Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Page 8
Gunnar Bachmann:
ATHYGILIN — VIÐ ANA
V7 lugufiski er vafalaust einhver allra
skemmtilegasta og fjölþættasta
íþrótt, sem iðkuð er, og hefir um það
efni mikið verið rætt og ritað. Enda
er efnið margbrotið og svo að segja
ótæmandi. Verður því ekki gerð nein
veruleg skil í stuttri blaðagrein. Hins-
vegar langar mig til að drepa á einn
þátt þess máls, — þátt, sem er ákaf-
lega skemmtilegur, — og ég vil
kalla „strammara" veiðimannsins, þeg-
ar lengi hefir verið „barið“ og einskis
orðið vart. Er hér átt við hinar ýmsu
hreyfingar laxins í og yfir vatnsflet-
inum. „Þegar hann sýnir sig“, eins og
við segjum á veiðimáli.
Sérhver athugull laxveiðimaður mun
hafa veitt því eftirtekt, að það er mjög
mismunandi hvernig laxinn vakir eða
kafar í vatnsskorpunni. En þetta er
mjög athyglisvert, og ættu veiðimenn
að gefa því meiri gaum en almennt er
gert. Því allar líkur eru til að einmitt
þetta — ef gaumgæfilega er athugað
— tryggi veiðimanninum meiri veiði
en ella. Og þá með réttri aðferð við
þann lax er vakir eða kafar.
Þekktir erlendir laxveiðimenn, sem
sérstaklega hafa athugað þetta, þykjast
hafa sannprófað, að aðallega sé það á í
þrennskonar máta sem laxinn hreyfi
sig í vatnsborðinu, þegar vilji er á hon-
um.
Almennt er, eins og flestum er kunn-
ugt, að hring slái á yfirborðið, er
laxinn vakir. Er þetta líkt og hjá sil-
ung, aðeins ákveðnara. Þetta á sér stað
er laxinn grípur eitthvað á yfirborð-
inu, eða mjög nærri því. Þó getur
hringurinn hafa myndast af sporðinum
á niðurleið, eftir að laxinn var við yf-
irborðið eftir svifi.1) 1 báðum þessum
tilfellum er þetta „gefinn fiskur“ á
flugu, ef rétt aðferð er notuð. En að-
ferðin fer eftir því, hvort laxinn tók
svifið á yfirborðinu eða rétt undir því.
Hafi manni virst hann taka á yfir-
borðinu, er flot-fluga (Dry-fly) hið
rétta. Hafi hann hinsvegar tekið svifið
undir yfirborðinu, þá á kaf-flugan
(Wet-fly) mikið betur við.
Stundum er það að laxinn kafar,
þannig að hann kemur upp með haus-
inn fyrst og síðan sér á bakuggann
um leið og hann fer niður aftur. I
þessu tilfelli tók hann svifið undir yf-
irborðinu — aðeins á annan máta en
í því fyrra. Og tekur laxinn kaf-flug-
una aldrei jafn vel og þegar þannig
liggur á honum.
Algengt er það, að laxinn skvetti
sér líkt og silungur. Þetta á sér stað
er hann sér svifið langt að og tekur
tilhlaup — ef svo mætti að orði kveða
— en getur ekki stöðvast í tæka tíð.
Þegar hann hagar sér þannig, er einn-
ig vilji á honum og ætti þá að vera
góður á flugu.
En hinsvegar, þegar maður sér lax-
inn stökkva allan upp úr vatninu,
með tálknin og kjaftinn lokaðann og
lætur sig falla þungt á kviðinn — er
verra í efni. Álitið er að þegar hann
hagar sér þannig, sé það vegna óþæg-
inda í hrygningarfærunum og engin
1) Svif = allt, sem berst með straumnum í
eða undir yfirborði.
6