Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 22
Ingólfur Einarsson:
SILUNGAFLUOUR
Gerfiflugur þær, sem notaðar eru
við silungsveiðar, skiptast í tvo
aðalflokka. f öðrum flokkinum eru hin-
ar svonefndu „Dry-flies“, eða þurflugur.
Með þeim er aðallega veitt á yfirborði
vatnsins, og til þess að þær ekki sökkvi,
er notuð sérstök olíutegund, sem borin
er á fjaðrirnar, enda eru þessar flugur
eins nákvæm stæling, eins og hægt er að
útbúa, af hinum náttúrulegu flugum, er
setjast á yfirborð vatnsins, og eru þess-
ar flugur mikill hluti af fæðu silungs-
ins. Svo undarlegt, sem það kann að
virðast, þá hafa þessar gerfiflugur ekki
reynzt vel hér, en ástæðan fyrir því er
ef til vill sú, að veiðimenn hafa ekki
reynt þær til þrautar, eða fáir er kunna
þá aðferð, sem höfð er, þegar þurflug-
ur eru notaðar, og er þá hafður sérstak-
ur þurflugu útbúnaður, þurflugustöng,
hjól, lína og girni.
í hinum flokkinum eru hinar svo-
nefndu „Wet-flies“, með þeim er fiskað
bæði í yfirborði vatnsins og undir, og
eru þær látnar sökkva misjafnlega
djúpt, eða eftir því sem maður verður
var við að silungurinn tekur helzt flug-
una. Þessar flugur eru frábrugðnar hin-
um, að því leyti, að þær eru flestar ekki
stæling af náttúrulegum flugum, heldur
eru þær skrautlega samansettar af mis-
jafnlega sterkum litum, til þess að ginna
silunginn. Það eru sumir sem halda því
fram, að fiskurinn sé litblindur, en þó
er það margreynt og sannað, að það er
ekki sama hvaða fluga er notuð, undir
hinum misjöfnu kringumstæðum, sem
veðráttan skapar, og hefir áhrif á, hvort
sem þar ræður — liturinn eða lukkan.
essar flugur eru aðallega notaðar
hér og reynast margar tegundir
þeirra ágætlega. Margir veiðimenn sem
eitthvað nota gerfiflugur, hafa ýmsar
skoðanir á því, hvernig öngullinn á að
vera, sem flugan er hnýtt á, enda eru til
margar gerðir af þeim sem reynast mis-
jafnlega. Til gamans ætla ég að láta hér
fylgja ummæli eftir enskan veiði-
„expert“, Mr. Roger Wolley, og lofa
mönnum að heyra álit hans á þessu
máli. Hann segir: — „Ideal“ silunga
flugu öngull á að vera gerður úr fínum,
mjóum vír, og það hæfilega hertum stáli,
að hann hvorki brotni eða réttist upp, þó
dálítið reyni á, augað lítið, og oddurinn
mjög skarpur, með litlu haki krókurinn
það hringmyndaður, að hvergi komi
fram snörp beygja. í notkun verður
þetta bezta gerðin af fluguöngli, sem
hægt er að fá, til þess að festa í fiskin-
um og halda honum“.
Þetta er álit hins enska veiðimanns,
enda eru önglar, eins og að ofan getur,
eingöngu notaðir á silungaflugur af ein-
um þekktustu og stærstu framleiðendum
heimsins í þessari grein, Messrs Hardy’s
Bros. Þessir önglar hafa verið töluvert
reyndir hér og gefizt ágætlega, undir
venjulegum kringumstæðum, en eins og
veiðimenn þekkja, hefir silungurinn það
orð á sér, að vera frekar kenjóttur, og
2C