Veiðimaðurinn - 01.06.1940, Qupperneq 29
Höfundur greinarinnar er auðsýnilega
ánægður með veiðina.
hrekkur í sundur, þegar mest á reynir.
Vil ég taka þetta fram, vegna þess að
ég hefi ekki orðið var við að menn hefðu
þetta fyrir reglu. Girni getur verið gott
í tauma, en það verður alltaf að vera
mjúkt, þegar það er notað. Ég veit að
veiðimenn skylja, að þessi óhappasaga
er sögð hér, ef hún mætti verða öðrum
eins og hún hefir orðið mér: góð bend-
ing um að vera vel heima í öllu því,
sem að veiðiskapnum lítur, og valda
ekki ónauðsynlegum mistökum, sem
koma niður á fiskinum. Ekki get ég
lokið máli mínu svo, að minnast ekki
nokkrum orðum á hina miklu kosti flug-
unnar í sambandi við þetta. Þó að al-
gengt sé, að fiskur fari með flugu í sér,
eru þess mjög fá dæmi að það komi að
sök, og nokkur dæmi eru til, að fiskur
veiðist með flugu í trjónunni, og eru þá
hinir sprækustu, og má ef til vill geta
þess til, að svona „dekoreraðir“ fiskar,
sem með harðfengi hafa sloppið úr klóm
veiðimannsins, njóti hinnar mestu virð-
ingar í ríki fiskanna, — og ekki ósenni-
legt, ef það eru hængar, að allar vilji
hrygnur með þeim ganga.
En án gamans: það er sama, hvar
maður grípur niður í veiðiskapnum.
Flugufiskið er framar öllum öðrum að-
ferðum, bæði frá tæknislegu og mannúð-
arlegu sjónarmiði. Enskir veiðimenn
hafa að orðtaki, að sá komi „hreinn“
heim, sem ekkert hefir fengið. Ég vil
segja, að sá komi hreinn heim, sem veið-
ir með flugu, þótt hann hafi veitt vel.
Góður veiðimaður —
GÓÐUR VEIÐIMAÐUR brúkar al-
drei gömul gimi. Gæta skal þess, að
þurrka þau aldrei í sólarbirtu. Betra er
að bleita girnin í ákveðinni blöndu af
vatni og glycerini en hreinu vatni.
GÓÐUR VEIÐIMAÐUR fer vel með
veiddann fisk.
GÓÐUR VEIÐIMAÐUR hefir góða
umgengni við ána og hlýtir möglunar-
laust settum reglum.
GÓÐUR VEIÐIMAÐUR ber um-
hyggju fyrir veiðitækjum sínum og gæt-
ir þess vandlega að þau séu alltaf í góðri
hirðu.
GÓÐUR VEIÐIMAÐUR ætti aldrei
að skreyta hatt sinn með veiðiflugum,
því að afleiðing þess er sú, að flugurn-
ar upplitast, auk þess sem fluguboxið
er ólíkt hentugra.
GÓÐUR VEIÐIMAÐUR þurkar lín-
una sína strax að aflokinni veiðiferð.
Gott er að smyrja hana við og við með
þai til gerðri feiti.
GÓÐIR VEIÐIMENN — eru góðir
félagar.
27