leið: „Og líka hjá mér!“ 34

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.