Veiðimaðurinn - 01.09.1958, Page 54
ÞORS TEINN ERLINGSSON:
Rit l-lll
Tómas Guðmundsson
hefur séð um útgáfuna.
Þetta er fyrsta heildarútgáfa af ritum Þorsteins Erlingssonar og er
hún gerð til minningar um aldarafmæli skáldsins, 27. sept. Taka tvö
fyrstu bindin til ljóðmæla skáldsins, og eru þar á meðal nokkur kvæði,
sem áður hafa ekki komist á bók, en þriðja bindið hefur að geyma dýra-
sögur Þorsteins, þjóðsagnir, sem hann hefur skráð, og loks úrval af rit-
gerðum hans og blaðagreinum. Ennfremur fylgir ritunum hin merka og
ýtarlega ritgerð Sigurðar Nordals um Þorstein, ævi hans og skáldskap
en Tómas Guðmundsson hefur séð um útgáfuna og ritar hann formálaorð
fyrir hverju bindi um sig, auk eftirmála við allt ritsafnið.
Þessi fagra útgáfa mun áreiðanlega eignast sjálfskipaðan sess við hlið
annarra öndvegisrita á hverju íslenzku menningarheimili.
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA.