Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 16
Gunnar Benediktsson:
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
r
Ahugi fyrir stangaveiði hefir hin síð-
ari árin farið mjög vaxandi hér í
bænum, og þarf ekki lengi að leita að
orsökunum til þess. í borgarrykinu og
sleninu, sem kyrrsetur og innivera
skapar, kemur innsta eðlið ríkar fram
hjá mönnum en ella, þráin eftir útivist-
inni í sveitasæluna við fossanið og fiski-
sæl vötn, gerir sínar kröfur, og veiði-
eðlið hjá íslendingum, hvort sem er í
bæjum eða sveitum, gerir sífellt vart við
sig, á hverju sem veltur.
En þó að fiskar vaki í ám og vötnum,
mæta stangaveiðimanninum ýmsir örð-
ugleikar. Oft er mjög erfitt að fá leigð
veiðiréttindi til lax eða silungsveiða á
þeim stað og tíma, sem hentar báðum
aðilum, leigutaka og eiganda réttind-
anna.
Útlendingar með f jármagni sínu hafa
góða aðstöðu til að yfirbjóða mörland-
ann og hafa náð hér beztu laxám á vald
sitt, ef ekki til afnota allt sumarið, þá
að minnsta kosti þann tíma sem beztur
er úr sumrinu, sem hagstæðastur er í
sambandi við laxagöngur og veiðiskil-
yrði..
Þá hefir viðvaningsháttur byrjanda
og kæruleysi veiðimanna í veiðiaðferð-
um með stöng valdið margskonar erfið-
leikum og tjóni, sem óhjákvæmilega
dregur úr og spillir eðlilegri þróun þess-
arar íþróttar.
Til þess að draga úr þessum og ýms-
um fleiri örðugleikum, er laxveiðimenn
hafa við að etja, var Stangaveiðifélag
Reykjavíkur stofnað.
Jafnframt er það hugmynd þeirra
manna, er stóðu að undirbúningi félags-
stofnunar þessarar, að auka þekkingu
þeirra manna, er áhuga hafa fyrir
stangaveiði, á málum þeim er þar að
lúta.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur var
stofnað 17. maí f. á., hér í bænum.
Samkvæmt ákvæðum félagslaganna er
tilgangur félagsins þessi:
a) Að veita þeim félagsmönnum, sem
vilja, og eftir því sem við verðum komið,
aðstoð til að fá leigð veiðiréttindi í veiði-
ám og vötnum.
b) Að vinna á móti því að notaðar
séu veiðiaðferðir, sem eru ólöglegar eða
líklegar til að spilla veiði.
c) Að auka samvinnu meðal þeirra, er
hafa áhuga á og taka þátt í lax- og sil-
ungsveiðum,
d) og að veita félagsmönnum fræðslu
um lax- og silungsveiðar, eftir því sem
tök eru á.
Um inntökuskilyrði í félagið er þann-
ig ákveðið í lögum þess, að þeim áhuga-
mönnum er heimill aðgangur í félagið,
sem meðmæli hafa frá þremur félags-
mönnum, ef þeir undirgangast:
1) að misnota ekki venjulega og við-
urkennda stangveiðiaðferðir, t. d. með
því að krækja lax eða gjöra tilraunir til
þess,
2) að koma jafnan vel fram við fé-
lagsmenn og viðskiptamenn félagsins,
3) og að hlýta lögum félagsins að
öðru leyti.
Þung viðurlög eru lögð við brotum
gegn reglum þeim, er félagið hefir sett
félagsmönnum.
Verði félagsmaður staðinn að veiði í
óieyfi, eða beiti hann veiðiaðferðum, sem
eru ólöglegar samkvæmt landslögum,
eða eftir lögum félagsins, skal hann
14